Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						(Music Division) er stór deild með nýtískulegum tækja-

búnaði og aðstöðu fyrir notendur og safnið á m.a. talsvert

af frægum og fágætum hljóðfærum. Safnið rekur einnig

tónlistardeild í Kennedy Center í miðborg Washington.

Geymslusöfn, birgðageymsla og fleira er í Landover í

Maryland. Þar eru m.a. starfsmenn sem sjá um ýmis konar

innkaup og birgðaskráningu fyrir LC, þar er einnig hluti

starfsmanna og birgðageymsla höfundarréttardeildar.

Þarna er mikið af blöðum og tímaritum alls staðar að úr

heiminum. Einnig bókagjafir sem bíða úrvinnslu.

Ekki er rúm hér til að telja upp fleiri deildir en þær eru

margar fleiri og tengjast ýmist sérsviðum eða tilteknum

heimshlutum. Lestrarsalir eru margir og starfa í tengslum

við upplýsingaþjónustu deildanna. Aðallestrarsalurinn

(Main Reading Room) er í Thomasjefferson byggingunni

og yfir honum hvelfingin mikla sem margir kannast við.

Kerfismál og afturvirk tölvuskráning

Ekki vil ég skiljast svo við að ég nefni ekki það sem mest

brennur á safninu nú en það eru kerfismálin og óskráð efni

frá fyrri tíð. Hið síðarnefnda er eitt aðaláhyggjuefni dr.

Billingtons og hefur verið ráðið dálítið af sjálfboðaliðum

til þess að ganga á eldra efni og skammskrá það inn í

tölvukerfið. Mikið álag er á fasta fólkinu vegna þessa, það

verður að sjá um skipulagningu verksins og sjá til að það

fari ekki úr böndunum. Talsvert er um að fyrrverandi

starf smenn sem komnir eru á ef tirlaun gef i sig f ram í svona

vinnu en einnig alltaf nokkuð af fólki sem ekki hefur

fengist við safnstörf fyrr. En auk þessa var störfum fjölgað

til muna í skráningardeild síðastliðið vor.

Vegna yfirstandandi kerfisvæðingar Háskólabókasafns

og Landsbókasafns fór ekki hjá því að ég hefði talsverðan

áhuga á kerfismálum LC. Safnið var fyrsta altölvuvædda

safnið í heiminum. Tölvukerfið (Library of Congress In-

formation System, LOCIS) er nú komið á þrítugsaldur og

ber aldrinum glöggt vitni. Það er flókið í notkun og

umhendis óvönum að fara milli skráa (og gagnabanka).

Notandinn getur því hæglega farið fram hjá mikilsverðum

upplýsingum án þess að gera sér nokkra grein fyrir því að

hann er ekki búinn að þaulkemba skrárnar. Hann þarf að

vita af öllum skrám og hafa aðgang að handbók um notk-

un kerfisins. Slíkar notendahandbækur eru því við hlið

hvers almenningsskjás í safninu. Auk þess er alltaf hjálp-

arlið hjá tölvuskránum og er mikið til þess leitað því að

leiðbeiningarnar eru á mörgum blöðum og tekur tíma að

átta sig á þeim. Ef skipanir eru notaðar rétt er kerfið hins

vegar mjög öflugt. Hverri útstöð fylgir prentari sem nota

má að vild. Unnið hefur verið að ýmsum endurbótum á

kerfinu sem einkum miða að því að gera það notendablíð-

ara. Meðal annars hafa verið teknir í notkun nokkrir

snertiskjáir með valmyndastýrðum skjámyndum. Nefnist

nýi almenningsaðgangurinn ACCESS og verður hluti af

nýju kerfi sem unnið er að. Nýi aðfangaþátturinn,

ACQUIRE, var tekinn í notkun síðastliðið haust. Jafn-

framt nýhönnuninni verður að viðhalda gamla kerfinu og

liggja ýmsir ITS deildinni á hálsi fyrir hvað seint gengur.

Ekkert kerfi á markaði telst svara kröfum LC.

Lokaorð

Hér hefur verið stiklað á stóru. Ég hugsa til starfs-

bræðra minna í LC og minnist margra góðra samveru-

stunda innan safns sem utan. Svovona ég að menn virði

mér það á betri veg að til þess að spara rúm hef ég notað

styttingar á amerískum heitum þegar þau hafa einu sinni

komið fyrir í fullu formi ásamt íslenskri þýðingu eða

skýringu.

Annað lesefni m.a.:

Goodrum, C.A. 1991. Treasures of the Library of Congress. New

York : H.N. Abrams.

Guide to the Library of Congress. 1988. Washington, D.C. : Library

of Congress.

Melville, A. 1980. Special œllections in the Library of Congress: a

selective guide. Washington, D.C. : Library of Congress.

SUMMARY

With watchful eyes on Capitol Hill — the story

of a nine months internship at Library of

Congress

Library of Congress has maintained a special Intern Program

since 1968 which has become accessible to foreign applicants since

1989. The author was one of those first admitted and the article is a

summary of her experiences during the internship period. The

programme offers continuing education and training in the field

of general library management and is evenly divided into three

major parts. The first three months cover a thorough introduc-

tion to the organization and activities of LC. This is followed by a

theoretical as well as practical discussion of various management

issues while the third period is devoted to working on individual

projects. Beyond the account about the actual content of the

program the article gives a brief description of most special fea-

tures of LC including various departments, collections and ser-

vices. Automation, of particular interest to the author, is also

discussed.

29

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76