Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						boðið frágengnar bækur á „búðarverði" en þeir hafa ekki

verið fáanlegir til að veita ÞB meiri afslátt en söfriunum

svo að af því hefur ekki orðið.

E.  Að framleiða ýmis konar bókasafnsvörur og dreifa

þeim til safna

Þær vörur sem Þjónustumiðstöð bókasafna hefur látið

framleiða eru spjaldskrárspjöld, vasar, útlánakort og

svuntur, svo og spjöld fyrir tímaritaskráningu. Hillu-

merkingar hafa einnig verið gerðar. Önnur gögn, svo sem

lánþegaskírteini, spjöld fyrir lánþegaskrá og eyðublöð

fyrir pantanir og millisafnalán hafa ekki verið gerð. Aðal-

ástæðan er að mikið magn þarf að framleiða og selja í einu

af slíkum gögnum til að hagkvæmt sé að láta gera þau. Þá

þyrftu mörg stór söfn að sameinast um notkun sams

konar gagna en öll virðast þau hafa sínar sérþarfir og

húsreglur og takmarkaður samræmingarvilji sýnist vera

fyrir hendi. Auk ofangreindra vara hafa verið framleidd

veggspjöld, barmmerki og bókapokar úr taui og plasti,

m.a. í tengslum við bókasafnavikur sem haldnar hafa verið

á vegum BVFÍ. Miklu umfangsmeiri en framleiðslan er

innflutningur og sala á hvers kyns bókasafnsvörum og

búnaði frá Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkj-

unum. Fjölbreytt úrval af bókaplasti, viðgerðarefnum og

ýmis konar smávöru er á boðstólum og einnig smærri

húsgögn, svo sem spjaldskrárskápar, bókatoppar og

bókavagnar. Aðrar vörur, hillubúnaður og húsgögn, eru

pantaðar samkvæmt óskum viðskiptavina og er af-

greiðslufrestur yfirleitt 6-10 vikur eftir því hvaðan er

pantað. Bókasafnsbúnaður sem ÞB útvegar frá BC In-

ventar a/s og Btj Produkter AB prýðir nú fjölda smárra og

stórra safna um land allt. Þetta er geysilega fjölbreyttur og

sveigjanlegur búnaður með mikla notkunarmöguleika og

hentar öllum safnategundum. Hönnun og frágangur er í

hæsta gæðaflokki og stöðugt er unnið að þróun búnaðar-

ins til að mæta nýjun þörfum í starfsemi bókasafna.

F. Að veita sérfræðilega aðstoð og ráðgjöf sem horfir til

heilla íslenskum bókasöfnum

Reynt hefur verið eftir föngum að veita ráðleggingar

varðandi flesta þætti í starfsemi bókasafna en umfangs-

mest er þó ráðgjöf um skipulagningu og innréttingar.

Sífellt fjölgar bókasöfnum af öllum gerðum og stöðugt er

reynt að stækka og endurbæta hin eldri. Því er mönnum

boðið að senda inn teikningar af húsnæði og greinargerð

um stærð og starfsemi safnsins og fá tillögur að innrétting-

um, sér að kostnaðarlausu. BC Inventar og Btj Produkter

reka umfangsmikla innréttingaráðgjöf og allt frá upphafi

hefur þjónusta þeirra staðið íslenskum bókasöfnum til

boða. Hin síðari ár hafa þó flestar innréttingatillögur

verið unnar í ÞB enda er oftast um að ræða mjög lítil söfn,

minni en 100 m2, og má segja að það krefjist sérþekkingar á

íslenskum aðstæðum að koma því fyrir sem nauðsynlegt

er af bókum og búnaði. Engin íslensk norm eða staðlar eru

til um rýmisþörf í bókasöfnum og því eru norræn norm

höfð til hliðsjónar við skipulagningu safna. Allt of oft þarf

þó að láta þau lönd og leið vegna plássleysis og fjárskorts

en því miður oft einnig vegna skammsýni og vanþekking-

ar ráðamanna á raunverulegum þörfum safnanna. Stærri

verkefni eru send utan og síðan unnið frekar úr þeim

tillögum hér heima.

Hér hefur verið litið yfir aðdragandann að stofnun

Þjónustumiðstöðvar bókasafna og starfsemina þar und-

anfarin 13 ár. Óhætt er að fullyrða að stofnunin hefur

stuðlað að bættri bókasafnsþjónustu á íslandi þótt ýms-

um verðugum verkefnum hafi ekki reynst unnt að hrinda í

framkvæmd. Einkum eru það minnstu bókasöfnin sem

notið hafa góðs af þjónustunni og við teljum að það hafi

skipt sköpum fyrir starfsemi margra þeirra að geta leitað

til ÞB. Enn er margt óunnið áður en allir þegnar landsins

hafa aðgang að viðunandi bókasafns- og upplýsingaþjón-

ustu og við í Þjónustumiðstöð bókasafna vonumst til að

geta áfram lagt okkar af mörkum til að svo megi verða.

HEIMILDIR:

Dögg Hringsdóttir. 1985. Þjónustumiðstöð bókasafna. Sveitarstjórn-

armdl 45 (3): 120-122.

Erla Kristín Jónasdóttir. 1977. Kynningarfundur um skrá yfir íslensk

rit 1944-1973 og spjaldaútgáfu FB. Fregnir 2 (1): 13.

Hrafn Harðarson. 1979. Hlutverk þjónustumiðstöðva bókasafna.

Svcitarstjórnarmál 39 (1): 17-20.

Jón Sævar Baldvinsson. 1979. Þjónustumiðstöð bókasafna. Sveitar-

stjórnarmál 39 (1): 16.

Kristín H. Pétursdóttir. 1976. Fréttir frá höfuðstöðvum „stóru skrár"

og spjaldaframleiðslu FB fyrir íslenska útgáfu 1944-73. Fregnir 1

(1): 9-10.

Kristín H. Pétursdóttir. 1978. Fæðing í kommóðu. Tíminn 12. nóv-

ember 1978.

Kristín H.  Pétursdóttir.  1982. Um Þjónustumiðstöð bókasafna.

Bókasafnið 6 (1): 13-14, 37.

Sigrún K. Hannesdóttir. 1977. Framtíðarhlutverk íslenzkra almenn-

ingsbókasafna. Sveitarstjórnarmál 37 (2): 91-96.

Sigrún K. Hannesdóttir. 1977. Spjaldskrá og bókaskrá. Sveitarstjórn-

armál 37 (1): 54-55.

Stefán Júlíusson. 1975. Skráningarmiðstöð bókasafna. Bókasafnið 2

(1): 21-22.

Þingþankar: 2. landsfundur íslenzkra bókavarða 1972. 1973. Frétta-

bréf Bókavarðafélags íslands 3 (1): 4-6.

Þjónustumiðstöð bókasafna? 1977. Sveitarstjórnarmál 37 (3): 122.

Þórdís Þorvaldsdóttir. 1973. Þjónustumiðstöð fyrir bókasöfn á ís-

landi. Fréttabréf Bókavarðafélags íslands 3 (1): 13-14.

Þórdís Þorvaldsdóttir. 1978. Loksins þjónustumiðstöð. Fregnir 3 (2):

3-4.

SUMMARY

Centre for Library Supplies and Services

A detailed account about the history and activities of the Icelandic

Centre for Library Supplies and Services in the past two decades is

presented. The founding charter has identified six areas in which the

Centre should endeavour to improve the efficiency of Icelandic

libraries; central cataloguing service, publication of bibliographical

aids and tools, publication of materials concerning library work such

as professional handbooks and policy decisions, central purchasing

and processing, preparation and distribution of general library supp-

ly material and consultancy. The author analytically examines each

area in order to determine to what extent these preset goals have been

achieved.

32

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76