Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						var forritunarvinna og þróun bókasafnskerfis fyrir

NORSK DATA námsvinna hjá okkur.

Tölvubúnaður skólans batnaði mjög á þessum tveim

árum sem ég var í náminu og fólst heilmikill lærdómur í

því að taka þátt í að taka nýjar tölvur í notkun og berjast

við ýmsar gerðir prentara, svo að eitthvað sé nefnt af því

sem hvergi kemur fram í námsskrá.

Þeir sem hafa lokið prófi sem Diplombibliotekarere, en

það heitir prófgráðan, vinna flestir við störf sem tengjast

upplýsingum á einhvern hátt. Olíuiðnaðurinn hefur

tryggt sér að minnsta kosti einn tug okkar og vinna flestir

sem deildarstjórar eða verkefnisstjórar við ýmsa þróunar-

vinnu á skipulagningu gagnasafna olíufélaganna. Nokkrir

hafa orðið deildarstjórar eða háskólabókaverðir við há-

skólabókasöfnin í Osló, Tromsö og Þrándheimi. Einn er

yfirbókavörður hjá Norges Statsbaner. Tveir eða þrír eru

kerfisbókaverðir hjá stórum almenningsbókasöfnum.

BRODD hefur ráðið nokkra sem sérfræðinga og skólinn

hefur tryggt sér að minnsta kosti tvo sem lektora. Nokkrir

vinna síðan við þróun tölvukerfa hjá einkafyrirtækjum.

Eftir á að hyggja er ég mjög ánægð með námið þótt

örvænting og uppgjöf gripi óneitanlega um sig annað

slagið þegar „raunafögin" virtust óskiljanleg máladeildar-

stúdentinum. Yfirleitt reyndust þeir hlutir viðráðanlegir

þótt það krefðist ef til vill meiri vinnu en ef undirstaðan

hefði verið nýlegt stærðfræðideildar stúdentspróf.

SUMMARY

Advanced studies in information and computer

sciences at Statens bibliotek- og

informasjonshögskole in Oslo in 1985-1987

The author graduated from the Oslo College of Library and In-

formation Science after two years of advanced studies in 1987. She

specialized in information and computer studies. Beginning with the

admission requirements she reports about the structure, method-

ology and study conditions for this special programme. Software

writing, database structure and retrieval techniques as well as social,

economic and management aspects of information have been empha-

sized. The author also reports on the two major projects she did as

part of the requirements. A survey of job opportunities for the

graduates completes the program description.

Hildur G. Eyþórsdóttir deildarstjóri, Landsbókasafni íslands

Meistaraprófsnám í bókasafns- og

upplýsingafræði vid McGill

háskólann í Kanada 1988-1989

Yfirlýst stefna bókasafns- og upplýsingafræðideildar

McGill háskóla í Montreal er að halda markmiði

skólans sem er að auka þekkingu, víðsýni og efla mennt-

un. Bókasafnsfræði hefur verið kennd við skólann allt frá

árinu 1927 (sumarnámskeið voru í boði 1904-1926) og frá

árinu 1956 hefur verið hægt að taka meistarapróf, MLIS

(Master of Library and Information Studies), í greininni.

Námið erviðurkenntaf Bandarísku bókavarðasamtökun-

um.

Meistaragráðu er hægt að ná eftir minnst tveggja ára

fullt nám eða fjórar annir en hægt er að taka námið á allt að

fímm árum. Krafíst er 54 eininga eða 18 þriggja eininga

námskeiða. Inntökuskilyrði eru BA próf frá viðurkennd-

um háskóla með fyrstu einkunn. Sýna þarf fram á kunn-

áttu í einu tungumáli auk ensku. Einnig er krafist þekk-

ingar á ritvinnslukerfinu WordPerfect og DOS stýrikerf-

inu. Umsækjendur sem hafa unnið á bókasöfnum eru

látnir ganga fyrir um skólavist. Margir umsækjendur hafa

lokið háskólaprófi í annarri grein en bókasafnsfræði.

Eg var í hópi 66 nemenda sem hófu nám í ágúst 1988 en í

deildinni eru að meðaltali um 140 nemendur. Byrjað var á

fjögurra daga kynningarnámskeiði þar sem starfsemi

deildarinnar og háskólans var m.a. kynnt. Einnig ræddu

eldri nemendur við nýkomna nemendur um námið í

deildinni og tækifæri gafst til að kynnast nemendum og

kennurum. Þessari kynningardagskrá var að vissu leyti

haldið áfram út allan námstímann því a.m.k. einu sinni í

mánuði var skylda að mæta á fyrirlestur á laugardögum

þar sem fjallað var um eitthvert ákveðið efni eins og t.d.

ólæsi, varðveislu safnefnis og efnisorð. Erindin voru flutt

af gestafyrirlesurum. Fyrirlestrarnir voru einnig sóttir af

starfandi bókasafnsfræðingum í Montreal og höfðu því

eins konar endurmenntunargildi. Einnig var boðið upp á

námsferðir út allan námstímann.

Af 18 námskeiðum sem þarf til að ná meistaraprófí eru

átta þeirra skyldunámskeið; Upplýsingaefni og aðferðir I

og II, Skráning og flokkun I, Tölvufræði og forritun,

Rannsóknaraðferðir I, Stjórnun, Uppbygging safnkosts og

Tœkni og þjónusta.

Eftirfarandi valnámskeið voru í boði;

Almenningsbókasöfn, Efnifyrir börn, Efni og þjónusta

fyrir unglinga, Fágœtisrit og bandrit,

Fjölmiblar og bókasöfn, Forvarsla — varðveisla,

Framhaldsskóla- og háskólasöfn, Geymsla og miðlun

upplýsinga Kerfisgreining, Listasöfn, Lyklun,

Markaðssetning upplýsingaþjónustu, Nýsigögn ogþjón-

usta,  Opinber menningarstefna og bókasöfn, Rann-

sóknaraðferðir II,     Rannsóknarverkefni, Saga prent-

listar, Sérfræðisöfn,

Sjálfstætt sjálfvalið verkefni, Skipulagning bókasafna

og arkitektúr, Skjalastjórnun,

Skjalasöfn og rannsóknir, Skráning ogflokkun I og II,

Stjórnarprent, Tónlistarsöfn, Tæknivæðing bókasafna

og netuppbygging, Upplýsingafíæði, Upplýsingakerfi í

50

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76