Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður, Sýslusafni Austur-Skaftafellssýslu

Nýtt safn opnað á Höfn

Arið 1990 var tekin ákvörðun í sýslunefnd Austur-

Skaftafellssýslu um að sameina rekstur allra safna í

sýslunni að svo miklu leyti sem unnt væri. Þá voru starf-

andi héraðsbókasafn á Höfn í hlutverki miðsafns fyrir

sýsluna samkvæmt reglugerð um almenningsbókasöfn,

bókasöfn eða lestrarfélög í hverju hinna fimm sveitarfé-

laga í sýslunni, héraðsskjalasafn á Höfn er starfaði fyrir

alla sýsluna og byggðasafn, einnig á Höfn, fyrir alla sýsl-

una. Á héraðsskjalasafninu var sérstök Ijósmyndadeild og

á byggðasafninu náttúrufræðistofa og vísir að listasafni.

Rekstur byggðasafns og héraðsskjalasafns var kostaður

af sveitarfélögunum í sýslunni sameiginlega, þ.e.a.s. þau

voru rekin af sýslunefndinni. Bókasöfnin voru hins vegar

rekin af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Þarna þurfti því

talsverðra breytinga við en þegar yfir lauk náðist samstaða

um að reka héraðsbókasafnið á Höfn af sýslunefndinni en

„litlu" bókasöfnin enn um sinn á kostnað sinna sveitarfé-

laga. Eðlilegast hefði verið að stíga skrefið til fulls og færa

rekstur „litlu" safnanna undir sýslunefndina einnig en það

bíður betri tíma.

Til þess að auðveldara væri að ná markmiðum samein-

ingar, þ.e. að hagræða rekstri eins og unnt væri, var sett á

stofn ný stofnun, Sýslusafn Austur-Skaftafellssýslu. Ráð-

inn var forstöðumaður að henni og annað starfsfólk ráðið

eða endurráðið að stofnuninni í heild en ekki að einstök-

um safndeildum. Gömlu safnheitunum, byggðasafni, hér-

aðsbókasafni og héraðsskjalasafni er þó haldið. Gildandi

leigusamningum fyrir húsnæði héraðsskjalasafns og hér-

aðsbókasafns var sagt upp og nýtt húsnæði leigt fyrir þessi

söfn sameiginlega í staðinn. Þegar nýtt leiguhúsnæði haf ði

verið fundið voru teikningar af því sendar Þjónustumið-

stöð bókasafna í þeim tilgangi að fá þaðan tillögu að

skipulagi safnanna. Þjónustum-

iðstöðin tekur að sér að gera eða

útvega skipulagshugmyndir fyrir

bókasöfn, þeim að kostnaðar-

lausu, og er sjálfsagt að notfæra

sér þjónustu fagfólks. I maí 1991

var flutt inn í þetta nýja húsnæði

og því er reynslan af sambúðinni

ekki löng. Byggðasafn verður

áfram í sínum húsakynnum þrátt

fyrir sameininguna.

Að flytja í nýtt safn er lær-

dómsríkt fyrir margra hluta sakir.

Starfsfólk leggur allt í sölurnar í

þeim tilgangi að skapa aðlaðandi

og aðgengilegt safn og bíður í

taugaspennu eftir viðbrögðum

fyrstu gesta og notenda. Vikurnar

og mánuðirnir á undan hafa verið

tímar erfiðisvinnu og skipulag-

ningar. Ekki síst hefur þó verið

tímafrekt að ná endum saman í

fjárfestingum og innkaupum. Svo

fór hjá okkur að fé sem safnið

fékk til stofnbúnaðar í tilefni flutninganna dugði til að

hólfa af eldtrausta geymslu fyrir skjalasafnið og til þess að

kaupa um það bil þriðjung hillubúnaðar fyrir bókasafnið.

Auk þess voru keypt húsgögn fyrir gesti safnsins.

Notaðar voru sömu hillur í skjalasafnið og verið höfðu í

eldra húsnæði safnsins (um 5 ára gamlar) en gert er ráð

fyrir að nýta megi skjalageymsluna, sem er um 15 m2 að

stærð, mun betur með hjólaskápum. Annað rými sem

skjalasafnið hefur sérstaklega til umráða er ekkert. I safn-

inu er hinsvegar sameiginleg aðstaða safnanna tveggja,

þ.e. afgreiðsla og upplýsingadeild, lestrar- og handbóka-

deild, vinnuaðstaða starfsfólks, geymsla fyrir umbúðir,

bækur o.fl., kaffistofa, snyrting, ræsting o.fl.

Skjalasafnið átti lítinn bókakost fyrir og því er sam-

vinna við bókasafnið mikilvæg. Við opnun Sýslusafnsins í

vor var því afhent bókasafn Páls Þorsteinssonar fyrrum

alþingismanns að gjöf og myndar það safn ramma utan

um vinnuaðstöðu þeirra er vinna að viðameiri verkefnum

og rannsóknum á safninu. Starfsfólk Sýslusafnsins telur

fjórar manneskjur í þremur heilum störfum. Viðurkennd

stöðugildi eru þó aðeins tvö. Af þessum þremur störfum

er um hálft helgað skjalasafninu og útgáfu héraðssögurits-

ins Skaftfellings, eitt og hálft bókasafninu og eitt byggða-

safninu. Auk þess hefur manneskja unnið í tímavinnu við

að skrá ljósmyndir og áhugamenn um náttúrufræði hafa

sinnt náttúrufræðisafninu í sjálfboðavinnu með starfs-

manni byggðasafnsins.

I framhaldi af bættri aðstöðu bókasafnsins með tilkomu

nýs og rúmbetra húsnæðis var unnt að bæta þjónustu

safnsins. Opnunartíminn var lengdur til muna og er safnið

nú opið daglega kl. 13-19 á veturna og kl. 13-17 á sumrin.

Auk þess er opið á laugardögum kl. 13-15 á veturna og til

Úr safni Páls Þorsteinssonar fyrrverandi alþingismanns. Sýslusafnið fékk bókasafn

Páls að gjöf.

52

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76