Rósa Traustadóttir yfirbókavörður, Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi Frá Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi fagnar ákaft þessa dagana því flutningar eru afstaðn- ir og búið að opna með pompi og pragt í glæsilegum húsakynnum í miðbæ Selfoss að Austurvegi 2 eða í gamla kaupfélagshúsinu. Þetta merkilega hús hefur nú fengið annað hlutverk, og ekki lakara myndi margur segja, en það er skemmtilegt frá því að segja að þegar þetta hús var fyrst tekið í notkun í október 1945 var opnuð hér bókabúð. Með þessu nýja bókasafni rúmlega þrefaldast rými safnsins. Hönnuður verksins var Stefán Snæ- björnsson en Dögg Hringsdóttir, Þjónustumiðstöð bókasafna, aðstoðaði við skipulagningu. Við heimamenn erum mjög ánægðir hvernig til hefur tekist og mjög stoltir af hve vel bæjarstjórn okkar hefur staðið að safnamálum bæjarins. Skjalasafnið er í sömu húskynnum og kemur það vissulega til með að auka samstarf milli þessara tveggja stofnana og veita fræðimönnum, lærðum sem leikum, betri þjónustu. Við þessi umskipti var loks hægt að taka við Eiríkssafninu og sameina það bókasafninu. Þessi stærsta bókagjöf í sögu þjóðarinnar, sem gefin var þann 5. október 1984, telur um 30 þúsund bindi og tímarit. Það er mikill akkur fyrir ekki stærra sveitarf élag að haf a í byggðalagi sínu mörg af merk- ustu ritum sem gefin hafa verið út á Islandi. Bókasafnið var opnað á hundrað ára afmæli Ölfusár- brúarþann 8. septembers.l. Það varvirkilegagamanaðsjá þennan dag allan mannfjöldann sem þyrptist að til að skoða safnið, með Forseta íslands frú Vigdísi Finnboga- dóttur í broddi fylkingar. Þeir mánuðir sem liðnir eru frá opnuna safnsins lofa mjög góðu. Útlán og notkun safnsins hafa sjaldan verið jafn mikil. Bætt vinnuaðstaða hefur gjörbreytt starfsháttum og starfsmenn þjást nú ekki leng- ur af innilokunarkennd. Það er full ljóst að staðsetning í Horft yfir hluta útlánssalar. miðbæjarkjarna hefur afar mikið að segja fyrir almenn- ingsbókasöfn og notendur þeirra. En sjón er sögu ríkari og erfitt að lýsa í orðum þessari miklu breytingu sem orðin er á högum Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Selfossi. En eitt er víst að Selfossbær hefur nú sýnt og sannað í verki að menning er hátt skrifuð hjá Sunnlendingum. SUMMARY News from the Selfoss Town and County Public Library It is announced that the Selfoss Town and County Public Library has recently moved to its new housing in the centre of the town. The archives are also located on the same premises which makes coor- dination of services easier. Increased space allows now that the big- gest private collection ever donated in Iceland is finally physically, too, incorporated in the library proper and made accessible to the public. Barnadeildin. 54