Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						um garð genginn var hún enn á lífi en svo grafin í bækur að

hún mátti sig ekki hreyfa.

„Kramin undir bókmenntunum," hugsaði ungfrúin

þarna undir hrúgunni. „Tilhlýðilegur dauðdagi fyrir

bókavörð."

Hún var þó ekki sérlega ánægð með þetta en það var

ekkert sem hún gat gert til að bjarga sjálfri sér. En þá

heyrði hún heróp!

„Heiðbjört, Heiðbjört Gullregn!" Hún heyrði rödd

kalla. Einhver týndi bækurnar ofan af henni. Það var

enginn annar en Ræningjahöfðinginn.

„Bjargmundur er réttnefni fyrir þig," sagði ungfrúin

veiklulega.

Hann lyfti henni nærgætnislega á fætur og dustaði af

henni rykið.

„Ég kom eins fljótt og ég gat," sagði hann. „Ó, ungfrú

Heiðbjört, þetta er ekki besti tíminn til að spyrja þig — en

þar sem ég gef nú upp mitt glæpalíf og gerist heiðvirður

maður — viltu þá giftast mér? Þú þarft að hafa einhvern

sem getur borið bækurnar fyrir þig og bjargað þér við og

við. Það gerir hlutina miklu einfaldari ef þú vilt giftast

mér."

„Auðvitað vil ég það," sagði ungfrú Heiðbjört án um-

hugsunar. „Þegar allt kemur til alls þá tók ég þig út á

bókasafnskírteinið mitt. Eg hlýt að hafa dáðst að þér á

laun í langan tíma."

I aðalsal bókasafnsins var mikið um að vera. Ræningjar

og bæjarstjórnarmenn unnu hlið við hlið sem bræður,

sortéruðu stimpla, röðuðu spjöldum og settu bækur í

hillur. Lögregluþjónninn hengdi upp myndir. Allir hróp-

uðu húrra þegar Ræningjahöfðinginn birtist með ungfrú

Heiðbjörtu, bláa og marða en fallega sem fyrr.

„Humm," sagði Ræningjahöfðinginn. „Ég er ham-

ingjusamastur allra. Ungfrú Heiðbjört hefur lofað að gift-

ast mér."

Allir viðstaddir lustu upp miklu fagnaðarópi.

„Með einu skilyrði," sagði ungfrú Heiðbjört. „Að allir

ræningjarnir hætti að vera ræningjar og verði bókaverðir í

staðinn. Þið voruð ekki mjög góðir

ræningjar en ég er viss um að þið verð-

ið frábærir bókaverðir. Ég er mjög

stolt af ykkur öllum."

Ræningjarnir stóðu á öndinni.

Aldrei hafði þá dreymt um slíkt hrós á

meðan þeir voru duglitlir ræningjar í

skóginum. Þeir voru djúpt snortnir og

sóru að þeir skyldu hætta að vera

óþokkar og verða bókaverðir í stað-

inn.

Þetta var allt mjög spennandi. Jafn-

vel lögregluþjónninn viknaði af gleði.

Svo þegar allt kom til alls var þetta

bókasafn einstaklega vel rekið. Með

alla þessa auka-bókaverði gat sveitar-

stjórnin opnað barnadeild með sögu-

stund og ævintýraleikjum á hverjum

degi. Ræningja-bókaverðirnir voru

sérlega góðir í þessum hlutum eftir all-

ar sögurnar í kringum eldinn í skógin-

um.

Ungfrú Heiðbjörtu, eða frú eins og

hún var nú orðin, grunaði að barna-

safnið í bænum þeirra væri — kannski

— svolítið háværara og skemmtilegra en mörg önnur fín

bókasöfn sem hún hafði heimsótt en henni stóð á sama.

Henni var sama þótt ræningja-bókaverðirnir héldu sínu

svarta úfna skeggi og henni var líka sama þótt þeir tækju

niður stóru skiltin sem á stóð ÞÖGN eða TALIÐ EKKI

SAMAN í BÓKASAFNINU.

Hver veit nema hún hafi verið meiri ræningi í hjarta

sínu en nokkurn grunaði ... nema að sjálfsögðu RÆN-

INGJAHÖFÐINGJA-OG-FYRSTA-AÐSTOÐAR-

BÓKAVÖRÐ, Bjargmund Ástbjartsson sjálfan, og hann

var ekki líklegur til að kjafta frá.

Sigrún Klara Hannesdóttir þýddi

Frá þýðanda

Margaret Mahy, höfundur sögunnar um Bókavörðinn

og ræningjana, fæddist á Nýja Sjálandi árið 1936. Hún er

talin einn af bestu barnabókahöfundum heims og hefur

fengið barnabókaverðlaun bæði í heimalandi sínu og í

Bretlandi. Hún hefur skrifað fjölmargar bækur fyrir börn

og unglinga og er sögð snillingur að segja sögur eins og

sést vel af þessari sögu. Þá á hún það jafnvel til að bregða

sér í gervi einhvers dýrsins sem hún er að túlka og töfra

börn með óvanalegum frásagnarhæfileikum. Margaret er

bókasafnsfræðingur og getur því með góðri samvisku

leyft sér að gera góðlátlegt grín að stéttinni. Sagan um

Heiðbjörtu Gullregn (eða Serena Laburnum eins og hún

heitir í sögunni) kom út árið 1978 og er önnur af tveim

smásögum í bókinni The Great Piratical Rumbustifica-

tion. Myndirnar eru eftir Quentin Blake og falla vel að

ýkjustíl höfundar. Eftir að hafa lesið bókina skrifaði ég

Margaret og bað um leyfi til að þýða hana fyrir íslenska

bókaverði. Hún brást mjög vel við og lét jafnvel í það

skína að hún vildi koma til íslands og heimsækja okkur.

Hver veit nema þessi hugmyndaríka kona eigi eftir að

heiðra okkur með nærveru sinni og kenna okkur að segja

sögur af fljúgandi frásagnargleði.

Bókavarðahjónin Heiðbjört Gullregn ogBjargmundur Ástbjartsson, ræningja-

höfðingi-og-fyrsti aðstoðarbókavörður.

58

_

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76