Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Bókarýni

íslenska alfræðiorðabókin / [Ritstjórn Dóra Hafsteins-

dóttir, Sigríður Harðardóttir ... o.fl.]. — [Reykjavík] :

Örn og Örlygur, 1990. — 3 bindi.

Arið 1990 kom út hjá bókaforlaginu Erni og Orlygi

Islenska alfræðiorðabókin í þremur bindum. Rit þetta

byggir að hluta til á alfræðiriti frá danska bókaforlaginu

Gyldendal, þ.e. Fakta : Gyldendals etbinds leksikon, útg.

1988, en danska efnið þurfti að staðfæra. Fellt var burt

sérefni fyrir Danmörku en í staðinn sett frumsamið efni er

snertir ísland og íslendinga eða u.þ.b. þriðjungur ritsins.

Fyrirrennari Fakta er Gyldendals tobinds leksikon sem

fyrst kom út 1973 og var síðan endurútgefið 1976 og 1982.

íslenska alfræðiorðabókin er fyrsta verk sinnar tegundar

hér á íslandi og hefur að geyma u.þ.b. 37 þúsund upp-

flettiorð, 4500 myndir og annað myndefni og er rúmlega

1800 blaðsíður. Unnið var að verkinu í þrjú ár og kom

mikill fjöldi manna þar við sögu bæði sem ritstjórar og

höfundar texta. Auk tveggja aðalritstjóra voru níu í rit-

stjórn og tveir myndaritstjórar. 150 ársverk samtals voru

unnin við ritið.

Tilgangur

Tilgangur útgáfunnar er að gefa út gott alfræðirit sem

nái til atburða, manna og málefna alls heimsins en þó með

séríslenskum áherslum og þannig bæti það úr brýnni þörf

á slíkum ritum á íslensku.

Areiðanleiki

Kostir: Þeir 105 íslendingar sem unnu að bókinni eru

jafnan sérfræðingar á því sviði sem um er fjallað. Er sér-

fræðinganna og fræðasviðs þeirra getið í fyrsta bindi. Þeir

íslendingar sem standa þannig að verkinu eru „háskóla-

borgarar með góða menntun". Þetta, ásamt því að ritið er

að stofni til frá traustu erlendu forlagi sem um árabil hefur

gefið slík rit út, ber þess vott að það sé áreiðanlegt. Alls

staðar sem tölulegar upplýsingar er að finna er vísað í það

ár sem þær miðast við. Eins og áður segir er mikill tími,

fyrirhöfn og kostnaður að baki verkinu og hefur útgef-

andi vandað vel til þess. Þetta eykur á áreiðanleika al-

fræðiritsins.

Ókostir: Það er talsverður ókostur að greinar eru ekki

undirritaðar (signeraðar), ekki einu sinni með fangamarki

þeirra sem þær semja eða staðfæra eins og víða tíðkast í

slíkum ritum. Annar ókostur er að heimilda er hvergi

getið. Ég hefi ekki komið auga á neina hlutdrægni í út-

skýringum en hins vegar finnst mér oft nokkuð óljóst

hvað ræður vali íslensks efnis. Slíkt kann þó kannski alltaf

að orka tvímælis. Misræmis gætir einkum í því um hverja

er fjallað í ritinu. Sem dæmi má nefna að enda þótt flestir

höfundar, sem gefið hafa út nokkur skáldrit hérlendis, fái

umfjöllun eru þar engar upplýsingar um Hafliða Vil-

helmsson, höfund fjölmargra slíkra rita. Ekki er þar held-

ur upplýsingar að finna um barnabókahöfundana Iðunni

og Kristínu Steinsdætur sem fengið hafa fjölda verðlauna

fyrir barnabækur sínar.

luLljiNöÍAn.

ALFRÆDI

ORDABÖKIN

í»

BÓKAÚTGAFAN örn og orlygur

1990

Notagildi

Bókin er ætluð öllum sem áhuga og þörf hafa á slíkum

ritum eða með öðrum orðum almenningi. Hún hentar

sérlega vel fyrir öll almenn bókasöfn, svo sem almenn-

ingsbókasöfn og skólasöfn grunn- og framhaldsskóla, og

bætir úr brýnni þörf, einkum það efni sem er séríslenskt.

Þar má á einum stað fá upplýsingar um flestar stefnur og

strauma, menn og málefni, lönd og þjóðir og annað slíkt

sem menn fýsir að fræðast um og hefur ekki verið eins

aðgengilegt áður.

Umfang og efnisval

Það hefur, eins og áður hefur komið fram, vaknað hjá

mér spurning um hvernig það fólk var valið sem fjallað er

um í ritinu. Ég sakna þess t.d. að ýmsir fleiri þekktir

listamenn fái að fljóta með án þess að ég nefni önnur nöfn.

Þetta er einn af þeim göllum ritsins sem fyrst kom í ljós á

því framhaldsskólasafni sem ég starfa við en þar er alltaf

yerið að leita að upplýsingum um yngri skáld og rithöf-

unda. Einnig hafa heyrst þær gagnrýnisraddir að upplýs-

ingar vanti um ýmsa þekkta menn í þjóðfélaginu en þær

upplýsingar erþó oftast hægt að finna íýmsum „stéttatöl-

um" og öðrum slíkum ritum.

Uppsetning

Feitletruðum og heldur stærri efnisorðum (uppfletti-

69

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76