Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						orðum), sem skera sig vel úr texta, er raðað í stafrófsröð en

ekki gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sér-

hljóðum, t.d. a og á. Auk efnisorðanna eru notuð svoköll-

uð „lykilorð". Nýyrði og sjaldgæf orð er hægt að finna

með hjálp samsvarandi erlendra orða (lykilorða) einkum

úr dönsku og ensku. Þessi erlendu orð eru höfð í hliðar-

dálki á viðeigandi stað í stafrófsröðinni. Frá þeim er síðan

vísað í íslenska orðið. Það auðveldar mjög uppflettingar í

ritinu að efsta efnisorð á opnu vinstra megin og neðsta

efnisorð á opnu hægra megin eru sett efst á hvert blað með

stærra letri en er á greinunum. Texta á hverri blaðsíðu er

skipt í þrjá dálka en fjórði dálkurinn er stundum notaður

fyrir myndefni og skýringar til viðbótar og gefur slíkt

upplýsingunum aukið gildi. Góðar upplýsingar um notk-

un ritsins eru á fyrstu blaðsíðum í fyrsta bindi. Þar á ég við

formála, lista yfir skammstafanir, sem einnig fylgir á lausu

spjaldi, og kafla sem nefnist „leiðbeiningar um notkun".

Prentun ritsins er skýr, pappír er góður og ekki of glans-

andi en þó kannski helst til hvítur. Bókband virðist gott

(ritið er enn sem nýtt þrátt fyrir talsverða notkun) en

vegna stærðar bindanna verða þau að liggja á borði við

notkun. Enga atriðisorðaskrá eða aðrar hjálparskrár er að

finna í ritinu.

Niðurlag

Það er ekki ýkja margt sem hægt er að setja út á íslensku

alfræðiorðabókina. Hún er að mínu mati afar gagnlegt rit

og þegar í mikilli notkun á bókasafni því sem ég starfa á.

Sömuleiðis er hún mikið notuð heima hjá mér enda var

hún á réttmætan hátt auglýst sem „háskóli heimilanna".

Þrátt fyrir það að ritið sé að 2/3 hluta til byggt á dönsku

alfræðiriti ber það engan þýðingarsvip. Það er á góðu máli

og mikil áhersla hefur verðið lögð á að finna heppilegustu

efnisorðin, eða jafnvel nýyrði sem hæfa hverju sinni, þótt

auðvitað megi alltaf deila um einstök orð.

Margrét Loftsdóttir

íslensk tímarit í 200 ár : skrá um blöð og tímarit frá

upphafi til 1973 / Böðvar Kvaran og Einar Sigurðsson

tóku saman. — Reykjavík : [s.n.], 1991. — xx, 205 s.

Fyrir rúmum 20 árum gáfu þeir Böðvar og Einar út

fjölritaða skrá um íslensk blöð og tímarit frá upphafi til

1966. Óhætt er að fullyrða að sú skrá hafi verið vel þegin

og mikið notuð þó að hún væri aðeins hugsuð sem bráða-

birgðaútgáfa og hefði sem slík ýmsa annmarka. Þar var

getið um 1955 blöð og tímarit en fjölrit ekki tekin með

nema að takmörkuðu leyti.

Nú hafa þeir félagar bætt um betur og gefið út nýja skrá

og lagt með henni stóran skerf til útgáfu íslenskra bók-

fræði- og heimildarita. Hér er stefnt að tæmandi skrá yfir

prentuð og fjölrituð íslensk blöð og tímarit. Færslur eru

tölvuunnar í marksniði og verður skráin því vonandi fljót-

lega aðgengileg í helstu tölvukerfum íslenskra bókasafna.

Höfundar hafa viðað að sér efni og byggt á grunni hand-

rits skrár þeirrar sem Geir Jónsson og síðan Böðvar Kvar-

an hafa unnið að í Landsbókasafni um blöð og tímarit þar.

Helstu yfirlitsrit sem áður hafa komið út um íslensk tíma-

rit, auk fyrrnefnds fjölrits, eru ritgerð Halldórs Her-

mannssonar The periodical literature of Iceland down to

theyear!874 : an historicalsketch (1918) og bók Vilhjálms

Þ. Gíslasonar Blöð og blaðamenn 1773-1944 (1972). Þessi

rit eru þó ekki skrár í líkingu við þessa heldur er markmið

íslensk tímarit í 200 ár

Skrá um íslensk blöð og tímarit frá upphafi til 1973

Böðvar Kvaran °6 Einar Sigurðsson lóku saman

Reykjavík 1991

þeirra umfjöllun um ritin. Einnig hafa komið út yfirlit um

blaðaútgáfu á nokkrum stöðum á landinu og í Vestur-

heimi. Annars hafa upplýsingar um tímarit aðeins birst

sem hluti af almennum bóka- og safnaskrám. Hér hafa

höfundar því dregið saman á einn stað upplýsingar sem

áður þurfti að týna saman úr ólíkum áttum. Auk þess

koma hér út í fyrsta sinn upplýsingar um fjölda blaða og

tímarita sem hvergi hafa birst áður.

Seinni tímamörk skrárinnar miðast við lok árlegrar að-

fangaskrár yfir tímarit í Árbók Landsbókasafns Islands.

Síðan áttu að koma út samsteypuskrár yfir blöð og tíma-

rit. Á árunum 1974-1978 voru íslensk tímarit ekki skráð í

íslenska bókaskrá og engin samsteypuskrá hefur enn

komið út yfir þau. Frá 1979 hafa ný blöð og tímarit hvers

árs verið skráð þar en engin leið er að sjá t.d. hve lengi þau

komu út. Enn sem komið er hafa íslensk tímarit ekki verið

færð inn í Gegni, tölvukerfi Landsbókasafns og Háskóla-

bókasafns. Það er þó aldrei að vita nema hið vaska Gegnis-

lið keyri út 20 ára samsteypuskrá yfir íslensk tímarit árið

1994. Sjálfsagt mundi sú skrá slaga hátt upp í þessa að

umfangi.

I inngangi ritsins er sett fram greinargóð efnisafmörkun

þess. Auk þeirra rita sem samkvæmt þrengstu skilgrein-

ingu teljast blöð og tímarit segjast höfundar m.a. taka með

tölusettar ritraðir, hvort sem þar er um að ræða einefnisrit

eða safnrit, þó ekki ef þær fjalla aðeins um starfsemi

einstakra stofnana. Ekki eru tekin með ritsöfn sem þeir

telja auk formlegra einkenna hafa fyrirsjánlegan endi.

Ymsar undantekningar eru frá þessu í skránni án þess að

hægt hafi verið að skilgreina það nánar og segja höfundar

oft hafa verið úr vöndu að ráða. Fjölmargar opinberar

stofnanir, einkum rannsóknastofnanir, gefa út tölusettar

ritraðir eða skýrslur þar sem birtar eru niðurstöður rann-

70

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76