Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Áslaug Agnarsdóttir bókasafnsfræðingur, Háskólabókasafni

Varðveisla í bókasöfnum

Hugleiðingar að loknu námskeiði um varðveislu safnefhis úrpappír

Dagana 8. til 29. september 1993 var haldið námskeið

í Reykjavík um varðveislu pappírs og pappírsgagna.

Námskeiðið var á vegum Endurmenntunarstofnunar Há-

skóla íslands, en ýmsir aðilar aðrir tóku þátt í skipulagn-

ingu þess eða studdu það fjárhagslega, þar á meðal Sendi-

ráð Bandaríkjanna og Félags-

vísindadeild Háskóla Islands.

Einnig sendi Library of Con-

gress Lage E. Carlson, deildar-

stjóra í varðvörsludeild safns-

ins, til að leiðbeina íslending-

um um varðveislumál. Nám-

skeiðið var opið öllum áhuga-

mönnum um varðveislu, en

var sérstaklega sniðið að þörf-

um þeirra sem starfa við

bóka-, skjala-, lista- eða minja-

söfn. Nemendum í bókasafns-

fræði var boðið að sækja nám-

skeiðið og fá það metið til ein-

inga, gegn því að skila skrif-

legri greinargerð um ákveðna

þætti þess. Þátttakendur voru

milli þrjátíu og fjörutíu í allt

og komu frá bókasöfnum,

skjalasöfnum, skólum og ýms-

um öðrum stofnunum.

Námskeiðið    var    tvíþætt,

annars   vegar   fyrirlestrar   og

safnaskoðun, hins vegar verkleg þjálfun. Haldnir voru fyr-

irlestrar um pappír og pappírsgerð, þar sem fjallað var um

kjörvarðveisluskilyrði pappírs, helstu orsakir fyrir eyðingu

pappírs og hvaða ráð væru helst til varnar. Síðan var farið í

heimsóknir á nokkur söfn til þess að reyna að meta raun-

verulegar aðstæður hvað geymslu á pappírsefni varðar.

Þeir sem skráðu sig í verklega hlutann fengu tilsögn í

öskjugerð, frágangi bæklinga og pappírsviðgerðum.

Báðir þættirnir voru vel skipulagðir og námskeiðið í

heild bæði fróðlegt og skemmtilegt.

Námskeiðið hófst á því að Carlson rakti í stuttu máli

sögu pappírs og pappírsgerðar allt frá því að T'sai Lun

tilkynnti keisaranum í Kína að hann hefði fundið upp

pappír árið 105 e. Kr. Carlson fór einnig nokkrum orðum

um bókagerð og bókband í áranna rás. Næsta dag var

fjallað um mismunandi pappírsgerðir og einkenni þeirra,

og síðan tók við hópvinna. Hver hópur fékk tíu mismun-

andi pappírssýnishorn til athugunar og átti að flokka þau

með tilliti til ýmissa atriða sem varða gæði, t.d. áferð, lit,

þykkt, styrkleika, gagnsæi, trefjastefnu og vökvaþol.

Urðum við þar margs vísari um eiginleika og notagildi

pappírs strax í upphafi námskeiðsins.

Þeir sem höfðu skráð sig í verklega hlutann fengu næstu

daga að spreyta sig á því að búa til öskjur utan um bækur,

sauma bæklinga og hreinsa og gera við skjöl af ýmsu tagi.

20   Bókasafiiið 18. árg. 1994

Hér liggja bækur á víð og dreifum gólfið. Takið efiir bókinni

sem hallast skakkt upp að skápnum vinstra megin á mynd-

inni. Þessi skrifari hefði eflaust haft gagn af námskeiði

Carlsons.

Kom í ljós að það er á flestra færi að stunda einfaldar við-

gerðir og öskjusmíði með tiltölulega einföldum tækjabún-

aði og þar af leiðandi litlum tilkostnaði. Það má t.d. nefna

að Carlson hreinsaði skjöl með því að raspa strokleður á

blað og nudda síðan hvítum mulningnum varlega með

hreinum fingurgómum yfir þá

fleti skjalsins sem hreinsa átti.

Síðan var mulningnum, sem

nú var orðinn svartur, blásið

burt. Þessi hluti námskeiðsins

var, að mínum dómi, hvað

gagnlegastur þegar upp er stað-

ið og ómetanlegt að fá að vinna

undir handleiðslu manns með

þá reynslu sem Carlson hefur.

Að verklega hlutanum

loknum fjallaði Carlson um at-

riði sem hafa áhrif á endingu

pappírsgagna, svo sem

geymsluskilyrði (hitastig, raka-

stig, ljós), utanaðkomandi

áhrif (mengun, pöddur,

myglu), umgengni (rétta með-

höndlun bæði starfsmanna og

safngesta) og nauðsyn þess að

gera björgunaráætlun sem

hægt væri að grípa til, ef stór

hluti safngagna skemmdist

vegna flóða, eldsvoða eða ef

eyðilegging yrði af völdum náttúruhamfara.

Lokaþáttur námskeiðsins fólst í stuttum heimsóknum

og ástandskönnun á þremur söfnum í Reykjavík: Lands-

bókasafni, Háskólabókasafni og Þjóðminjasafni. Tilgang-

urinn með þessum heimsóknum var að sýna þátttakendum

í verki hvernig hægt væri að kanna ástand safnkosts undir

handleiðslu sérfræðings. Eins og gefur að skilja var þetta

fyrst og fremst í kehnsluskyni og aðeins fá atriði könnuð.

Þátttakendum var skipt í þrjá hópa og fór hver hópur síð-

an á vettvang í fylgd Carlsons. Ég var í þeim hópi sem fór

á Landsbókasafn, og var þar farið niður í geymslur, á lestr-

arsal og víðar og gerðar mælingar á ljósmagni og rakastigi.

Mikill munur reyndist á ljósmælingum eftir því hvar þær

voru gerðar. Ljós mældist um 135 stig við borðin glugga-

megin á lestrarsalnum, en allt niður í 20-30 stig hinum

megin í salnum. I geymslum, þar sem reyndar er slökkt

mestan hluta dags, mældist margfalt meira ljósmagn í efstu

hillunum en í þeim neðstu.

Á síðasta fundi þátttakenda var gerð úttekt á ástandinu

á þessum söfnum og hver hópur kynnti sínar niðurstöður

fyrir hinum. I ljós kom að ástand pappírs er almennt ekki

svo slæmt hérlendis. Að einhverju leyti er þetta líklega hinu

hreina kalda íslenska loftslagi að þakka, en hrörnun

pappírs er einmitt hraðari í heitu loftslagi en í köldu. Hvað

rakastig varðar var loftið víðast hvar í þurrara lagi. Hér

verður reyndar oft að gæta þess að ekki sé of lítill raki í loft-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72