Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						bókasafns- og upplýsingafræði eru gerðar og/eða birtar á ís-

landi eru líka margvíslegar. Helsta hindrunin er ef til vill sú

að rétta „rannsóknarjarðveginn" vantar, faglegt umhverfi

sem hvetur til og býður heim rannsóknum. Þörf er á um-

ræðu um þessi mál og bókasafnsfræðingar verða að gera sér

ljóst að auknar rannsóknir bæta stöðu þeirra og bókasafns-

fræðinnar í heild. Rannsóknarvinna er góð leið til að halda

sér við faglega og hópvinna getur verið nauðsynleg fyrir

flesta íslenska bókasafnsfræðinga sem vinna mjög oft einir

á söfnum.

Aukin menntun bókasafnsfræðinga gæti leitt til fjöl-

breyttari rannsóknaraðferða. Tölfræðiupplýsingar um starf-

semi bókasafna nægja ekki til að afla þeirra fjármuna sem

sófnin þurfa, fleiri vandaðar rannsóknir er besta leiðin tíl

þess. Flytja þarf áhersluna frá lýsandi rannsóknum til rann-

sókna sem hafa forspárgildi eða sem hægt er að draga álykt-

anir af við stefnumörkun og skipulagningu. Skiljanlegt er

að þeir sem hafa getu og tækifæri til birti rannsóknir sínar

á alþjóðlegum vettvangi, en einnig þarf að beina kastljósinu

að séríslenskum málefnum og birta niðurstöður íslenskra

rannsókna á íslensku. Möguleikar á slíkum rannsóknum

hafa aukist á undanförnum árum og í því sambandi má

nefna aukinn fjölda ýmiss konar bókasafna, aukna notkun

bókasafna, fleiri bókasafnsfræðinga og meiri útgáfu efnis

um bókasafnamál.

7.0. Tillögur um rannsóknir og úrbætur

Ljóst er að þörf er á auknum rannsóknum í bókasafns-

og upplýsingafræði á Islandi til að byggja upp góða bóka-

safnsþjónustu. Eftirfarandi tillögur eru byggðar á niður-

stöðum þessarar rannsóknar:

Kannað verði til hlítar hvaða rannsóknir hafa verið gerð-

ar og að hvaða rannsóknum er verið að vinna. Óprentaðar

rannsóknir og rannsóknir á öðrum sviðum (t.d. í sagnfræði,

félagsfræði og menntamálum), sem skipta máli fyrir bóka-

safns- og upplýsingafræði, ætti að taka með. Rannsókn

þeirri sem hér birtist var ekki ætlað að vera tæmandi en

engu að síður gefur hún til kynna að ýmsar eyður eru í

skrifum um íslensk bókasafnamál.

Á þeim sviðum, þar sem litlar eða engar rannsóknir hafa

verið gerðar á íslandi, er greinilega þörf á úrbótum. Þar er

um að ræða stjórnun, tölvuvæðingu og notendur bóka-

safna. Auk þessa er ekki til neitt yfirlitsrit um sögu íslenskra

bókasafna. Frásagnir af sögu einstakra bókasafna hafa verið

birtar en fæstar þeirra byggjast á vísindalegum rannsókn-

um. Nauðsynlegt er að safna sögulegum staðreyndum um

þróun bókasafna á íslandi meðan það er enn hægt. Rann-

sókna er þörf til að leysa sérstök vandamál sem tengjast

bókasöfnum á Islandi, t.d. þjónustu við afskekktar byggð-

ir, skipulagningu bókasafnskerfa lítilla þjóða og vandamál

sem tengjast einhæfri og takmarkaðri bókaútgáfu.

Vegna þess hve fáir birta rannsóknir og vegna fjölda svo-

kallaðra faggreina vaknar sú spurning hvort það sé sama

fólkið sem birtir rannsóknir og sem skrifar faggreinar. Það

gæti verið athyglisvert skoðunarefni.

Einnig þyrfti að gera könnun á viðhorfum íslenskra

bókasafnsfræðinga til rannsókna í bókasafns- og upplýs-

ingafræði. Við það mundu safnast upplýsingar sem hægt

væri að nota til að skipuleggja faglegt starf innan stéttarinn-

ar og um leið væri lögð áhersla á mikilvægi rannsókna inn-

an greinarinnar.

Koma þarf á fót nefnd um rannsóknir í bókasafns- og

upplýsingafræði. Meðal verkefna hennar ætti að vera til-

lögugerð um áherslur í framtíðarrannsóknum. Nefndin

gæti einnig miðlað upplýsingum um rannsóknir sem eru í

gangi og stuðlað að því að bókasafnsfræðingar, sem áhuga

hafa, geti komið saman og rætt þau mál.

Ef birta á niðurstöður íslenskra rannsókna á Islandi er

einhvers konar útgáfa, ef til vill árleg, nauðsynleg. Þetta

gæti verið samvinnuverkefni bókasafns- og upplýsingafræði

við Háskóia íslands og Félags bókasafnsfræðinga og ef til

vill í samvinnu við aðra hópa og stofnanir með svipuð

markmið og áhugamál. Þar væru birtar skýrslur um rann-

sóknir á öllum stigum, allt frá litlum innanhússverkefnum

til stórra verkefna sem styrkt væru úr opinberum sjóðum.

Einnig mætti hugsa sér stutt yfirlit yfir BA-verkefni sem

lokið er við Háskóla Islands. Bókasafhinu er ekki ætlað að

vera rannsóknartímarit en sú ritstjórnarstefna að birta eina

merkta rannsókn í hverju hefti gæti hvatt til útgáfu rann-

sóknarniðurstaðna og þær greinar mundu ná til víðari les-

endahóps en ella.

Vitað er að niðurstöður sumra rannsókna, sem hafa ver-

ið gerðar á Islandi, eru ekki ætlaðar til birtingar. Sama gild-

ir einnig um flestar námsritgerðir Islendinga sem taka

meistarapróf við erlenda háskóla. Það þarf að hvetja fólk til

að ganga þannig frá verkum sínum að þau séu hæf til út-

gáfu og birta þau. Þetta gæti verið hlutverk nefndarinnar

sem áður er minnst á.

Bókasafnsfræðingar þurfa að berjast fyrir því að ákvæði

um rannsóknir verði víðtækari í lögum um nýja Þjóðarbók-

hlöðu en gert er ráð fyrir í drögunum. Slík breyting gerði

Þjóðarbókhlöðusafninu kleift að taka virkan þátt í rann-

sóknum.

Bókasafnsfræðingar þurfa líka að líta í eigin barm. I nú-

verandi lögum Félags bókasafnsfræðinga er einungis sagt að

stuðla eigi ,,að bættri aðstöðu til rannsókna og náms í

bókasafnsfræði." (Félag bóksafnsfræðinga, 1993). Þessu

þarf að breyta í þá átt að félagið taki þátt í rannsóknum og

hvetji til rannsókna og birtingar á þeim. Félagsmenn ættu

að íhuga með hvaða ráðum væri hægt að undirbúa „rann-

sóknarjarðveginn" innan stéttarinnar. Til slíkra aðgerða

mætti telja rannsóknarstyrki, þátttöku í útgáfu á rannsókn-

arefni og stofnun rannsóknarnefndar.

Athugasemd frá frá höfundum:

Grein pessi er unnin upp úr enskri útgáfu afrannsókninni og

er mjög mikið stytt. Mörgum heimildum er einnig sleppt.

Höfundar gera sér Ijóst að ekki er víst að allir séu sammála

valiþeirra á rannsóknum ogmunu taka meðþökkum ábend-

ingum um rit eða greinar sem œttu að batast i flokk rann-

sókna í fraðunum. Verið er að vinna að frekari samantekt.

HEIMILDIR:

Atkins, Stephen E. 1988. Subject trends in library and information sci-

ence research, 1975-1984. Library Trends 36: 633-658.

Busha, Charles H. og Stephen P. Harter. 1980. Research Methods in Libr-

arianship ; Techniques and Interpretation. New York : Academic Press.

Buttlar, Lois. 1991. Analyzing the library periodical literature : content

and authorship. Cottege and Research Libraries 52: 38-53.

Cano, Virginia og C. Rey. 1993. Ten Years of Spanish Library and In-

formation Science Research : a Bibliometric Study. Paper presented at the

59th IFLA Conference, Barcelona, Spain, August (197-THEORE).

Clyde, Laurel A. 1992. Introduction to research in school librarianship.

Australian Library Review 9(3): 182-185.

Dyer, Hilary og Richard Stern. 1990. Overcoming barriers to library and

information science research : a report of the First Advanced Research

Institute held at the University of Illinois at Urbana-Champaign.

International Journal of Information and Library Research 9: 173-185.

Eisenberg, Michael B. 1993. Current research. School Library Media Qu-

arterly 21(4): 241.

Feehan, Patricia, W. Lee Gragg, W. Michael Havener og Diane D. Kest-

er. 1987. Library and information science research : an analysis of the

42   Bókasafhið 18. árg. 1994

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72