Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Halldóra Þorsteinsdóttir bókasafnsfræðingur, Háskólabókasafni

IFLA-Alþjóðasamtök bóka-

varðafélaga og ársþing þeirra

Arsþing IFLA, stærstu alþjóðlegu ráðstefnur bókvarða,

draga árlega að sér hátt á þriðja þúsund þátttakendur

hvaðanæva úr heiminum. Þingin eru yfirleitt haldin seinni

hluta ágústmánaðar og er ráðstefnustaður mismunandi frá

ári til árs. Árið 1993 var þingið haldið í Barcelona, en þar

á undan í Nýju-Dehli, Moskvu, Stokkhólmi og París. Þau

næstu verða haldin í Havana, Istanbúl og Peking.

IFLA, International Federation of Library Associations

and Institutions, eru alþjóðasamtök bókavarðafélaga og

stofnana. Þau voru stofnuð í Edinborg árið 1927 af bóka-

vörðum frá 15 löndum til þess að koma á skoðanaskiptum

meðal bókavarða um heim allan, styrkja alþjóðlega sam-

vinnu, samræma starfshætti, efla rannsóknir og stuðla að

framgangi bókasafnsmála og upplýsingamiðlunar. Áhersla

var lögð á að samtökin yrðu sjálfstæð, alþjóðleg, óháð rík-

isstjórnum og án hagnaðarsjónarmiða og er ákvæði um

þessi atriði að finna í lögum þeirra.

í tímans rás hafa samtökin stækkað og áherslur breyst.

Þau telja nú 1284 aðildarfélaga frá 135 löndum. Að stærst-

um hluta eru þetta bókasöfn og stofnanir, þá bókavarðafé-

lög, þ. á. m. Bókavarðafélag íslands, og eitthvað er um að-

ild einstaklinga. Segja má að meðlimir IFLA séu í hverju

því landi þar sem bókasöfn er að finna. Höfuðstöðvar sam-

takanna eru nú í Konunglega bókasafninu í Haag í

Hollandi og hafa þau átta föstum starfsmönnum á að skipa,

en auk þess eru svæðisskrifstofur í Senegal, Thailandi og

Brasilíu.

Skipulag samtakanna er orðið ærið flókið og verkefnin

mörg og yfirgripsmikil. Meginmarkmiðin nú eru að efla og

samræma rannsóknir, gefa út og dreifa upplýsingum,

skipuleggja fundi, ráðstefnur og námskeið, og stuðla að

samvinnu við önnur alþjóðleg samtök á sviði upplýsinga-

mála.

Aðalstarfsemin skiptist í átta svið. Þrjú þeirra lúta að

málefnum mismunandi tegunda bókasafna, fjögur að safn-

tæknilegum atriðum og eitt að framgangi bókasafnsmála í

þriðja heiminum, en það er verkefni sem IFLA hefur mjög

beitt sér fyrir á síðustu tveim áratugum. Þessi átta megin-

svið eru:

I.	Almenn rannsóknarbókasöfn

II.	Sérfræðisöfn

III.	Almenningsbókasöfn

IV.	Skráningarmál

V.	Safnkostur og þjónusta

VI.	Stjórnun og tækni

VII.	Menntun og rannsóknir

VIII	,  Svæðastarf

Sviðin skiptast nánar eftir málefnum í 32 deildir og 12

hringborðshópa. Þessir hópar fjalla um þjóðbókasöfn,

þingbókasöfn,  blindrabókasöfn, lyklun,  aðföng,  upplýs-

46   Bókasafiiið 18. árg. 1994

ingatækni, lestrarrannsóknir og Afríkulönd svo örfá dæmi

séu nefnd. Auk þess hafa umræðuhópar um nýjungar líð-

andi stundar nýlega verið settir á laggirnar til að tryggja að

ferskar umræður eigi sér ávallt stað.

Annar veigamikill þáttur í starfsemi IFLA eru svonefnd

kjarnaverkefni. Um er að ræða fimm alþjóðleg samstarfs-

verkefni, sem snerta bókasöfn og bókasafnsnotendur, hvar

sem er í heiminum, og miða þau að því að mæta þeim kröf-

um sem upplýsingaþjóðfélagið gerir um samræmingu.

Þetta eru:

UBCIM - Universal Bibliographic Control and Inter-

national MARC (Allsherjar bókfræðileg stjórn og alþjóð-

legt Marksnið)

UAP - Universal Availability of Publications (Allsherjar

aðgangur að útgefnum ritum)

PAC   —Preservation   and   Conservation   (Varðveisla   og

verndun)

UDT - Universal Data Transmission (Allsherjar gagna-

skipti)

ALP - Advancing Librarianship in the Third World (Þró-

un bókasafnsmála í þriðja heiminum)

Þjóðbókasöfn Þýskalands, Bretlands, Frakklands,

Kanada og háskólabókasafnið í Uppsölum hafa umsjón

hvert með sínu verkefni og útgáfustarfsemi tengdri þeim. Á

vegum safnanna og í tengslum við verkefnin eru gefin út

blöð og fréttabréf. Söfnin undirbúa einnig útgáfu staðla og

annarra rita og skipuleggja fundi og námskeið.

Utgáfa rita og gagna, ráðstefnur og námskeiðahald eru

helstu tæki IFLA til að miðla árangri innra starfs og vinna

frekar að markmiðum sínum. Helstu ritin eru IFLA

Journal, sem kemur út ársfjórðungslega; ársritið IFLA

Annual, IFLA Trends, sem kemur út tvisvar á ári, svo og rit-

raðirnar IFLA Communications og IFLA Professional

Reports, svo nokkur dæmi séu nefnd. Jafnframt styrkir

IFLA fjölda ráðstefna, námskeiða og vinnuhópa, sem e.t.v.

ná betur til fleiri einstaklinga en hið stóra ársþing.

Skipulag ársþinganna er svipað frá ári til árs. Á undan

þingunum eru venjulega haldin nokkurra daga námskeið.

Meðlimir fastanefnda, faghópa og ráða, svo og fram-

kvæmdastjórn, koma einnig saman síðustu tvo dagana fyr-

ir þingið og gera m.a. grein fyrir starfsemi liðins árs. Síðasta

ársþing IFLA, hið 59. í röðinni, var eins og áður segir,

haldið í Barcelona, höfuðborg Katalóníu, dagana 22.- 28.

ágúst sl. Námskeiðið sem haldið var á undan þinginu fjall-

aði að þessu sinni um skólasöfn og var einkum ætlað bóka-

vörðum frá þriðja heiminum. Daginn fyrir formlega opn-

un voru haldnir almennir fundir þar sem gerð var grein

fyrir starfseminni og framvindu kjarnaverkefnanna

svonefndu.

Þingið sjálft hófst með opnunardagskrá hinn 23. ágúst.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72