Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Gunnhildur Manfreðsdóttir, bókasafnsfræðingur

Viðskiptaheimurinn - upplýs

ingar og þjónusta

Erindi byggt á mastersritgerð höfundar frá Háskólanum í Wales, 1993,

flutt á 20 ára afmælishátíð Félags bókasafnsfræðinga, 11. nóvember 1993

Hlutverk upplýsinga í heimi viðskipta hefur aukist gíf-

urlega á síðustu áratugum. Upplýsingar eru orðnar

jafn mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækja og hráefni og

vinnuafl. Fyrirtæki með virka upplýsingamiðlun byggja

stefnumörkun og ákvarðanatöku á áreiðanlegum, hnitmið-

uðum og nýjum upplýsingum. Því eru þau ætíð betur und-

irbúin undir fyrirsjáanlegar breytingar á mörkuðum eða

breytt efnahagsástand ríkja og hafa þar með sterkari sam-

keppnisstöðu en ella. I upplýsingum felst ákveðið vald.

Skilningur á mikilvægi upplýsinga og þekking á upplýs-

ingaleiðum er ein af forsendum fyrir árangri í viðskiptum.

I þessu erindi verða sérkenni viðskiptaupplýsinga út-

skýrð, dæmi tekin um íslenskar viðskiptaheimildir, upplýs-

ingaþörf mismundi notendahópa skoðuð og þjónusta

bókasafna og upplýsingamiðstöðva hér á landi fyrir við-

skipta- og atvinnulífið.

Viðskiptaupplýsingar - skilgreining

Viðskiptaupplýsingar eru þau opinberu gögn (útgefin)

sem eru nauðsynleg við ákvarðanatöku í fyrirtækjum, við-

skiptastofnunum og hjá stjórnvöldum.

Með því að Iíta á fyrirtæki sem upplýsingakerfi er hægt

að greina milli innra og ytra umhverfis. Innra umhverfi

tekur til upplýsinga um fyrirtækið sjálft og rekstur þess,

eins og framleiðslu, sölu, birgðahald o.s.frv. Ytra umhverfi

inniheldur aftur á móti þá þætti sem geta haft áhrif á

ákvarðanatöku fyrirtækis, þ.e.a.s. upplýsingar utan fyrir-

tækis. Skilgreining viðskiptaupplýsinga nær til upplýsinga

um ytra umhverfi fyrirtækja.

Meginsvið viðskiptaupplýsinga eru markaðsupplýsing-

ar, fjármagnsupplýsingar, fyrirtækjaupplýsingar, fram-

leiðsluupplýsingar og almennar hagfræðilegar upplýsingar

um starfsumhverfi fyrirtækja og stofnana.

Notendahópar - upplýsingaþörf

Mismunandi hópar hafa þörf fyrir viðskiptaupplýsingar

í þjóðfélaginu, t.d. nemendur, stjórnmálamenn, frétta-

menn, fólk í atvinnuleit, fjárfestar, upplýsingafulltrúar og

útgefendur. Upplýsingaþörfin er mismunandi milli þessara

hópa en mikilvægasti notendahópurinn eru fyrirtækin sjálf.

Upplýsingaþörf fólks í viðskiptalífinu spannar vítt svið

en það sem einkennir hana hvað mest er hversu nýjar upp-

Iýsingarnar þurfa að vera, eins og upplýsingar um stöðu

hinna ýmsu fjármagnsmarkaða, alþjóðleg efnahagsmál,

framleiðslu atvinnugreina, þjóðartekjur, stöðu fyrirtækja,

markaðsrannsóknir o.s.frv.

Upplýsingaþörf einstakra framleiðslugreina er mismikil,

í sumum greinum er tækniþróun mjög hröð og miklar

sveiflur á mörkuðum, eins og í hugbúnaðariðnaði, sem

kallar á stöðugt upplýsingaflæði.

50   Bókasafnið 18. árg. 1994

Viðskiptaheimildir

Viðskiptaheimildir geta verið í mismunandi formi;

prentaðar, mikrofisjur, eða í tölvutæku formi eins og

gagnagrunnar, geisladiskar, „viewdata- eða audiotext".

Sama heimildin getur verið til í mismunandi formi, eins og

alþjóðlega Kompass fyrirtækjaskráin er bæði til í prentuðu

og tölvutæku formi. Það er að verða algengara að upplýs-

ingar séu einungis gefnar út í tölvutæku formi, sem er mjög

heppilegur miðill fyrir viðskiptaupplýsingar.

Bein upplýsingaleit í tölvu hefur marga kosti umfram

prentaðar heimildir. Þeir helstu eru að: upplýsingarnar eru

nýrri, leitarmöguleikar eru mun fleiri, og landfræðileg stað-

setning notenda skiptir ekki máli, sem er mikilvægt fyrir

okkur Islendinga. Við höfum sama aðgang að tölvutækum

upplýsingum og aðrir í heiminum.

Þó erfitt sé að afmarka viðskiptaupplýsingar á einhvern

hátt, er hægt að skipta þeim í fimm efnisflokka, eins og fyrr

greinir. Hver þessara flokka hefur ákveðin sérkenni sem

verða útskýrð nánar.

Fjármagnsupplýsingar veita upplýsingar um verð og

þróun á hrávöru, eins og áli eða öðrum málmvörum, og

þróun á gjaldeyrismörkuðum, peningamörkuðum og verð-

bréfamörkuðum. Fjármagnsupplýsingar veita aðallega upp-

lýsingar um verð en geta þó líka verið í texta formi, eins og

skoðanir, álit og greining á stöðu mála. Uppsprettur fjár-

magnsupplýsinga koma m.a. úr viðskiptakerfum verðbréfa-

þinga. I fjármagnsheiminum skiptir tími mjög miklu máli

því er bein upplýsingaleit í tölvu mjög heppileg aðferð.

Verð á hlutabréfum og öðrum verðbréfum er yfirleitt að

finna í tölvutæku formi, en einnig í dagblöðum, eins og

Morgunblaðinu sem birtir daglega tölur frá Verðbréfaþingi

Islands og opnu tilboðsmörkuðunum. Haustið 1993 opn-

aðist í fyrsta skipti beinlínuaðgangur fyrir almenning að

Verðbréfaþingi Islands, gengum bandaríska gagnabankann

Dow Jones Telerate. Fyrirtækið Strengur hf. er umboðsað-

ili fyrir Dow Jones Telerate. Upplýsingar berast á 10 mín-

útna fresti frá Verðbréfaþinginu í gagnabankann. Því geta

fjárfestar í Hong Kong, sem dæmi, fengið upplýsingar um

helstu stærðir á íslenskum fjármagnsmarkaði næstum jafn

óðum og kaupin gerast á íslandi.

Fyrirtækjaupplýsingar er sá flokkur sem hvað mest er

þörf á og mest er notaður. Upplýsingar um fyrirtæki eru

grunnheimildir fyrir viðskiptaheiminn, upplýsingar um

starfsemi fyrirtækja, fjárhagslega stöðu þeirra, framleiðslu,

stjórnarformenn og helstu yfirmenn, orðstír fyrirtækisins

o.s.frv. Utgefnar skrár um fyrirtæki tiltaka allt frá nauðsyn-

legustu upplýsingum, (nafn og heimilisfang) til nákvæmra

skýrslna um starfsemi og stöðu fyrirtækja. Frumupplýsing-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72