Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						m^t

;->::,

.rX .

SÖGU

ÞRÆOIR

Handbók

fyrirallabóka-ogbarnavini

AjÆl

Söguþræðir : handbók

fyrir alla bóka- og

barnavini / Anna Mar-

grét Birgisdóttir.

Reykjavík : Lindin, 1993.

- 263 s. : myndir.

I desember sl. kom út

bókin Söguþræðir, hand-

bók um efni barnabóka,

sú fyrsta sinnar tegundar

hér á landi. Hér eru raktir

söguþræðir eitt þúsund

og fimm bóka og eru þeir

sérstaklega vel skrifaðir og

skemmtilega fram settir.

Eina sem mætti hugsan-

lega setja út á þá er að, ef

þeir eru hugsaðir til að hvetja börn til lesturs, mættu þeir

stundum vera örlítið óræðari. Það er að segja að skilja eftir

rúsínuna í pylsuendanum og hvetja börn þannig til að vilja

vita meira um þessa bók sem lýst er svo skemmtilega.

I formála Guðrúnar Helgadóttur alþingismanns og

barnabókarithöfundar segir m.a.: „Það er því ekki lítil

ábyrgð að velja barni lesefni sem eykur því þroska ...", þetta

virðist megintilgangur ritsins að aðstoða heimili, skóla og

bókasöfn við að velja lesefni fyrir börn, frekar en að börn-

in velji sjálf.

Um val bóka í ritið segir höfundur í inngangi: „íslensku

bækurnar eru heldur fleiri en þær þýddu þó að reynt hafi

verið að hafa hlutfall sem jafnast" hér er eins og höfundur

sé ekki ánægður með að íslensku bækurnar séu fleiri en þær

erlendu. Eru það ekki einmitt bækur eftir íslenska höfunda

sem miðla okkar menningar- og reynsluheimi til barna

okkar og þess vegna ætti frekar að telja það kost að hlutur

íslenskra bóka sé meiri.

Söguþráðunum er raðað í stafrófsröð eftir titli en jafn-

framt eru þeir númeraðir til að auðvelda millivísanir. 5

söguþræðir eru settir aftan við í viðauka og er í raun óskilj-

anlegt hvers vegna þeim var ekki fremur skotið inn í á rétt-

an stað í stafrófsröð; t.d. hefði mátt merkja titilinn Breið-

boltsstrákur í vetrarvist 113A o.s.frv. Við hvern söguþráð

kemur fram á eftir titli: höfundur, útgefandi og ár, auk þess

koma fram neðst efnisorð og frummál bókar. Blaðsíðutal er

oftast með en oft ekki og stundum er getið að um síðari út-

gáfu sé að ræða en hvergi skýrt hvers vegna nema ef það á

að standa í þessum orðum höfundar: „Við valið á bókun-

um var tekið mið af því að þær væru aðgengilegar á söfn-

um." Ef títlar teljast til ákveðíns flokks bóka er honum að-

eins lýst við fyrstu bók og þá vísað frá seinni titlum til hins

fyrsta en í einstaka tilfellum er búið til samnefni fyrir fiokk-

inn. Þetta er mjög góð lausn til að forðast endurtekningar.

I bókinni er sérstök skrá um verðlaunabækur röðuð fyrst

eftir verðlaunaveitanda og svo eftir verðlaunaári. Fram

kemur titill, númer söguþráðs og ár. Þar sem ártalið er

aðalraðeining hefði verið eðlilegast að það kæmi fyrst og

svo raðað innan árs í stafrófsröð. Nokkrar þessaraverð-

launabóka hafa ekki verið teknar með í Söguþrœði.

Auk þessa er bæði höfundaskrá og efnisorðaskrá þar sem

vísað er í númer söguþráðs. Efnisorðaskráin er veikasti

hlekkur bókarinnar. Notuð eru samsett efnisorð eins og

t.d. „Afbrot og glæpir" en svo ef fletta á upp á „Glæpir" er

það ekki til sem efnisorð og þar af leiðandi er engin frávís-

un. Einnig eru „Þjófnaðir", sem eru vissulega afbrot, sér-

stakt efnisorð. Efnisorðið „Foreldrar" er ekki til en aftur á

66   Bókasafhið 18. árg. 1994

móti bæði „Einstæðir foreldrar" og „Stjúpforeldrar". Þrátt

fyrir galla í efnisorðaskrá er hér á ferðinni skemmtileg bók

og gott hjálpartæki við val á bókum fyrir börn, sérstaklega

ef velja á með tilliti til efnis.

Letur er mátulega stórt og skýrt, hver bókstafur hefst á

mynd af bókstaf sem veldur því að í uppsetningu texta er

oft tómarúm sem hefði stundum mátt fylla með fleiri fal-

legum myndum. Það sem gerir myndmál bókarinnar sér-

staldega skemmtilegt eru ljósmyndir úr barnaleikritum

Þjóðleikhússins en myndaskrá vantar.

Bókarkápa er falleg með teikningum úr íslenskum

barnabókum. Mynd er af höfundi á bakhlið og sögð á hon-

um nokkur deili, sem ætti að vera föst regla. Hér er á ferð-

inni skemmtilegt og frumlegt brautryðjandaverk sem von-

andi verður framhald á.

Regina Eiríksdóttir

Landsbókasafni Islands

Athugasemd við ritdóm

Islensk bókfræði í nútíð og framtíð : ráðstefna hald-

in á Akureyri 20.-21. september 1990 : ásamt niðurstöð-

um könnunar um efnisskrár og heimildalista í íslenskum

bókasöfnum / rítstjóri Sigrún Magnúsdóttir. - [Akureyri] :

Háskólinn á Akureyri, 1992.

Vegna ritdóms Einars G. Péturssonar um ritið Islensk

bókfræði í nútíð ogframtíð, í Bókasafninu 17. árg. 1993, sá

ég mér ekki annað fært en að stinga niður penna. Tilefnið

er umfiöllun hans um síðasta hluta ritsins „Könnun á bók-

fræðiverkum íslenskra bókasafna" og „Efnisskrár og heim-

ildalistar í íslenskum bókasöfnum". Ég verð að segja eins og

er, að þegar ég opnaði ritið og fór að blaða í þessum hluta

bókarinnar, þá rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds.

Nafn bókasafns Fjölbrautaskólans í Breiðholti kom fyrir

undir því næst hverju efnisorði. Það leit út fyrir að í bóka-

safni FB væru til þessir fínu heimildalistar um allt milli

himins og jarðar. Og það vakti líka athygli mína, eins og

Einars, að allar skrár eða heimildalistar frá FB skuli vera

taldar prenthæfar!

Þarna hlaut að vera einhver misskilningur á ferðinni. En

því miður er ekki svo. Þetta stendur þarna, svart á hvítu og

verður þannig framvegis. Og ég get ekkert annað gert en að

biðjast afsökunar á þessu fyrir hönd safnsins og sverja af

mér alla þátttöku í þessari könnun. Auðvitað vissi ég að

eitthvað var verið að vinna með heimildalistana og einnig

lista og skrár frá öðrum söfnum, en allar upplýsingar sem

ég fékk voru afskaplega takmarkaðar. Og ekki fékk ég

próförk til yfirlestrar, elckert sem birta átti var borið undir

mig. Könnunin sem slík er ef til vill ágæt, en ég er sammála

Einari að gera hefði átt betri greinarmun á efnisskrám og

heimildalistum, þannig að úrvinnslan hefði orðið allt önn-

ur. Einnig hefði verið eðlilegra að gefa hana út í sérhefti og

þá einhverju ódýru fjölriti. Þannig hefði könnunin orðið

betra hjálpargagn fyrir bókaverði í heimildaleit.

En víkjum að listum Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Það

er rétt að þar eru til fjölmargir heimildalistar sem hafa ver-

ið unnir í sambandi við verkefni og ritgerðasmíð nemenda

og einnig eigum við töluvert af listum sem við höfum

sankað að okkur gegnum árin og eru m.a. frá öðrum skóla-

söfnum á framhaldsskólastigi. Við samningu okkar heim-

ildalista er notað ákveðið verklag við uppsetningu og frá-

gang, en þeir miðast nær eingöngu við það efni sem til er á

safninu. Þeir hafa því takmarkað gildi fyrir aðra, nema að

hægt er að afla efnis eftir þeim og byggja aðra lista á þeim.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72