I kjallara bókhlöðunnar eru þéttiskápar. öðrum ráðningum var hins vegar gengið með föstum samn- ingum, er gilda frá og með 1. mars og til ótiltekins tíma. Þó bíður um sinn að ráða í fáein störf, einkum þau sem tengjast rekstri hússins. Þegar þessari lotu ráðninga lýkur, væntanlega fyrir mitt ár 1995, verða í bókasafninu um 80 stöðugildi, og eru þá ótal- in fáein störf við veitingarekstur. Áætlað hefur verið, að safn- ið þurfi á 115 stöðugildum að halda miðað við fullan rekstur. Væntingar um hið nýja safn eru miklar, eftir allan þann tíma sem tekið hefur að koma því á fót, og í rauninni ætlast notendur til þess að safnið sé starfrækt af fullu afli frá upp- hafi. Á það er einnig að líta, að allt húsið er tekið í notkun þegar á fyrsta ári, svo og allur tæknibúnaður þess. Þá má það heldur ekki gleymast, að flutningi og skráningu er alls ekki lokið, og verið er að móta ýmsa starfsþætti, sem vart eða ekki voru til áður. Annir eru því miklar í safninu og víða tekur í. Matstofa starfsfólks. Hlutverk og markmið Landsbókasafns Islands - Háskólabókasafns (6. og 7. grein laga nr. 71/1994) Bókasafnið er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla ís- lands. Safnið er rannsóknarbókasafn sem skal halda uppi á- virkri og fjölþættri upplýsingaþjónustu á sviði vísinda og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs. Hlutverk bókasafnsins er m.a.: Að viða að sér gögnum í prentuðu formi eða á öðr- um miðlum, skrá þau og búa í hendur notendum. Að þaulsafna íslenskum gögnum, m.a. með viðtöku skylduskila, svo og að afla erlendra gagna er varða ís- lensk málefni. Að varðveita handritasöfn þau sem stofnað hefur ver- ið til, vinna að frekari söfnun og rannsóknum íslenskra handrita og samsvarandi efnis á nýrri miðlum. Hið sama á við um hliðstætt erlent efni sem varðar ísland. Að tryggja sem best viðhald og varðveislu safnkosts- ins. í því skyni skal m.a. starfrækja bókbandsstofu, við- gerðarstofu og myndastofu. Þá skal taka frá eitt eintak af öllu efni sem berst í skylduskilum, undanskilja það allri venjulegri notkun og geyma tryggilega. Að starfrækja bókminjasafn. Að gera skrár um íslenskar bækur, handrit og hljóð- rit, svo og eftir atvikum margvíslegar efnisskrár. Að halda uppi rannsóknum á sviði íslenskrar bók- fræði og bóksögu og veita upplýsingar um íslenska bókaútgáfu. Að starfrækja landsskrifstofu fyrir alþjóðabóknúm- erakerfið og samsvarandi númerakerfi annarra safn- gagna, eftir því sem stjórn bókasafnsins ákveður. Að gefa safngestum kost á vinnuaðstöðu og sem greiðustum aðgangi að safngögnum. Að leiðbeina notendum bókasafnsins eftir föngum um heimildaöflun og halda uppi fjölþættri upplýsinga- þjónustu. Að sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarfsemi í Háskóla íslands. Að stuðla að sínu leyti að sjálfstæði og frumkvæði há- skólanema í námi, Að veita bókasafns- og upplýsingaþjónustu í þágu at- vinnuvega, stjórnsýslu, rannsókna og hvers kyns lista og menningarmála í landinu. Að starfrækja samskrá bókasafna og láta bókasöfnum í té tölvu- og skráningarþjónustu eftir því sem stjórn bókasafnsins ákveður. Að stuðla að samræmingu starfshátta í íslenskum bókasöfnum, veita þeim faglega ráðgjöf og eiga við þau sem víðtækast samstarf. Að vera landsmiðstöð fyrir millisafnalán. Að taka þátt í fjölþjóðlegu samstarfi á sviði rann- sóknarbókasafna og upplýsingamála. Að stuðla að fræðslu- og menningarstarfsemi, m.a. með því að standa að fyrirlestrahaldi, sýningum og list- viðburðum. Bókasafiiið 19. árg. 1995 45