Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						vinnubrögð og leiðir aðeins til aukins heildarkostnaðar við

framleiðsluna og lélegrar framleiðni. Hann telur að þessi

kostnaður geti numið 20-40% af veltu fyrirtækja. Því er

verulegur ávinningur fólginn í því að vinna verkin rétt í

fyrsta sinn og lækka þannig gæðakostnaðinn (Juran,

1988, s. 1).

Bæði Deming og Juran leggja áherslu á að unnið sé í lið-

um eða teymum að gæðaumbótum. Þátttakendur liðanna eru

fyrst og fremst þeir starfsmenn, sem raunverulega vinna verk-

in. Þetta er áríðandi, því að það eru þeir sem hafa besta þekk-

ingu á vinnslunni og því er líklegast að þeir geti komið með

gagnlegar ábendingar og hugmyndir til umbóta. Starfsmenn-

irnir hafa einnig lykilhlutverki að gegna við að festa í sessi

þær umbætur sem liðin ákveða að gera, því það margeykur

líkurnar á góðum árangri ef þeir hafa sjálfir tekið þátt í um-

bótaferlunum. Við umbótaferlana er gjarnan stuðst við tæki

eins og Shewhart hringinn sem getið var að ofan, eða t.d. svo-

kallaðan sjö hjalla umbótaferil sem er í raun frekari útfærsla

hans (sjá mynd 3) (Deming, 1990. s. 88).

Frumkvöðlar í gæðastjórnun eru sammála um, að

gæðaumbætur innan fyrirtækja og stofnana þurfa að vera

stöðugar, sem þýðir að jafnskjótt og lokið er við einn um-

bótaferil byrjar annar. Einnig geta fleiri en einn verið í gangi

í einu. Umbótastarfinu er því gjarnan líkt við spíral sem vind-

ur sig stöðugt áfram. Mönnum leyfist ekki að halla sér aftur á

bak í stólunum að loknum umbótaferli og slappa af. I bók

sinni KAIZEN : the key to Japan's competitive success lýsir

Masaki Imai því hvernig Japanir hafa byggt gæðastjórnunar-

áætlanir sínar á hugtakinu KAIZEN, en það þýðir, stöðugar

umbætur með þátttöku allra og einnig stöðugar umbætur í

smáum skrefum (Imai, 1986, s. xxix). Hugtakið hefur haft

mikil áhrif á innleiðingu gæðastjórnunar í fyrirtækjum og

Mynd 3. Sj	ö hjalla umbótaferill		

Áætla V.		Skilgreina vandamálið	

		1	

		Rannsaka vandamálið	1

		^	

		Greina raetur vandamálsins	

		*       ~	

Reyna "!&[_		Ráðast að megin-orsókum vandamálsins	

		|	

Athuga'SE		Árangur kannaður	-

		i	

Afráða 'M (Árni Laugdal, Sigurðurjóbann		Festa breytingar i sessi	

		4     ^	

	esson o^	Endurmeta störf og huga að næsta leik ' Ögmundur Kmítsson, 199-	i, s. 619)

stofnunum á Vesturlöndum og þess eru dæmi, að það hafi

verið notað við innleiðingu gæðastjórnunar á a.m.k. einu há-

skólabókasafni í Bretlandi (Martin, 1993, s. 4-12).

A gœðastjórnun erindi við bókasöfh?

Eðlilegt er að spurt sé, hvaða rök eru fyrir því, að stjórnun-

araðferðir sem notaðar hafa verið við að smíða bíla í Japan,

geti átt við á bókasöfnum? Því má svara til, að undanfarin ár

hefur gæðastjórnun rutt sér til rúms innan þjónustufyrirtækja

í æ ríkari mæli, t.d. í Bandaríkjunum og Bretlandi. I fyrstu

einkum meðal einkafyrirtækja, en á seinni árum einnig hjá

opinberum stofnunum. Það sem hefur einkum laðað að, hef-

ur verið sú fullyrðing að með gæðastjórnun megi gera meira

fyrir minna, þ.e. að hægt sé að reka stofnanirnar þrátt fyrir

minnkandi fjárveitingar og að með aðferðum gæðastjórnun-

ar geti þær betur mætt þörfum viðskiptavina sinna. Bókasöfn

eru þjónustustofnanir, sem verða að laga sig að þörfum við-

skiptavina sinna, þau eru til fyrir þá, en ekki bókaverðina.

Bókaverðir verða að þekkja þarfir og væntingar viðskiptavin-

anna og taka mið af þeim við skipulag og þróun bókasafn-

anna og þjónustu þeirra. Með aðferðum gæðastjórnunar er

hægt að safna upplýsingum á markvissan hátt og vinna

þannig úr þeim að það leiði til umbóta á þeirri starfsemi sem

bókasöfnin veita nú þegar, en einnig til hönnunar eða þró-

unar á nýrri starfsemi.

I Háskólanum á Akureyri var fyrir nokkrum árum les-

stofa, sem var allt of lítið notuð. Umbótaverkefni sem nem-

endur á gæðastjórnunarbraut rekstrardeildar háskólans unnu

ásamt starfsmanni safnsins, var m.a. fólgið í umfangsmikilli

gagnasöfnun þar sem leitað var svara hjá nemendum við

spurningunni, af hverju notar þú ekki lesstofuna? Eftir

vinnslu þeirra gagna sem bárust, komu í ljós ýmsar ástæður,

sumar þekktar fyrir, en aðrar nýjar. Umbæturnar sem gerðar

voru eftir verkefnið, leiddu til þess að lesstofan var færð í

annað rými sem mætti betur þörfum nemendanna og bóka-

safnið fékk aukið rými sem nam gömlu lesstofunni.

Það væri hroki að halda því fram, að ekki sé þörf umbóta

á bókasöfnum. Nægir í því sambandi að nefna, að niðurstöð-

ur erlendra kannana á því, hvort þær upplýsingar sem bóka-

verðir í upplýsingaþjónustu veita eru réttar eða viðeigandi

miðað við þarfir notendanna, eru verulegt áhyggjuefni

(Clayton. 1992, s. 300). Könnun á upplýsingaþjónustu í

norskum almenningsbókasöfnum nýverið, leiddi í ljós, að

fullnægjandi og rétt svör fengust aðeins við 23.8% þeirra

spurninga sem fram voru bornar. Hinsvegar fer hlutfallið

uppí 36% ef tekin eru með þau svör sem voru að hluta til

rétt (Ulvik, 1994, s. 6). Miðað við frammistöðu væru þessi

bókasöfn sennilega orðin gjaldþrota fyrir löngu ef þau væri

einkafyrirtæki og bókaverðirnir atvinnulausir.

Á tímum aðhalds og samdráttar í fjárframlögum hins op-

inbera til bókasafna líkt og annarra stofnana, ber að fagna því

að til eru leiðir sem gera mönnum kleift að gera meira fyrir

minna. Ef hægt er að lækka gæðakostnað á bókasöfnum með

aðferðum gæðastjórnunar, fæst betri nýting á því fjármagni

sem þau fá. Það gæti leitt til þess að hægt væri að bæta safn-

kostinn, efla tæknibúnaðinn og/eða fjölga í starfsliðinu svo

eitthvað sé nefnt, án þess að fjárveitingar til starfseminnar

hækkuðu í krónutölu. Þess eru dæmi, að stofnanir sem hafa

orðið að þola verulegan niðurskurð, hafa haldið starfseminni

gangandi sem fyrr með gæðastjórnun (Clayton. 1993, s.

363-371).

Gæðastjórnun gerir bókavörðum kleift að kynnast starf-

semi sinni á annan hátt en fyrr. Ekki eru aðeins skoðaðar

Bókasafrið 19. árg. 1995   61

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96