Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Grundvöllur upplýsingakerfis fyrir stjórnendur

decision theory

models

conlrol

loops

Áfangar á leiðinni eru sýndir sem hugsanabólur: 1. Structure the

decision: Skipuleggja ákvörðunina. 2. Gather information: Safna upplýs-

ingum. 3. Choose: Velja. 4. Validate: Staðfesta.

Annað á myndinni: Models: Líkön tii að meðhöndla upplýsingar t.d.

reiknilíkön og hernilíkön. Control loops: Eftirlitsfyrirmæli t.d. staðlar og

aðrar viðmiðanir

Óformlegar upplýsingar eru þó svo sannarlega mjög mik-

ilvægar. Til er fólk, sem er alltaf með á nótunum. Það les fleiri

greinar og skýrslur en aðrir, fer á námskeið og ráðstefnur og

skrifar fræðilega. Þetta fólk (invisible colleges) er eins konar

upplýsingalind og í góðu sambandi við samstarfsmenn og

aðra fagmenn og myndar upplýsinganet eða -kerfi (Cronin,

1982). Önnur dæmi um óformlegar upplýsingalindir eru há-

degisverðarfundir, bridgekvöld eða jafnvel veiðitúrar. Taka

verður þessar óformlegu upplýsingaleiðir með í reikninginn,

því þær eru mikilvægar fyrir alla (Olaisen, 1990, s. 205), þótt

þær verði að sjálfsögðu seint settar í tölvuvæddan gagna-

grunn!

Skipta má formlegu upplýsingunum í ytri og innri upp-

lýsingar, þ.e. utanaðkomandi upplýsingar annars vegar og

upplýsingar, sem verða til innan stofnunar/fyrirtækis hins

vegar. Dæmi um ytri uppíýsingar, sem stjórnandi í bókasafni

þyrfti á að halda, væru t.d. lög, stefna stjórnvalda, samfélags-

þróun, kröfur notenda eða móðurstofnunar. Innri upplýsing-

ar væru t.d. upplýsingar fengnar úr upplýsingakerfi stofnun-

arinnar (e.t.v. tölvuvæddu ), frá samstarfsmönnum, úr frétta-

bréfi stofnunarinnar, af fundum eða upplýsingar fengnar með

eigin eftirliti stjórnandans með vinnu starfsmanna frá degi til

dags.

3.2 Upplýsingaþörf á mismunandi

stjórnunarþrepum

Nákvæm skilgreining á upplýsingaþörf hinna ýmsu stjórn-

enda er mikilvæg, þegar hugað er að upplýsingakerfi fyrir

stjórnendur.

Það virðist vera fremur erfitt fyrir stjórnendur að gera (sér)

grein fyrir upplýsingaþörf sinni og er ástæðan e.t.v. sú, að þeir

eru svo vanir fátæklegum upplýsingum. Þeir gera því litlar

kröfur. Sú var líka niðurstaðan af vettvangsathugunum. Ýms-

ar aðferðir hafa verið þróaðar, til að mæla upplýsingaþörf.

Nefna má eina þessara aðferða, Critical Corporate In-

formation Analysis, en með henni eru kröfur yfirstjórnenda

um upplýsingar skilgreindar, áður en hönnun upplýsingakerf-

is hefst (Sanders, 1992, s.ll).

Ytri upplýsingar eru mjög mikilvægar fyrir yfirstjórnendur

vegna vinnu þeirra við áætlanagerð, en innri upplýsingar eru

ekki síður mikilvægar fyrir þá. Þeir þurfa að vita stöðu mála

innanhúss; hafa svarið við spurningunni: „Hvar erum við

nú?", til að geta svarað þeirri spurningu, sem er auðvitað

meira spennandi: „Hvert viljum við fara?".

Lægri stjórnendur nota innri upplýsingar, sem ekki eru í

tölvutæku formi mest (t.d. upplýsingar fengnar með eftirliti

með störfum undirmanna), millistjórnendur minna og yfir-

stjórnendur minnst.

Yfir- og millistjórnendur fá mikið af upplýsingum frá öðr-

um stjórnendum. Yfirstjórnendur fá um 1/3 af upplýsingum

sínum frá millistjórnendum og millistjórnendur fá sömuleið-

is um 1/3 af upplýsingum sínum frá lægri stjórnendum. Hafa

ber í huga að hluti upplýsinga, sem stjórnendur veita öðrum

stjórnendum, eru í raun fengnar úr tölvuvæddu upplýsinga-

kerfi stofnunar (Scott, 1986, s. 51). í vettvangskönnuninni í

bankanum voru það millistjórnendur, sem unnu mest með

upplýsingar úr uppfýsingakerfum bankans. Oft voru þessar

upplýsingar unnar fyrir æðstu yfirmenn og afhentar „tilbún-

ar" á pappír.

Þó að upplýsingaþörf stjórnenda mótist af því á hvaða

stjórnunarþrepi þeir starfa, kemur ýmislegt annað til, eins og

menntun, reynsla, persónuleiki o.fl. Menn á sama stjórnunar-

þrepi geta þurft mismunandi upplýsingar, til að geta tekið

sínar ákvarðanir.

Loks er hér eitt skemmtilegt sjónarhorn á upplýsingaþörf

stjórnenda. Olsgaard kveður yfirmenn í vanda, því í takt við

tískustrauma í stjórnunarfræðum hafi þeir tapað bæði yfir-

ráðum og valdi. Það sé beinlínis talið ósmekklegt að tala um

vald í sambandi við stjórnun. „Vald" er samkvæmt skilgrein-

ingu Olsgaard, það að geta breytt og haft áhrif á fólk. Stjórn-

endur bókasafna verða að geta breytt og haft áhrif, en til þess

að geta það verða þeir að finna eitthvað nýtt afl. Þetta nýja

valdaafl er að hafa víðtækar upplýsingar um stofnunina (Ols-

gaard, 1982, s. 107). Hjá samkeppnisfyritækjum, eins og

bönkum er þörfin fyrir stjórnunarupplýsingar mikil og öll-

um er Ijóst, að þar skilur á milli feigs og ófeigs.

4. Upplýsingakerfifyrir stjórnendur

Margir efast um ágæti upplýsingakerfa fyrir stjórnendur.

Shank segir kenningu Mooers um að upplýsingakerfi verði

ekki notað, þegar það er vandræðalegra og erfiðara fyrir not-

anda að fá uppplýsingar heldur en að vera án þeirra (Mooer,

1960, s. ii), eiga prýðilega við um upplýsingakerfi fyrir stjórn-

endur (Shank, 1982, s. 2). Hann er að vísa til þess, að mörg-

um þyki einfaldlega þægilegt að vita ekkert, hafa engar upp-

lýsingar og þurfa því ekki að taka ákvarðanir á grundvelli

þeirra. Shank hefur líka sínar efasemdir um söfnun ómerki-

legs „gagnarusls" og er ekki viss um, að við getum nýtt okkur

upplýsingar unnar úr gögnunum (Shank, 1982, s. 8).

Berry efast um upplýsingakerfi almennt. Hann segir það

sína reynslu af bókasöfnum og upplýsingakerfum þeirra, að

hvort sem um er að ræða efnislista, spjaldskrá eða leit í gegn-

um gervihnött, hafi hann aldrei fengið upplýsingar heldur

aðeins gagnslaus gögn (Berry, 1987, s. 14).

Mikilvægi upplýsinga fyrir stjórnendur hefur vonandi ver-

ið staðfest hér á undan. Hvernig eigum við að fara að ráða

við allar þessar (nauðsynlegu) upplýsingar? Margir þeirra, sem

skrifa um upplýsingakerfi fyrir stjórnendur vísa til kenninga

72    Bókasafrið 19. árg. 1995

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96