Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Stefanía Júlíusdóttir lektor, Háskóla fslands

Bókasöfn á Islandi

Mannafli, menntun, ritakostur, almennar aðstœður, löggjöf

Skipulag bókasafns- og upplýsingaþjónustu á landsvísu

Inngangur

I þessari grein er fjallað um atriði sem skipta máli við

skipulag samhæfðrar bókasafns- og upplýsingaþjónustu á

landsvísu: mannafla bókasafna, menntunarleiðir sem starfs-

fólki bókasafna standa til boða og nýtingu þeirra, ritakost

bókasafna á Islandi, löggjöf, varðandi samstarf bókasafna og

þróun bókasafna- og upplýsingamála, almennar aðstæður í

þjóðfélaginu sem hafa áhrif á starfsemi bókasafna jafnt sem

aðra starfsemi og skipulag bókasafns- og upplýsingaþjónustu

á landsvísu.

1. Mannafli bókasafha á Islandi

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem höfundur gerði

á mannafla bókasafna á íslandi í árslok 1989 og á árinu 1990

(Stefanía, 1994) er starfsfólk með sérstaka menntun til starfa

við bókasafns- og upplýsingaþjónustu flest við störf á höf-

uðborgarsvæðinu og í stærri kaupstöðum. Störfum sem

bókasafnsfræðingar gegna á þessum vettvangi fjölgar hlut-

fallslega en störfum sem aðrir gegna fækkar að sama skapi

og vinnumarkaður bókasafnsfræðinga á bókasöfnum er að

mettast.

I könnuninni voru könnunargögn send til 665 aðila. Svör

bárust frá 316, þar af 70 frá aðilum sem ekki ráku bókasafn á

könnunartíma. Auk þess fengust upplýsingar um 152 aðila,

annars staðar en úr könnunargögnum: úr ársskýrslum bóka-

safna hjá bókafulltrúa ríkisins og Skólasafnamiðstöð Reykja-

víkurborgar, auk þess sem prófessor Sigrún Klara Hannes-

dóttir veitti mér góðfúslega aðgang að gögnum úr könnun

sinni á starfsemi skólasafna sem nær til sama tíma og fyrri

hluti mannaflakönnunar. Af þessum 152 aðilum eru upplýs-

ingar um 95 bókasöfn (102 aðila) á könnunartíma, 28 bóka-

söfn (30 aðila) fyrir næsta ár á undan og 29 aðila sem ekki

ráku bókasafn á könnunartíma.

Að minnsta kosti 99 þeirra sem fengu send kónnunargögn

ráku því ekki bókasafn á könnunartíma. Sé gert ráð fyrir að

allir aðrir sem fengu send könnunargögn hafi rekið bókasafn

á þeim tíma eru það 567 aðilar. Upplýsingar fengust um 369

þeirra sem er 65%.

Sum bókasafnanna eru samsteypusöfn (þá eru rekin sam-

an tvö eða fleiri bókasöfn, algengast er að saman sé rekið al-

menningsbókasafn og grunnskólasafn, en margs konar aðrar

samsetningar eru til svo sem grunnskóla- og sérfræðisafn, al-

mennings- og sérfræðisafn, framhaldsskóla- og sérfræðisafn)

og gilda svör þeirra fyrir bókasafnsþjónustu tveggja eða

þriggja aðila. Upplýsingar um 369 bókasöfn gilda þannig fyr-

ir 421 aðila alls. Ekki var vitað um öll slík samsteypusöfn fyr-

irfram. Þau samsteypusöfn sem ekki var vitað um fyrirfram

fengu því send sitt spurningaeyðublaðið hvert en aðeins eitt

sameiginlegt svar barst. Upplýsingar fengust því um heldur

fleiri aðila en prósentutalan segir til um. Að meðtöldum þeim

99, sem ekki ráku bókasafnsþjónustu á könnunartíma, feng-

ust upplýsingar frá 520 aðilum.

Upplýsingar um samsetningu mannafla, dreifingu hans á

safnategundir og um landið eru marktækar svo og upplýsing-

ar um skiptingu starfa milli starfshópa og meðalstarfshlutfall

starfsmanna í hverjum starfshópi. En niðurstöður sýna hvorki

heildarstærð mannaflans né hve mörg störf eru unnin alls í

bókasöfnum á landinu.

Upplýsingar sem gera kleift að áætla eftirspurn eftir mann-

afla og æskilega menntun og þjálfun starfsfólks í framtíðinni

fengust aðeins um þau starfandi bókasöfn sem sendu svör við

könnuninni. Þau voru aðeins 246 vegna þess að 70 þeirra

316 aðila sem svöruðu ráku ekki bókasafn á þeim tíma sem

könnunin var gerð. Svör nýtileg við útreikninga í líkani

Moore's, sem hér er notað, eru aðeins 43.4% en 50% svörun

er lágmark til þess að niðurstöður séu marktækar (Moore

1986). Auk þess er nauðsynlegt að í hverjum starfshópi í

hverri bókasafnategund séu a.m.k. 10 manns. Sú tala næst

ekki í öllum tilvikum enda þótt bæði starfshópar og bóka-

safnategundir hafi verið sameinuð til að mynda stærri starfs-

hópa fyrir úrvinnslu gagnanna.

Niðurstöður úr útreikningum úr líkaninu gefa því aðeins

vísbendingu um mögulega þróun mannafla bókasafna hér á

Iandi.

Fjöldi stöðugilda og starfsmanna skipt

niður í starfshópa

Upplýsingar fengust um starfsmenn 369 bókasafna, þar

vinna 759 starfsmenn tæp 335 störf. Þar af eru 95, 12%

starfsmanna, sjálfboðaliðar sem ekki hafa stöðugildi. Störfin

335 eru því unnin af 664 starfsmönnum sem að meðaltali

vinna um hálft starf hver. Stöðurnar skiptast misjafnlega milli

starfshópa og milli þeirra bókasafna sem sendu svar sjálf og

þeirra sem afla varð upplýsinga um annars staðar frá. Sjá töfl-

ur 1-2.

Samanburður á þeim bókasöfnum sem svar barst frá og

hinum leiðir í ljós að þeir aðilar sem tóku þátt í könnuninni

og starfrækja bókasafn eru mun betur búnir að starfsfólki,

bæði eru stöður þar fleiri og menntun starfsmanna meiri.

Verst settir eru þeir aðilar sem ekki tóku þátt í könnuninni og

upplýsingar voru aðeins fáanlegar um í ársskýrslum fyrir árið

á undan könnunartíma. I þeim hópi eru 28 bókasöfn með

31 starfsmann, 15 þeirra eru sjálfboðaliðar, 14 ófaglærðir, 1

með próf frá Kennaraskóla íslands og 1 með háskólapróf.

Einungis eru gefin upp stöðugildi fyrir þá ófaglærðu, samtals

3.24 stöður. Það jafngildir því að hver þeirra vinni um 23%

úr starfi að meðaltali sem er ekki ósennileg tala fyrir starfs-

menn lítilla bókasafna.

Ef til vill þarf engan að undra að erfiðlega gangi að fá svör

við könnun sem þessari og að ársskýrslugerð sé á eftir tíman-

Bókasafrið 19. árg. 1995   81

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96