Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Yfirlýsing Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um

ALMENNINGSBÓKASÖFN

Grundvallargildi mannsins eru frelsi,

velmegun og framfarir samfélags og ein-

staklinga. Þessum gildum verður aðeins

náð ef velupplýstir borgarar nota lýðræðis-

legan rétt sinn og taka virkan þátt í samfé-

laginu. Virk þátttaka og þróun lýðræðis

byggir á fullnægjandi menntun sem og

frjálsum og ótakmörkuðum aðgangi að

þekkingu, skoðunum, menningu og upp-

lýsingum.

Almenningsbókasafn er hlið til þekk-

ingar á hverjum stað. Það skapar frum-

skilyrði til ævimenntunar, sjálfstæðrar á-

kvarðanatöku og menningarþroska ein-

staklinga og þjóðfélagshópa.

Yfirlýsing þessi staðfestir trú

UNESCO á almenningsbókasafni sem

virku tæki til menntunar, menningar og

upplýsinga og sem meginafli til að rækta

frið og andlega velferð í hugum allra

manna.

UNESCO hvetur því ríki og sveitar-

stjórnir til að styðja og taka virkan þátt í

eflingu almenningsbókasafna.

Almenningsbókasafh

Almenningsbókasafnið er upplýsinga-

miðstöð á hverjum stað og veitir notend-

um sínum aðgang að alls kyns þekkingu

og upplýsingum.

Þjónusta almenningsbókasafns er veitt

á grundvelli jafnræðis og jafnrar aðstöðu

allra manna án tillits til aldurs, kynþáttar,

kynferðis, trúarbragða, þjóðernis, tungu-

máls eða félagslegrar stöðu. Sérstaka

þjónustu og efni skal hafa á boðstólum

fyrir þá sem ekki geta nýtt sér reglu-

bundna þjónustu bókasafnsins af ein-

hverjum orsökum, til dæmis minnihluta-

hópa, fatlaða og fólk á sjúkrastofnunum

eða í fangelsum.

Allir aldurshópar skulu finna efni sem

svarar þörfum þeirra. Safnkostur og

þjónusta þurfa að taka til allra míðlunar-

forma og nútímatækni ekki síður en

hefðbundinna gagna. Frumskilyrði er að

safnkostur sé í háum gæðaflokki og henti

aðstæðum á hverjum stað. Safnefni verð-

ur að endurspegla strauma og stefnur í

þróun þjóðfélags og geyma jafnframt

minningar um hugvit og ímyndunarafl

mannsins.

Safnkostur og þjónusta eiga hvorki að

lúta hugmyndafræðilegri, stjórnmálalegri

eða trúarlegri ritskoðun né þrýstingi frá

viðskiptalegum hagsmunaaðilum.

Markmið almenningsbókasafiis

Eftirfarandi lykilmarkmið sem snerta

upplýsingar, læsi, menntun og menningu

skulu vera kjarninn í þjónustu almenn-

ingsbókasafna:

1.   að örva og styrkja lestrarvenjur barna

frá unga aldri;

2.   að  styðja  einstaklíngsmenntun  og

sjálfsnám svo og formlega menntun á

öllum stigum;

3.   að veita tækifæri til að þroska sköpun-

argleði einstaklingsins;

4.   að örva ímyndunarafl og sköpunar-

gleði barna og unglinga;

5.   að efla vitund um menningararf, gildi

lista, vísindaafreka og uppgötvana;

6.   að veita aðgang að listviðburðum í öll-

um listgreinum;

7.   að hvetja til umræðu um menningar-

leg tengsl og menningarlega    fjöl-

breytni;

8.   að stuðla að varðveislu frásagnarhefð-

ar;

9.   að tryggja aðgang almennings að hvers

konar opinberum upplýsingum;

10.  að veita fyrirtækjum, félögum og á-

hugahópum aðgang að viðunandi

upplýsingaþjónustu;

11.  að auðvelda nám á sviði upplýsinga-

og tölvuleikni;

12.  að styðja og taka þátt í starfsemi og

dagskrárgerð til eflingar Iestri fyrir

alla aldurshópa og eiga frumkvæði að

slíkri starfsemi ef þörf krefur.

Fjdrmögnun, lagasetning og samstarf

I grundvaJlaratriðum á aðgangur að al-

menningsbókasöfnum að vera ókeypis.

Almenningsbókasafnið er rekið á á-

byrgð sveitarfélags eða ríkis. Það skal

styrkja með sérstakri lagasetningu og fjár-

magna með framlögum frá ríki eða sveit-

arfélögum. Það skal vera í kjarna hvers

kyns langtímastefnu á sviði menningar,

upplýsingaþjónustu, lestrarátaks og

menntunar.

Bókasafnskerfi hvers lands skal skil-

greina og efla með lagasetningu og stefnu-

mörkun sem byggir á samþykktum sam-

starfsreglum til þess að tryggja samhæf-

ingu og samvinnd bókasafna á Iandsvísu.

Almenningsbókasafnakerfi skal hanna

í tengslum við landsbókasöfn, svæðis-

bókasöfn, rannsókna- og sérfræðibóka-

söfn svo og bókasöfn í grunnskólum,

framhaldsskólum og háskólum.

Starfsemi og stjórnun

Móta skal skýra stefnu þar sem mark-

mið, forgangsröð og þjónusta er skil-

greind með þarfir sveitarfélags í huga. Al-

menningsbókasafn þarf að vera vandlega

skipulagt og starfsemin að standast fagleg-

ar kröfur.

Tryggja þarf samvinnu við þá aðila

sem máli skipta svo sem notendahópa og

aðrar fagstéttir bæði innan sveitarfélags,

landshluta, á landsvísu eða á alþjóðlegum

vettvangi.

Allir íbúar sveitarfélags skulu eiga

greiðan aðgang að almenningsbókasafni.

Til þess að svo geti orðið þarf vel staðsett-

ar bókasafnsbyggingar, góða lestrar- og

námsaðstöðu, viðunandi tæknivæðingu

og nægilega langan og hentugan opnun-

artíma til að mæta þörfum notenda. Jafn-

framt þarf að efla þjónustu við þá sem

ekki komast til bókasafnsins.

Bókasafnaþjónustu þarf að laga að

mismunandi þörfum samfélags hvort sem

er í dreifbýli eða þéttbýli.

Bókavörður er virkur tengiliður milli

lánþega og þekkingar. Fagþekking og næg

endurmenntun bókavarða er ómissandi

þáttur í því að tryggja viðunandi þjón-

ustu.

Veita þarf virka þjónustu og skipu-

lagða notendafræðslu til þess að notend-

ur geti haft fullt gagn af öllu því sem al-

menningsbókasafnið hefur upp á að

bjóða.

Framkvœmd Yfirlýsingarinnar

Yfirvöld í hverju Iandi og hverju sveit-

arfélagi svo og bókasafnsnotendur um all-

an heim eru hér með hvattir til að fram-

kvæma þau ákvæði sem lýst er í þessari Yf-

irlýsingu.

Icelandic translation of the UNESCO Public

Library Manifesto 1994.

Þýðing: Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir

Eftirmáli:

Unesco gaf út fyrstu yfirlýsingu sína um al-

menningsbókasöfn árið 1949. Endurskoðuð út-

gáfa kom út árið 1972, var þýdd á íslensku af

Baldri Ingólfssyni og birtist m.a. í Bókasafninu

1982(6)2, 20+13. Þessi nýja endurskoðun var

staðfest af stjórn þeirrar deildar UNESCO sem

nefnist General Information Programme (PGI) í

nóvember 1994. Forvinna endurskoðunar var í

höndum vinnuhóps á vegum fastanefndar IFLA

um almenningsbókasöfn. 1 þessum vinnuhópi

voru Therry Giappiconi frá Frakklandi, Marie

Louise Riesthuis frá Hollandi, Philip Gill frá Bret-

landi og Hellen Niegaard frá Danmörku.

Bókasafiiið 19. árg. 1995   93

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96