Ennfremur eru kennd námskeið um aðferðafræði og aðferðir í félagsvísindum í öðrum skorum félagsvís- indadeildar sem nemendum í bókasafns- og upplýsinga- fræðiskor er ætlað að ljúka. I námskeiðum fer kennsla fram í formi fyrirlestra; einstaklings- og hópverkefna, þar sem nemendur kynna gjarnan verkefni sín fyrir nemendum og kennara; æfingatíma í tölvuveri; heim- sókna á bóka- og skjalasöfn og vinnu á starfsvettvangi undir leiðsögn sérfræðinga. Lengst af var talsverð áhersla lögð á starfsþjálfun á bókasöfnum í náminu og nemendum gert skylt að skila tilteknum einingafjölda í vinnu á starfsvettvangi. Fyrir tæpum áratug reyndist óhjákvæmilegt vegna fjárskorts að leggja niður svo til alla starfsþjálfun á bókasöfnum. Það hefur haft í för með sér að ekki hefur verið hægt að skylda nemendur til þess að ljúka tilteknu námi á vettvangi. Þó hefur starfsfólk einstaka bókasafna tekið að sér leiðbeina nemendum í vettvangsnámi í formi valnámskeiðs. Eins og flestir eru sammála um var það mikil afturför þegar ekki var lengur hægt að veita starfs- þjálfun sem formlegan hluta námsframboðs. Ljóst var að leita þyrfti nýrra leiða varðandi starfsþjálfun. Áður en formleg vinna við það hófst innan skorarinnar vildi svo til haustið 2000 að Stefanía Júlíusdóttir, þáverandi forstöðumaður Bókasafns Landspítala - Háskólasjúkrahúss lagði til að rætt yrði hvort hægt væri að koma á fót formlegu samstarfi milli bóka- safns spítalans og bókasafns- og upplýsingafræðiskor- ar. Þeirri tillögu var tekið fegins hendi af hálfu skorar og úr varð fyrsti formlegi samningurinn um samstarf milli tiltekins bókasafns annars vegar og bókasafns- og upplýsingfræðiskorar hins vegar. Samningurinn var undirritaður í desember 2000 og felur í sér samstarf um nemendavinnu í ýmsu formi báðum aðilum til hags- bóta. Hvorugur aðili innir af hendi peningalega greiðslu (Samstarf Bókasafns Landspítala - Háskólasjúkrahúss Hringbraut og Bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands, 2000). í framhaldi af undirritun fyrsta samningsins um samstarf var haft samband við forstöðumenn ýmissa bókasafna og ennfremur voru haldnir kynningarfundir um málefni skorar og hugsanlegt samstarf fyrir bóka- safns- og upplýsingafræðinga í ýmsum faghópum. Fyrsti kynningarfundurinn var haldinn fyrir forstöðu- menn almenningsbókasafna í maí 2002, annar fyrir forstöðumenn í náttúrufræðihópi í apríl 2004 og sá þriðji fyrir samstarfshóp bókasafnsfræðinga í fram- haldsskólum í október 2004. Eftirtaldir aðilar hafa nú gert samning um samstarf við skorina: Borgarbókasafn Reykjavíkur, Aðalsafn. Borgarbókasafh Reykjavíkur, Ársafn. Borgarbókasafn Reykjavíkur, Gerðuberg. Borgarbókasafn Reykjavíkur, Kringlusafn. Borgarbókasafn Reykjavíkur, Foldasafn. Borgarbókasafn Reykjavíkur, Seljasafn. Borgarbókasafn Reykjavíkur, Sólheimasafn. Bókasafn Fjölbrautaskóla Vesturlands. Bókasafn Flensborgarskólans. Bókasafn Garðabæjar. Bókasafn Hafnarfjarðar. Bókasafn Iðnskólans í Hafnarfirði. Bókasafh Kópavogs. Bókasafn Landspítala - Háskólasjúkrahúss. Bókasafn og upplýsingaþjónusta Listaháskóla íslands. Bókasafn Mosfellsbæjar. Bókasafn Náttúrufræðistofnunar. Bókasafn Reykjanesbæjar. Bókasafh Seltjarnarness. Bókasafn Sjómannaskólans. Bókasafn Veðurstofu Islands. Menntasmiðja Kennaraháskóla íslands. Samningarnir eru að mestu leyti samhljóða fyrsta samstarfssamningnum sem gerður var og í þeim felst meðal annars eftirfarandi: Að taka á móti hópum nemenda í heimsókn hluta úr degi. Að taka einstaka nemendur í vettvangsnám í eina viku í senn. Að veita upplýsingar nemendum sem vinna rannsóknarverkefni um starfsemina. Að bjóða nemendum upp á að vinna rannsóknarverkefni sem yrði hluti náms þeirra með umsjón starfsmanns sem skorin samþykkir. Samstarfið við bókasöfnin er háð því að aðstæður leyfi á hverjum stað á þeim tíma sem leitað er eftir. Ennþá er unnið að því að leita eftir samstarfi við fleiri söfn og eru forstöðumönnum framangreindra safna færðar innilegar þakkir fyrir velvild í garð skorarinnar og faglegan metnað fyrir hönd fræðigreinarinnar. Af þessum sökum bendir nú allt til þess að brátt verði hægt að bjóða öllum nemendum upp á vettvangsnám sem yrði hluti af skyldunámi í bókasafns- og upplýs- ingafræðiskor. í ýmsum deildum og skorum Háskóla íslands eru í boði námskeið sem falla vel að námi í bókasafns- og upplýsingafræðiskor og hafa nemendur í grunnnámi fengið nám metið úr öðrum deildum inn í nám sitt í bókasafns- og upplýsingafræði. Námskeið á fram- haldsstigi í öðrum greinum henta ennfremur nemend- um sem eru í framhaldsnámi í skorinni. Má þar nefna námskeið um þjónustumat í uppeldis- og menntunar- fræðiskor, námskeið um stjórnun menningarstofnana BÓKASA FNIÐ 29. ARG. 2005 13