Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						fjármagnar rannsóknina greiði fyrir útgáfu. Höfundar

halda útgáfuréttinum og veita leyfi fyrir óhindruðum

aðgangi að greinum sínum.

Höfundar gera þá ráð fyrir að hluta af vísindafénu

þurfi að nota til þess að gefa út greinina. Allar greinar

eru aðgengilegar og varðveittar hjá PubMed og koma

því fram í leit í gagnagrunnum á borð við Medline

(19).

The Public Library of Science (PLoS) eru sam-

tök vísindamanna og lækna sem eru rekin án gróða.

Markmiðið er að gefa út vísindagreinar á rafrænu

formi, sem er aðgengilegt ókeypis á Vefnum. Greinar

eru aðgengilegar strax eftir birtingu. Til þess að nálg-

ast þessi markmið hafa þeir gefið út tvö tímarit. PLoS

Biology, var fyrst gefið út í október 2003, og PLoS

Medicine, var gefið út fyrst í október 2004.

PLoS starfar í samvinnu við vísindamenn, vísinda-

félög, vísindastofnanir sem fjármagna rannsóknir og

aðra útgefendur sem gefa út samkvæmt hugmynda-

fræði OA (20).

Varðveisla og aðgengi

Samhliða hugmyndinni um OA hefur umræðan einnig

beinst að varðveislu rafrænna greina og hefur það verið

nefnt Open Archives Initiative (OAI) (21). Samkvæmt

þessari hugmynd eru háskólar hvattir til að varðveita

allt fræðiefni á rafrænu formi og gera það aðgengilegt

öllum án áskriftargjalds.

Talað er um grænu leiðina í útgáfu, þar sem höf-

undar semja þannig við útgefendur að vísíndagreinar

þeirra megi einnig varðveita í rafrænu geymslusafni

hjá þeirri stofnun sem þeir starfa hjá. Utgefendur

samþykkja að þetta efni megi vera aðgengilegt öllum.

í dag hafa 92% útgefenda samþykkt grænu leiðina

og eru aðgengilegar upplýsingar á Vefnum yfir þessa

útgefendur. Háskólar þurfa því aðeins að kynna sér

hvaða útgefendur þetta eru og hvaða reglur eru í gildi

frá hverjum útgefanda. í sumum tilvikum má ekki

veita opinn aðgang að greinum fyrr en sex mánuðir

eru liðnir frá því að greinin birtist hjá útgefenda.

Semja þarf sérstaklega við þá útgefendur sem eru ekki

á þessum lista.

Höfundar eru hvattir til að vera meðvitaðir um þessa

leið og áhersla lögð á að þetta sé þeim í hag þar sem

stærri lesendahópur muni hafa aðgang að vísindagrein-

um þeirra. Þannig fá þeir fleiri tilvitnanir sem eykur

virðingu þeirra og auðveldar starfsframa og framgang

þeirra innan þeirrar stofnunar sem þeir starfa við.

Háskólar eru hvattir til að hvetja höfunda sína til að

velja þessa leið. Háskólar eru enn fremur hvattir til að

setja á stofn varðveislusafn innan vébanda sinna.

Einnig eru vísindastofnanir og háskólar hvött til

að þess að vera með skriflega yfirlýsingu þar sem

fram kemur að horft verði á þann fjölda tilvitnana sem

verður til vegna aðgengis að einstakri grein í stað sér-

staks tímarits „Open Access Initiative Statement" eða

OAIS. Þar með liggur fyrir formlegur vilji stofnana

til að varðveita vísindaskrif, birta þau og veita ókeyp-

is aðgang að þeim. Þar með ber stofnunin ábyrgð á

vísindaefni sínu. OAI gengur út frá því að ólík kerfi

geti samnýtt upplýsingar á Vefnum með því að styðj-

ast við alþjóðlega staðla og má þar nefna „Protocol

for Metadata Harvesting". Samkvæmt honum eru

upplýsingar um til dæmis höfund titil og efnisorð

allar skráðar á sama hátt og varðveittar á sambæri-

legu svæði á Vefnum. Rafrænt efni sem er vistað er til

dæmis efni sem ekki er búið að gefa út, útgefið efni og

bókakaflar. Það verður að koma fram hver gaf efnið út,

hvort það var höfundur eða útgefandi. Einnig verða að

koma fram upplýsingar um höfundarétt, svo sem hvort

höfundur hafi afsalað sér réttinum til útgefanda eða

haldið réttinum að öllu leyti eða að hluta til.

Enn á eftir að þróa OAI frekar en það er mikilvægt

til þess að verkefnið heppnist. Helsti kostur geymslu-

safna er auðveldara aðgengi að vísindagreinum og þar

með verða öll samskipti auðveldari og tilvísanir í verk-

in augljósari. Sérhver grein er metin en ekki aðeins

einstök tímarit (22).

SHERPA verkefnið

Bretar settu á laggirnar verkefni sem heitir SHERPA

í umsjón háskólans í Nottingham. Innan SHERPA

eru nú 13 geymslusöfn helstu háskóla Bretlands.

Verkefnið sem kallast „Focus on Access to Institutional

Resources" (FAIR) er hluti af verkefnum nefndar sem

heitir „The Joint Information Systems Committee"

(JISC). Þessi verkefni styðja varðveislu vísindaefnis

þar sem efnið er aðgengilegt um Vefinn. Með þvi að

varðveita og gera vísindaefni aðgengilegt er framþróun

vísinda og þekkingar tryggt í samfélaginu. Markmið

SHERPA er að setja upp 13 geymslusöfn sem tileinka

sér OAI Metadata varðveislustaðla og OAIPMH hug-

búnað fyrir rafrænt efni.

Lögð er áhersla á gæði. Með varðveislu þessara

gagna er markmiðið að styrkja þekkingarsamfélagið

og þær stofnanir sem taka þátt í verkefninu. Þeirra

markmið er að starfa með þeim sem varðveita vísinda-

gögn (9).

Alþjóðleg samvinna um geymslusafn

Wellcome Trust stærsta líftækni- og læknisfræði-

rannsóknarstofnun Bretlands og National Library

of Medicine í Bandaríkjunum, sem er miðsafn

Bandaríkjamanna í heilbrigðisvísindum, hafa fundað

um samvinnu um geymslusafn. Hugmyndin er að þar

yrðu vistaðar og gerðar aðgengilegar ritrýndar vísinda-

greinar frá Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi aðgangur

á að vera byggður á OAI hugmyndafræðinni.

20

BÓKASAFNID 29. ÁRG. 2005

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84