r A leið til upplýsingar Saga Bókavarðarfélags íslands, aðildarfélaga þess og Félags bókasafnsfræðinga Starfsfólk bókasafna hefur gjarnan haft þá ímynd að það sé ekki fyrir að trana sér fram eða vekja mikla athygli á sínum störfum og að því finnist best að vinna verk sín í hljóði. Svipaða sögu má segja um félagsstörf þeirra. Það hefur ekki farið hátt í samfélagsumræð- unni hvað starfsfólk bókasafna er að hafast að á þeim vettvangi. Ekki eru samt allir á því að saga þessarar stéttar eigi að fara hljótt og þar á meðal eru þeir sem sátu í stjórn Upplýsingar árið 2001, en þar var ákveðið að láta rita sögu bókavarða- og bókasafnsfræðingastéttarinnar allt frá stofnun Bókavarðafélags íslands árið 1960 til fyrstu ára Upplýsingar, nýs sameinaðs fagfélags þess- ara starfshópa. Friðrik G. Olgeirsson, sagnfræðingur, var ráðinn til verksins sama ár og honum til aðstoðar var skip- uð ritnefnd sem í sátu Þórdís T. Þórarinsdóttir, for- maður Upplýsingar, Guðrún Pálsdóttir, Hulda Björk Þorkelsdóttir, Ingibjörg S. Sverrisdóttir og Kristín Indriðadóttir. Ritnefnd aðstoðaði við efnisöflun, las handritið yfir, safnaði myndum, vann ýmsar sér- skrár og aflaði fjár til útgáfu verksins. Auk þess voru Einar Sígurðsson, Hrafn A. Harðarson, Krístín H. Pétursdóttir, Sigrún Klara Hannesdóttir og Þórdís Þorvaldsdóttir fengin til að lesa handritið yfir. Bókin er að mestu unnin upp úr gögnum frá félög- unum sjálfum, fundargerðabókum og bréfasafni, og með viðtölum við félagsmenn, sérstaklega þá eldri, sem tóku þátt í stofnun fyrri félaga. Safnað er saman og komið á prent staðreyndum um sögu félaganna og ýmsar skrár auðvelda lesandanum að átta sig á gangi Ritnefnd bókarinnar. Guðrún Pálsdóttir, Kristín Indriöadóttir, Þórdís T. Þórarinsdóttir, Hulda B. Þorkelsdóttir og Ingibjörg S. Sverrisdóttir. Ljósm. Alda Sverrisdrjttir Kristin H. Pétursdóttir og Kristín Indriðadóttir skoða ritið í útgáfuteitinu. mála. í bókinni eru meðal annars skrár yfir stjórnir og stjórnarmeðlimi, skrár yfir rita og blaðaútgáfu félag- anna, landsfundarnefndir, heiðursfélaga, ritnefndir, fulltrúa í erlendum nefndum og fjölþjóðlegar ráðstefn- ur á íslandi um bókasafnsmál. Líta má á bókina Á leið til Upplýsingar sem nokk- urs konar beinagrind fyrir þá sem vilja kynna sér nánar það merkilega starf sem unnið var í þessum Ljósm. Alda Svcrrisdóttir Svipmynd úr útgáfuteitinu. 50 BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005