félögum en það starf fléttast óneitanlega mjög saman við sögu bókasafna og bókasafns- og upplýsingafræði á Islandi. Bókin er prýdd fjölda mynda og mikil vinna var lögð í að leita uppi myndir af félagsmönnum og frá félagsstarfinu sem gefur bókinni skemmtilegt yfir- bragð. Ritið er góður grundvöllur fyrir seinni tíma greiningarvinnu og rannsóknir og sem uppsláttarrit léttir hún að nokkru leyti þeirri kvöð af rannsakendum framtíðarinnar að kafa djúpt í frumgögn félaganna. Þjónustumiðstöð bókasafna, fjármálaráðuneytið og Menningarsjóður styrktu útgáfuna. Útgáfuteiti fyrir bókina var haldið á landsfundi Upplýsingar þann 16. september 2004. í ritdómi eftir Jón Þ. Þór sem birtist í Morgun- blaðinu þann 12. október 2004 segir meðal annars. Þessi bók er að öllu leyti ágætlega úr garði gerð. Frásögn höfundar er lipur og læsileg og gott gagn er að ýtarlegum skrám í bókarlok. Margar myndir prýða bókina og segja sumar mikla sögu. Bókin er auðvitað sjálfsögð eign á hverju bókasafni og starfsmenn þeirra geta verið stoltir af sinni sögu. f.h. ritnefndar Hulda Björk Þorkelsdóttir MJÓLKURBÚ FLÓAMANNA Listdansskóli Islands Engjateigi 1-105 Reykjavík JA, VIÐ ERUM GAMALDAGS Gutenberg Síöumúla 16 Sími 545 4400 gutenberg.is ef það er gamaldags að klára alltaf málin Aö geta boðið nýjustu tækni skiptir miklu máli í prentun og þess vegna litum við hjá Gutenberg á slíkt sem sjálfsagðan hlut. En við vitum líka að nýjasta tækni kemur aldrei i staðinn fyrir fólk sem er alltaf tilbúið að klára málin, sama hvað klukkan er og hvaða dagur er. Það er þessi hugsun sem skipað hefur Guten- berg sæti meðal fremstu prent- smiðja landsins í 100 ár. Á morgun fögnum við nýjum degi og nýjum verkefnum með þessu sama gamaldags" hugarfari. 51