Verklagsreglur um útgáfu Bókasafnsins 1. Útgefandi Upplýsing - Félag bókasafns- og upplýsinga- fræða, Lágmúla 7, 108 Reykjavík. 2. Hlutverk og markmið 2.1 Hlutverk Bókasafnið er fagtímarit bókasafnsfræðinga, bókavarða og áhugamanna um bókasafna- og upplýsingamál. 2.2 Útgáfutíðni Bókasafnið er ársrit og kemur út í kringum dag bókarinnar ár hvert (23. apríl). Upplag blaðsins er 700-1000 eintök samkvæmt nánari ákvörðun ritnefndar. 2.3 Útbreiðsla Allir skuldlausir félagar Upplýsingar fá Bóka- safnið sent í áskrift, skv. lista frá stjórn. Ritnefnd fær nafnalista hjá stjórn Upplýsingar og pantar hann með viku fyrirvara. Einnig sendir ritnefnd út aðrar áskriftir eftir eigin lista. Ritnefnd leitast við að vinna að aukinni útbreiðslu blaðsins, til dæmis með dreifingu á kynningareintökum og með lausasölu. Stjórn Upplýsingar sendir út þau ritaskiptaeintök sem eru á hennar vegum. 2.4 Vefsetur Á vefsetri blaðsins er birtur útdráttur eða upphaf greina og jafnframt bent á að blaðið fái félagar í Upplýsingu ókeypis og áhugasamir eru hvattir til að ganga í félagið. Einnig er bent á að kaupa megi blaðið í lausasölu á skrifstofu Upplýsingar. Á vef- setri blaðsins kemur fram netfang Upplýsingar, verð blaðsins og greiðslumáti. 3. Stjórnun 3.1 Ritnefnd Ritnefndin sér um að gefa út og dreifa Bókasafn- inu. Ritnefnd starfar sjálfstætt og ber faglega og fjárhagslega ábyrgð gagnvart Upplýsingu - Félagi bókasafns- og upplýsingafræða. Ritnefnd Bókasafnsins er skipuð fimm fulltrúum, sem kosnir eru á aðalfundi Upplýsingar í maí ár hvert. Skipunartími hvers ritnefndarfulltrúa er lágmark tvö ár. Ritstjóri skal kosinn sérstaklega til 3ja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn. Ritnefnd er heimilt að fela utanaðkomandi aðila söfnun auglýsinga fyrir blaðið. Ritnefnd kemur saman að minnsta kosti einu sinni fyrir sumarleyfi ár hvert og skiptir með sér verk- um. Ritnefnd kýs meðal annars ritara og gjald- kera úr sínum hópi. Nefndarmenn annast söfnun greina og mynda, lestur prófarka og bera ábyrgð á öflun auglýsinga. Auglýsa skal eftir efni í blaðið í júníhefti Fregna ár hvert. Ritnefnd skilar reikningum (rekstrarreikningi, ársreikningi) og starfsskýrslu vegna útgáfu Bóka- safnsins til útgefanda sem kynnt eru á aðalfundi Upplýsingar að vori. 3.2 Ritstjóri Ritstjóri er ábyrgðarmaður blaðsins. Hann er for- maður ritnefndar og kallar hana saman til funda. Ritstjóri annast samskipti við prentsmiðju og leit- ar jafnan hagstæðasta tilboðs í samráði við gjald- kera. Hann býr handrit til prentunar og skiptir verkum með nefndarmönnum. Ritstjóri gerir skýrslu um störf ritnefndar í lok hvers starfsárs og skilar til útgefanda fyrir aðal- fund Upplýsingar að vori. 3.3 Ritari Ritari semur fundargerðir ritnefndar og sendir nefndarmönnum eigi síðar en viku eftir hvern fund. 3.4 Gjaldkeri Gjaldkeri sér um fjármál Bókasafnsins. Hann gerir fjárhagsáætlun í samráði við aðra nefndar- menn og tekur saman ársreikninga. Gjaldkeri inn- heimtir áskriftir og auglýsingar og greiðir kostnað við blaðið, svo sem prentun, gíróseðla og fleira. 3.5 Umsjónarmaður vefseturs Umsjónarmaður vefseturs sér um að setja útdrátt úr greinum blaðsins eða upphaf þeirra á vef- setur þess www.bokasafnid.is. Ef tenglar eru í texta skal sjá til þess að þeir séu virkir en tengl- ar eru ekki uppfærðir eftir að efnið er komið á Netið. Umsjónarmaður vefseturs getur tekið út óvirka tengla. Þau tilvik eru merkt sérstaklega. Umsjónarmaður vefseturs skilar ársfjórðungs- skýrslu til ritnefndar vegna heimsókna á vefsetur blaðsins. 52 BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005