Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Ritdómur

A leið til upplýsingar. Saga Bókavarðafélags íslands,

aðildarfélaga þess ogFélags bókasafnsfrœðinga.

Friðrik Gunnar Olgeirsson.

Reykjavík: Upplýsing, 2004.

Aundanförnum áratugum hefur ritun sögulegra

rita verið í miklum blóma. Framan af var

einkum stjórnmálasaga og persónusaga nær

eingöngu færð í letur. Smám saman beindist athygli

sagnfræðinga að öðrum þáttum: atvinnusögu, félaga-

sögu, menningarsögu en þó einkum byggðasögu sem

hefur verið mjög gróskumikil.

Þegar fréttist að stjórn Upplýsingar hygðist ráða

sagnfræðing vegna ritunar sögu Bókavarðafélags íslands

og allra aðildarfélaganna, hefur sjálfsagt marga rekið í

rogastans. Síðari hluti nýliðinnar aldar er tímabil þar

sem starfsmenn bókasafna eru flestir hverjir enn ofar

moldu og því geti verið erfitt að rita sögu um tímabil

sem er okkur svo nálægt í tíma. í sagnfræði er þetta tal-

inn vera mikill kostur þar sem unnt er að fá nákvæmar

upplýsingar um nánast allt sem ella væri vafamál þegar

ekki næst lengur til heimildamanna sem hafa bestu vit-

neskju um það sem fundargerðarbækur þegja um.

Ég fagnaði þegar spurðist að sveitungi minn í

Mosfellsbæ, Friðrik G. Olgeirsson hefði verið ráðinn

að ritun bókarinnar. Var rökstuðningur minn einkum sá,

að Friðrik væri mjög vandvirkur og vel sjóaður í heimi

sagnfræði enda hefur hann á undanförnum 2 áratugum

lagt að baki hvert stórvirkið á fætur öðru. Fyrst var það

byggðasagan um Ólafsfjörð í 3 bindum: Hundrað ár í

Horninu. Meðan þessi byggðasaga kom út lauk Friðrik

kandidatsprófi í sagnfræði og fjallar ritgerðin sérstak-

lega um atvinnusögu Ólafsfjarðar en Friðrik á rætur

sínar þar. í kjölfarið kom 80 ára saga sparisjóðsins í

Ólafsfirði og ennfremur Byggðin á Kleifum og dálítið

kver um ættfræði hvort tveggja tengt Ólafsfirði. Nú

yfirgefur hann Eyjafjörðinn og tekur sig til að rannsaka

og rita sögu eins afskekktasta byggðalags landsins,

Langaness á norðaustur horni landsins allt frá land-

námi fram á okkar daga. Einnig hefur Friðrik ritað um

Lánasjóð íslenskra námsmanna. Næst síðasta sagn-

fræðirit Friðriks nefnist Alifuglinn, saga alifuglaræktar

á íslandi sem Félag eggjaframleiðenda gaf út 2003.

Bæði þessi rit eru sögð vel heppnuð og mig minnir að

þau hafi fengið mjög vinsamlega umfjöllun í blöðum.

Og að lokum er sú bók sem hér liggur fyrir: A leið til

upplýsingar, saga Bókavarðafélags Islands, aðildarfé-

lagaþess og Félags bókasafnsfræðinga.



Þegar skoðaðir eru ritdómar Friðriks um ýmsar

bækur sem hann hefur birt einkum í Sögu, má sjá

vinnubrögð hans og hvernig hann metur verk annarra.

Ritdómur hans um Sögu Húsavíkur þótti óvæginn á

sínum tíma enda var sú saga rituð af ýmsum mönnum

á löngu tímabili með mislöngum hléum og auk þess

í hjáverkum. Slíkt er eitur í augum Friðriks enda er

háttur hans að vinna ötullega að þeim verkefnum sem

honum hefur verið trúað fyrir. Hann vill hvorki kák né

hálfvelgju. Sagnfræðingurinn á að vinna verk sitt hratt

og vel, leggja alla sína reynslu og þekkingu að veði.

Friðrik er mjög glöggur, sér misræmi í framsetningu í

2ja binda verki um saltfisk í sögu íslendinga sem kom

út hjá forlagi Hins íslenska bókmenntafélags 1997.

Hann hrekur gamlar þjóðsögur sem oft vilja slæðast

inn í sagnfræðirit og eru teknar sem góðar og gildar

heimildir. Þannig var lífseig þjóðsaga um að Tryggvi

Gunnarsson (1835-1917) alþingismaður og bankastjóri

hefði kennt Norðlendingum að salta fisk en salt hafði

verið notað við fiskverkun í öllum landsfjórðungum

allt frá tímum verslunareinokunar Dana á íslandi og

jafnvel lengur. Friðrik leggur áherslu á gott málfar

og alþýðlega orðnotkun að ógleymdri fagmannlegri

framsetningu, aðferðalega réttri heimildanotkun, gerð

góðra skráa og fleiri praktísk atriði.

Bókin Á leið til upplýsingar er auk þess þeim megin-

kostum búin, að vera læsileg lesendum bæði lærðum

sem leikum og ekki er slegið af neinu í fræðilegum

kröfum. Mér finnst hún mjög aðgengileg, ríkulega

skreytt myndum og sýnishornum af andlegum afurðum

bókavarða og bókasafnsfræðinga gegnum tíðina, oft

forsíðum bæklinga, ritlinga og tímarita sem komið hafa

út á undanförnum áratugum á vegum félaganna.

Með allt þetta í huga er ekki létt verk að finna

agnúa á nýjustu bók Friðriks G. Olgeirssonar. Fagleg

vinnubrögð sem einkenna ritið nálgast að gera bókina

fullkomna. En rýnum ögn í bókina og reynum að finna

einhvers staðar hnökra.

54

BÓKASAFNID 29. ÁRG. 2005

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84