Minningarorð Herborg Gestsdóttir 1913-2005 í febrúar s.l. lést Herborg Gestsdóttir starfsmaður Borgarbókasafns Reykjavíkur. Útför hennar fór fram í kyrrþey. Herborg fæddist 20. apríl 1913 að Björnólfs- stöðum í Langadal í Austur - Húnavatnssýslu. Hún fluttist ásamt móður sinni til Reykjavíkur að loknu barnaskólanámi. Herborg hóf störf við Borgarbókasafn Reykja- víkur (þá Bæjarbókasafn Reykjavíkur) 1. október 1938 og lét af störfum 31. ágúst 1981. Var safnið því starfsvettvangur hennar í nær 43 ár. Þegar hún hóf störf var safnið í Ingólfsstræti 12. Safnið hafði Herborg notað frá því hún fluttist til Reykjavíkur enda las hún mikið strax í barnæsku. Lengst af vann Herborg sem skrifstofustjóri og var í raun hægri hönd borgarbókavarða frá opnun safnsins í Esjubergi við Þingholtsstræti árið 1954. Hún sá um daglegan rekstur, þ.m.t. starfsmanna- hald og innkaup safnkosts. Þegar skrifstofa safnsins fluttist í nýtt húsnæði 1981 ákvað Herborg að vera ekkert að færa sig um set úr Esjubergi og sagði starfi sínu lausu. Kvaðst hún ekki geta hugsað sér að flytja í þetta nýja hús- næði enda í raun komin á eftirlaunaaldur. Herborg var stórfróð og víðlesin. Hún las óhemjumikið og fjölbreytt efni á ýmsum tungu- málum og fékkst hún lítils háttar við þýðingar t.d. á norrænum smásögum. Var hún óspör á að benda starfsmönnum og gestum safnsins á góða höfunda og bækur, sem hún hafði lesið, hvort sem um var að ræða glæpasögur á erlendum málum eða bækur úr jólabókaflóði" íslenskra bóka. Hún hafði ákveðnar skoðanir á því hvað væri þess virði að lesa; jafnvel oftar en einu sinni. íslendingasögurnar hafði hún vel á valdi sínu. Hún var því fengin til að taka þátt í spurninga- keppni í útvarpi og stóð hún sig afbragðs vel en hún valdi sér Sturlungu sem viðfangsefni. Eftir að hún hætti að vinna sótti hún sér bækur sjálf í Borgarbókasafn en seinustu árin naut hún þjónustu Bókarinnar heim" því áhugi á að fylgj- ast með bókaútgáfu, innlendri sem erlendri, var alltaf til staðar. Hún fylgdist einnig alla tíð mjög vel með þjóðmálum og lá ekki á skoðunum sínum um það sem hún taldi að betur mætti fara. Herborg var fyrsti formaður Bókavarðafélags íslands 1960 og gegndi því starfi í 3 ár. Herborg var gerð að heiðursfélaga Bókavarðafélagsins árið 1980. Anna Torfadóttir