Þórdís T. Þórarinsdóttir Upplýsing fimm ára - yfirlit yfir starfsemi félagsins Upplýsing - Félag bókasafns- og upplýsingafræða varð til 1. janúar 2000 við sameiningu fjögurra íslensk- ra bókavarðafélaga og er fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða, meðal annars með það markmið að gangast fyrir faglegri umræðu, efla skilning á mikil- vægi íslenskra bókasafna og upplýsingamiðstöðva í þágu menningar, menntunar og vísinda og efla sam- vinnu þeirra. Upplýsing leysti forverana af hólmi og tók við réttindum þeirra og skyldum. Félögin sem sameinuðust í Upplýsingu voru Bókavarðafélag íslands ásamt aðild- arfélögum, Félagi um almenningsbóka- söfn og skólasöfn og Félagi bókavarða í rannsóknarbókasöfnum, og Félag bóka- safnsfræðinga. Bókavarðafélag íslands var fyrsta bókavarðfélagið sem stofnað var hér á landi og stofndagur þess var 4. desember 1960. Félag bókasafnsfræð- inga var stofnað 10. nóvember 1973. I Bókasafninu árið 2000 var gerð grein fyrir sameiningarferlinu1 og verður það ekki rakið frekar hér. I Fregnum Fréttabréfi Upplýsingar hefur verið sagt reglulega frá starfsemi félagsins þannig að hér verður aðeins dregið fram það helsta í starfseminni. Um frekari upplýsingar vísast til umfjallana í Fregnum þar sem ársskýrslur, ársreikningar, framkvæmdaáætl- un, skýrslur fastanefnda og yfirlit yfir þá sem starfa fyrir félagið hafa ennfremur verið birt í júníblaðinu ár hvert. í bókinni Á leið til upplýsingar er einnig sagt frá fyrstu starfsárum félagsins.2 Stjórnir Upplýsingar fyrstu fimm árin Fyrsta stjórn Upplýsingar var kosin á stofnfundi 26. nóvember árið 1999. Á fundinum voru einnig meðal annars fyrstu lög félagsins samþykkt. Samkvæmt 5. grein laganna er hvert kjörtímabil stjórnarmanns tvö ár og má hver stjórnarmaður sitja þrjú kjörtímabil samfellt. I fyrstu lögunum var gert ráð fyrir sjö manna stjórn en með lagabreytingu á aðalfundi 15. maí 2001 var stjórnarmönnum fækkað í fimm. Formaður og vara- formaður eru kjörnir sérstaklega en að öðru leyti skipt- ir stjórnin með sér verkum. Alls sátu 13 félagsmenn í stjórn fyrstu fimm árin, allt frá hálfu til þriggja kjör- tímabila. Þrír sátu hálft kjörtímabil en mjög æskilegt væri að stjórnarmenn sítji að minnsta kosti tvö kjör- tímabil til að skapa samfellu og festu í stjórnarstarfinu. Á öllum aðalfundunum hefur eingöngu einn boðið sig fram í hvert embætti. Stjórnin hefur verið skipuð eftirfarandi félagsmönnum: Formenn Þórdís T. Þórarinsdóttir var kjörinn for- maður á stofnfundi félagsins og hefur starfað sem formaður frá stofnun þess og líkur sínu síðasta kjörtímabili, sam- kvæmt lögum, á aðalfundi félagsins 9. maí 2005. Varaformenn Svava H. Friðgeirsdóttir var kjörinn vara- formaður félagsins á stofnfundinum og gegndi því starfi í tvö kjörtímabil eða þar til á aðalfundi 10. maí 2004 að Vala Nönn Gautsdóttir, meðstjórnandi og vef- stjóri, tók kjöri sem varaformaður. Gjaldkerar Lilja Ólafsdóttir var fyrsti gjaldkeri félagsins og gegndi því starfi þar til að Fanney Sigurgeirsdóttir, meðstjórnandi, tók við af henni á fyrri hluta ársins 2005. Lilja lýkur sínu þriðja kjörtímabili á aðalfundi 2005 og gengur þá úr stjórn í samræmi við lög félags- ins. Ritarar Fyrsti ritari félagsins var Hólmfríður Tómasdóttir en hún gekk úr stjórn á aðalfundi 15. maí 2001. Við rit- arastarfinu tók þá Ingibjörg Hafliðadóttir sem gekk úr stjórn eftir eitt kjörtímabil á aðalfundi 12. maí 2003. Þá tók Guðbjörg Harðardóttir við ritarastarfinu en hún gekk úr stjórn á aðalfundi árið eftir 10. maí 2004 og tók Ingibjörg Baldursdóttir þá við sem ritari. Þórdís T. Þórarínsdóttír; 2000, bls. 54-59. 2 Friðrik G. Olgeirsson, 2004, bls. 241-256. 58 BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005