Stjórn Upplýsingar á 80. fundi sínum þann I5.febrúar 2005. Sitjandif.v. Lilja Ólafsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Standandif.v. Vala Nönn Gautsdóttir, Ingibjörg Baldursdóttir og Fanney Sigurgeirsdóttir. Meðstjórnendur Fyrstu meðstjórnendur félagsins voru þau Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, Jenný K. Valberg og Þórhallur Þórhallsson. Þau gengu öll úr stjórn á aðalfundi 15. maí 2001. Harpa Rós Jónsdóttir var þá kosin með- stjórnandi og var jafnframt vefstjóri en gekk úr stjórn á aðalfundi árið eftir. Vala Nönn Gautsdóttur kom þá inn í stjórnina sem meðstjórnandi og var á sama hátt jafnframt vefstjóri. Fanney Sigurgeirsdóttir var svo kosin meðstjórnandi á aðalfundi 10. maí 2004 og tók við gjaldkerastarfinu á árinu 2005 sem áður segir. Vefstjórar Fyrsti vefstjóri félagsins var Hafdís Dögg Hafsteins- dóttir en hún gekk, sem áður segir, úr stjórn á aðal- fundi 15. maí 2001. Við vefstjórninni tók Harpa Rós Jónsdóttir sem gekk úr stjórn á aðalfundi 13. maí 2002. Þá tók Vala Nönn Gautsdóttir við vefstjórninni og hefur hún séð um vef félagsins síðan. Félagsaðild og félagsmenn Rétt til félagsaðildar að Upplýsingu, samkvæmt 3. gr. laga þess, á í stuttu máli allt starfsfólk bókasafna- og upplýsingamiðstöðva, áhugamenn um markmið félags- ins auk bókasafna, skjalasafna og annarra stofnana. Frá Jólagleði Upplýsingar 2004, haldin í Bókasafni Hafnarfjarðar. I tilefni afflmm ára afmli félagsins tilnefndi stjórnin átta heiðurs- félaga og sjást sex þeirra á myndinni taka við heiðursskjölum. F.v. Einar Sigurðsson, Erla Jónsdóttir, Hulda Sigfúsdóttir, Else Mia Einarsdóttir, Ólafur Pálmason og Óli J. Blöndal ásamt formanni Upplýsingar, Þórdisi T. Þórarinsdóttur. A myndina vantar Harald Guðnason og Lárus Zophoníasson sem áttu ekki heimangegnt. Stofnfélagar að Upplýsingu urðu allir sem skráðir voru í fyrri félög og voru það alls 518 einstaklingar og stofnanir. I apríl árið 2000 voru greiðsluseðlar sendir öllum stofnfélögum samkvæmt skilgreiningum frá- farandi stjórna fyrri félaga. í töflunni hér að neðan sést hvernig árgjöld félagsins hafa skilað sér. Yfirlit yfir félagsaðild og greidd árgjöld Samkvæmt 10. grein greinargerðar með lögum félags- ins er stjórn heimilt að taka af félagaskrá þá sem ekki hafa greitt árgjöld í tvö ár í röð. Stjórn hefur einnig mótað þá vinnureglu að fréttablaðið Fregnir og tíma- ritið Bókasafnið séu aðeins send til fullgildra félags- manna, það er þeirra sem ekki skulda félaginu árgjöld. Fríðinda og réttinda í félaginu njóta einnig aðeins fullgildir félagsmenn. Meginmarkmiðið með því er að virkir félagsmenn hafi sem minnstan kostnað af þeim sem ekki greiða félagsgjöldin. Þeim sem teknir eru af skrá vegna vanskila hefur fækkað jafnt og þétt og í árslok 2004 voru þeir 16 en ekki hafði verið tekið til reglulega í aðildarskrám allra fyrri félaga þannig að eftir að Upplýsing hafði starfað í tvö ár var þessi tala alls 96. Stjórn Upplýsingar hefur mótað þá stefnu að full- gildir félagsmenn njóti betri kjara af viðburðum sem Ár Greidd félagsgjöld í árslok Heiðurs-og eftir-launa félagar Félagar Alls Um-sókn-ir Úr-sagn-ir Ógreidd félags-gjöldí árslok Teknir afskrá vegna vanskila Alls Nemar Einstak-lingar Stofn-anir 2000 402 30 318 54 33 435 57 10 130 2001 390 23 317 50 39 429 43 8 110 2002 417 30 324 63 41 458 38 14 96 96 2003 427 3 357 67 47 474 33 11 41 43 2004 437 8 364 65 50 487 38 4 42 27 BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005 59