í félaginu og þau hvött til að ganga til liðs við það. Átakið skilaði um fimm nýjum félögum. Um 30% bókasafna og upplýsingamiðstöðva hér á landi eiga nú aðild að félaginu. Stjórnin hefur skilað ýmsu kynningarefni um félagið í erlendar skrár um félög á sviði bókasafns- og upplýsingafræði. Ennfremur stuttum greinum um félagið, t.d. í Information Europe, Summer 2000, s. 8, NORDINFO Express, 4/2001, s.4, Information Service Magazine, 3/2001, s. 28-29. Stjórnin tekur nú þátt í útgáfu kynningarefnis um norræn bókasöfn og bókavarðafélög sem dreift verður til allra þátttakenda á IFLA heimsráðstefnunni í Ósló (World Library and Information Congress) í ágúst 2005. Stjórn Upplýsingar lét hanna einkennismerki fyrir félagið sem notað er á bréfagögn þess og kynningar- efni, svo sem penna og nú síðast á barmmerki sem dreift var til félagsmanna á fimm ára afmælishátíð félagsins 26. nóvember 2004, sjá mynd bls. 58. Fyrirlestrar, fræðslufundir og fræðsluheimsóknir hafa verið haldin reglulega, þar sem félagsmenn hafa meðal annars kynnt lokaverkefni til meistaraprófs. Það er stefna stjórnar að gefa þeim sem ljúka framhaldsn- ámi í bókasafns- og upplýsingafræði kost á að halda fyrirlestur um lokaverkefni sín á vegum félagsins, á fræðslufundi eða landsfundi. Nýútskrifuðum nemum í bókasafns- og upplýs- ingafræði hefur verið gefinn kostur á að kynna loka- verkefni sín fyrir félagsmönnum á fræðslufundum en þeir hafa ekki sýnt því áhuga. Ennfremur hefur þeim verið boðið að birta útdrátt úr BA ritgerðum sínum í Fregnum og hafa nokkrir tekið því boði. Stjórn Upplýsingar stendur fyrir endurmenntun- arnámskeiðum í samvinnu við Endurmenntun Háskóla íslands. Skuldlausir félagar fá 10% afslátt af nám- skeiðum á sviði bókasafns- og upplýsingafræði. Að jafnaði eru þrjú til fimm námskeið skipulögð á hverri önn. Stjórn Upplýsingar vann í samstarfi við Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna (SFA) að mótun námskrár og undirbúningi náms í bókasafnstækni sem hófst sem dreifnám við Borgarholtsskóla 13. desember 2002. Námið var skipulagt sem nám á upplýsinga- og fjölmiðlabraut og ætlað ófaglærðu starfsfólki bóka- safna til að leysa af hólmi bréfanámskeið bókafulltrúa og ennfremur skipulagt sem nám fyrir nemendur í fram- haldsskóla. Fyrstu nemendurnir útskrifuðust í desem- ber 2004 og um þessar mundir er verið að ljúka undir- búningi við starfsþjálfunarþáttinn. Framvinduskýrslur um skipulagningu bókasafnstækni3 hafa birst reglu- lega í Fregnum, fréttabréfi félagsins. Þá má nefna árlega jólagleði félagsins sem oftast er haldin til skiptis á bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu og hafa söfnin stutt fagnaðinn myndarlega. Á síðustu jólagleði félagsins, sem bar upp á stofndag þess, var jafnframt fagnað fimm ára afmæli Upplýsingar. Af til- efninu voru átta félagsmenn útnefndir heiðursfélagar, sjá mynd bls. 59. Útgáfustarfsemi og viðurkenningar Á vegum Upplýsingar er gefið út tímaritið Bókasafnið sem er fagtímarit á sviði bókasafns- og upplýsinga- fræði. Tímaritið kemur út í lok apríl ár hvert. Sérstök ritnefnd hefur veg og vanda af útgáfu blaðsins, sjá vefsetur þess, www.bokasafnid.is. Bókasafnið hefur komið út með hléum frá árinu 1974 og í ár (2005) kemur 29. árgangur þess út. Stjórn Upplýsingar gefur út fréttabréfið Fregnir þrisvar á ári. Ritstjórn blaðsins mynda nú formaður og varaformaður félagsins. Fregnir hafa komið út óslitið frá árinu 1976 og í ár (2005) kemur út 30. afmælisárgangur þess og ætlunin er að brydda þá upp á nýbreytni í útgáfunni. Forverar Upplýsingar sáu til skiptis um útgáfuna og voru Fregnir gefnir út í A5 broti, þrisvar til fjórum sinnum á ári. Þegar stjórn Upplýsingar tók við útgáf- unni var fengið ISSN númer fyrir blaðið, brotinu breytt í A4 brot og umfang blaðsins jókst einnig til mikilla muna, jafnvel svo að kvartað er undan umfangi blaðsins en jafnframt hefur heyrst haft á orði að að það sé allt í Fregnum" þannig að í þessu sem öðru er erfitt að gera svo öllum líki. í Fregnum eru birtar frásagnir af starfi stjórnar og félagsins, frásagnir og skýrslur um starfsemi ýmissa fulltrúa og nefnda á vegum Upplýsingar auk frétta og greina um það sem er á döfinni í bókasafnaheiminum á íslandi og erlendis, auk frásagna af ráðstefnum sem félagsmenn hafa sótt. í júní árið 2001 samdi stjórn Upplýsingar við Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðing4 um ritun sögu fyrri bókavarðafélaga á íslandi og þá um haustið var stofnuð fimm manna ritnefnd höfundi til fulltingis. Fyrstu drög handrits lágu fyrir þá um haustið en þau þurftu verulegrar endurskoðunar við svo útgáfa bókar- innar dróst. Ritnefnd ástamt yfirlesurum fór yfir hand- ritið sem kom út í lok ágúst 2004 undir titlinum: Á leið til upplýsingar. Saga Bókavarðafélags íslands, aðildar- félagaþess ogFélags bókasafnsfræðinga. Bókinni var dreift á Landsfundi Upplýsingar um miðjan septem- ber 2004 og jafnframt haldið útgáfuteiti af tilefninu. Útgáfa bókarinnar er eitt viðamesta verkefhi stjórnar fram til þessa og hefur tekið í fjárhagslega þótt tekjur hafi komið inn af styrkjum og sölu bókarinnar. 3 Sjá t.d. lokaskýrslu í 1. tbl. Fregna 2003, bls. 3-5. 4 Þórdís T. Þórarinsdóttir, 2001, bls. 47-48. BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005 61