Stjórn Upplýsingar hefur skilað skýrslum og pistl- um um ýmis mál til aðila erlendis, má þar t.d. nefna skýrslu um bókasöfn og vitsmunalegt frelsi sem birt- ist í Libraries & Intellectual Freedom World report. Copenhagen, IFLA/FAIFE, 2001, sjá bls. 111-114. Einnig birtust upplýsingar í Intellctual Freedom in the Information Society, Libraries & the Internet, sjá bls. 108-109, sem sömu aðilar gáfu út árið 2003. Stjórnin hefur einnig birt þýðingar á eftirfarandi stefnuyfirlýsingum IFLA í Bókasafninu og á vefsetri Upplýsingar, www.upplysing.is: Yfirlýsing IFLA um bókasöfn og vitsmunalegt frelsi,5 Glasgow yfirlýs- ing IFLA um bókasöfn, upplýsingaþjónustu og vits- munalegt frelsiý Stefnuyfirlýsing IFLA um Netið^ og Stefnuyfirlýsing UNESCO/IFLA um skólasófn.% Bæklingur um fræðsluefni um nýtingu á upplýs- ingatækni liggur fyrir í handriti en útgáfa hans hefur dregist en verður vonandi á næstunni. Á aðalfundi Upplýsingar ár hvert eru veittar viður- kenningar fyrir bestu íslensku fræðibókina fyrir börn annars vegar og fullorðna hins vegar. Þar er haldið áfram þeirri hefð sem Félag bókasafnsfræðinga tók upp á 20 ára afmæli félagsins árið 1993. Árið 2002 var í fyrsta skipti veitt veforða Upp- lýsingar, það er viðurkenning fyrir besta vefsetur íslensks bókasafns eða upplýsingamiðstöðvar. Vef- orðan er veitt að fyrirmynd N VBF og verður næst veitt í tengslum við veitingu veforðu NVBF. Ráðstefnur og ferðastyrkir Landsfundur, sem er tveggja daga ráðstefna um bóka- safns- og upplýsingamál fyrir félagsmenn Upplýsingar, er haldinn annað hvert ár. Fyrsti Landsfundur Upp- lýsingar var haldinn á Akureyri haustið 2000 og var yfirskriftin Nýir, breyttir og betri tímar." Haustið 2002 var yfirskriftin Framtíðin er komin" og haustið 2004 Sameinum kraftana." Síðustu tveir Landsfundir, sem haldnir voru í Reykjavík, hafa verið sérstaklega vel sóttir eða af um 250 manns sem samsvarar meira en helmingi félagsmanna. Næsti Landsfundur (haustið 2006) verður haldinn á Suðurlandi og verður það jafn- framt 18. landsfundur bókavarða frá upphafi en fyrsti Landsfundurinn var haldinn í Reykjavík árið 1970. Sérstök landsfundarnefnd hefur veg og vanda af lands- fundum félagsins hverju sinni. Af ráðstefnum og málþingum sem stjórnin hefur haldið má auk þess til dæmis nefna Málþing um efnisaðgang að stafrænum gögnum í febrúar 2002, Málþing um áhrif viðskiptasamninga á starfsemi bók- asafna í október 2003 og Ráðstefnu um norrænt sam- starfum bókasafns og upplýsingamál í febrúar 2004. Félagið hefur einnig staðið fyrir fjölþjólegum ráðstefn- um hér á landi. Má þar til dæmis nefna ráðstefnurnar Upplýsingaþjónusta i rafrænu umhverfi, NVBF ráð- stefna í maí árið 2000, Upplýsingavorið, Nord I&D ráðstefna vorið 2001, Millisafnalán á stafrnni öld, NVBF ráðstefna í október 2002, Börn og tungumál, ráðstefna á vegum Norræns nets um barnabókasöfn og -menningu í maí 2003 og Vorráðstefnu NVBF í júní 2004. Sérstakar undirbúningsnefndir hafa séð um skipulagningu ofangreindra ráðstefna. Upplýsing hefur ennfremur styrkt aðrar erlendar ráðstefnur hér á landi, t.d. ARLIS Norden ráðstefnu á Akureyri í júní árið 2000, Creating Knowledge III á Akureyri í september 2003 og Norrnanfund um lög- fræðiupplýsingar í Reykjavík í júní 2003. Þá hafa fulltrúar Upplýsingar sótt ýmsar ráðstefnur erlendis. Þar má til dæmis nefna ///. Nordic-Baltic Library Meeting í Tallin í Eistlandi í október 2001, Ráðstefnu NORDINFO um upplýsingalsi í Helsinki í október 2001, Anglo-Scandinavian ráðstefnu fyrir almenningsbókasöfn í maí árið 2003, Nett i Norden um samvinnu almenningsbókasafna á Norðurlöndunum utan við Ósló í nóvember 2003, Leiðtogafund um upplýsingasamfélagið (WSIS) sem haldinn var í Genf í desember 2003, Creating Public Paradise. Public Libraries in the 21st Century í Haag í mars 2004. Arlega eru veittir ferðastyrkir til félagsmanna, einkum til að sækja ráðstefnur erlendis, í samræmi við reglur ferðasjóð félagsins. Fyrstu fimm árin úthlutaði stjórn ferðasjóðs alls 48 styrkjum og af þeim voru 40 sóttir. Flestum styrkjum var úthlutað vorið 2004, eða alls 18 í tilefni af fimm ára afmæli félagsins. Störf faghópa Innan Upplýsingar og í tengslum við félagið starfa margs konar faghópar. Skýrslur þeirra eru birtar í júníblaði Fregna ár hvert. Af nefndum og hópum má nefna stjórn ferðasjóðs, útgáfustjórn Fregna, lagabreyt- inganefnd, siðanefnd skemmti- og fræðslunefnd, rit- nefnd Bókasafnsins, nefndir um val á bestu íslensku fræðibókunum fyrir börn og fullorðna, nefnd um val á bestu veforðunni, landsfundarnefnd, ritnefnd um sögu bókavarðafélaga á Islandi, verkefnisstjórn um útgáfu bæklings um upplýsingatækni og verkefnis- stjórn vegna tilnefningar verðlauna úr minningarsjóði Astrid Lindgren. Einnig á félagið fulltrúa í ýmsum stjórnum og sam- starfsnefndum og skýrslur þeirra eru líka birtar í Fregnum árlega. Má þar nefna ráðgjafanefnd um mál- efni almenningsbókasafna, stjórn Blindrabókasafnsins, stjórn Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns, 5 Sjá Bókasafnið 24, 2000, bls. 67. 6 Sjá Bókasqfnið 27, 2003, bls. 69. 7 Sjá Bókasafnið 27, 2003, bls. 70-71. 8 Sjá Bókasafnið 27, 2003, bls. 72-73. 62 BÓKASAFNIÐ 29. ARO. 2005