8. Gengið var frá síðasta hluta forsagnarinnar, um flutning eintakaupplýsinga, í byrjun mars 2002. Heimting gagna Heimting gagna fólst í því að ná gögnunum úr fyrir- liggjandi kerfum, gamla Gegni, Greini og Gelmi. Fyrir hönd aðildarsafna gamla Gegnis sá Landsbókasafn alfarið um að heimta gögnin í fyrirfram ákveðnu for- mati. Bókfræðigögn voru heimt á marksniði en önnur gögn í einfaldri textaskrá. Jóhann Fannberg eðlisverk- fræðingur var ráðgjafi Landsbókasafns við þennan verkþátt. Forritun og yfirfærsla Gagnafiutningurinn byggðist á grunnforritum frá Ex Libris sem voru aðlöguð íslenskum aðstæðum. Eftir hverja gagnaprófun varð að aðlaga þessi forrit sam- kvæmt prófunarskýrslunum. Á aðlögunartímanum var mikið um bréfaskriftir og símtöl til að ganga úr skugga um að upplýsingar kæmust rétt til skila. Ýmsar tak- markanir ollu því einnig að ekki var hægt að fram- kvæma umbeðnar leiðréttingar og þá þurfti að finna nýjar lausnir. Sjálf yfirfærslan fólst síðan í því að yfir- færsluforritin voru keyrð á gögnin til að breyta þeim, raða og meðhöndla að öðru leyti samkvæmt forsögn. Gagnahleðsla Eftir yfirfærslu voru gögnin á réttu formati og hlað- ið niður í nýja Gegni. Tímafrek lyklun fylgdi hverri gagnahleðslu. Án hennar var hvorki hægt að leita í kerfinu né prófa gögnin. Skortur á vélbúnaði takmark- aði í fyrstu getu til þess að taka við yfirfærðum gögn- um frá Ex Libris. Við upphaf verkefnisins var gerður samningur við tölvufyrirtækið E JS um leigu á prófunar- þjóni. Bókasafnskerfið var sett upp til bráðabirgða á þessa vél og tvisvar sinnum var gögnum hlaðið inn til frumprófunar. Engar víðtækar prófanir fóru fram á þessum þjóni enda of veigalítill til þess að taka á móti raungögnum. í kjölfar útboðs á vélbúnaði og rekstri kerfisins var afráðið að vélbúnaðarþáttur kerfisins yrði hýstur á Akureyri. Réttu vélarnar bárust loks þangað í byrjun júní 2002. Þá var eftir að setja upp vélbúnaðinn og sjálft bókasafnskerfið. Að því loknu, 2. júlí 2002, var fyrsta raunverulega gagnahleðslan tilbúin. Prófanir Prófanaferillinn var vinnu- og tímafrekasti þáttur yfir- færslunnar. Þar er ekki tíminn í vikum eða mánuð- um sem telur heldur hversu margir starfsmenn lögðu hönd á plóg. Flestir skráningarsérfræðingar Lands- bókasafns, um það bil fimmtán manns, ásamt sérfræð- ingum frá öðrum aðildarsöfnum gamla Gegnis tóku þátt í prófun gagna. Prófanir voru átaksverkefni sem stóð að meðaltali í tvær vikur í senn. Umfang prófana hjá hverjum og einum var mjög misjafnt. Hver sér- fræðingur bar ábyrgð á sínu sérsviði en sameiginlegir vinnufundir voru fastur liður annan hvern morgun og þar bar fólk saman bækur sínar. Þessir fundir voru nauðsynlegir þar sem iðulega var erfitt að greina hvort agnúarnir voru sökum forsagnarvillu, yfirfærsluvillu eða gallaðrar skráningar. Prófunarvinnan fólst í að rýna nákvæmlega í gögn- in í því skyni að ganga úr skugga um að forsögninni væri fylgt. Gallar voru skráðir, bæði frávik miðað við forsögn og ennfremur gallar sem fyrirliggjandi forsögn tók ekki til. Endurbæta þurfti forsögn vegna síðarnefndu gallanna. Miðað við ástand gagnanna við fyrstu prófunarhleðslu var ljóst að sameina þurfti til- tæka krafta við verkefnið. Samt óraði engan fyrir því í upphafi hversu löng, umfangsmikil og fjölþætt barátt- an við gögnin átti eftir að verða. Fyrsta prófunarhleðsla Af ýmsum ástæðum var mannskapurinn, sem fékk það hlutskipti að votta gögnin, illa í stakk búinn til að takast á við prófunarvinnuna. Fráfall Sigbergs Friðrikssonar, bókfræðisérfræðings á Landsbókasafni, í byrjun júní 2002 var gríðarlegt áfall en hann hafði borið hitann og þungann af forsögninni. Aðrir skrá- setjarar höfðu lítið sem ekkert komið þar að. Það reyndist prófunarhópnum því tafsamt að setja sig inn í forsögnina um gagnaflutninginn og samanburðinn á marksniðunum tveimur. Aleph-kerfið var framandi og þess vegna tók líka tíma að komast upp á lag með haganlegar aðferðir. Eftirhreyturnar urðu sömuleiðis drjúgar og það tók á annan mánuð að ljúka prófunum og koma saman skýrslum samkvæmt fyrirmælum Ex Libris. Skýrslurnar áttu að vera sautján en á endanum voru fimmtán skýrslur sendar til London 25. október 2002. Prófunarhópurinn hafði bkistöð í tölvuveri Landsbókasafns sum- arið 2002. Frá vinstri: Sigrún Marelsdóttir, Sigrún Hauksdóttir, Gróa Björnsdóttir, Helga Kristín Gunnarsdóttir, Fanney Sigurgeirsdóttir og Borghildur Stephensen. BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005 73