Aralvatnið. Bæði náttúran og skráningarfærslan reyndu í örvæntingu að leiðrétta stöðuna þótt á ýmsu gengi. Því miður eru breytingarnar við Aralvatnið eitt hörmulegasta umhverfisslys nútímans sem ekki verður leiðrétt en blessunarlega náðust tök á yfir- færslu gagna gamla Gegnis. Þegar upp var staðið urðu gögnin eins rétt og efni stóðu til og í ferlinu tókst að lagfæra ýmsa galla. Sárafáar athugasemdir hafa borist um galla í yfirfærslunni. Þegar nýi Gegnir var tekinn í notkun í maí 2003 voru gögnin framandleg í nýju kerfi og það tók starfsfólk safnanna nokkurn tíma að aðlag- ast nýju starfsumhverfi, læra á kerfið og nýja staðla. Breyttar aðstæður valda því síðan að gögnin henta ekki nógu vel í opnu umhverfi á veraldarvefnum og í nýju landskerfi, sem þjónar ólíkum notendahópum. Það er framtíðarverkefni skráningarfólks að ráða bót á alvarlegustu annmörkunum. Yfirfærsla gamla Gegnis var stórt verkefni sem margir komu að. Óhætt er að fullyrða að árangur- inn varð betri en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Greinarhöfundar vilja nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem komu með einhverjum hætti að verk- efninu fyrir vel unnin störf við framandleg og erfið viðfangsefni. Abstract From the old library system to the new one Icelandic libraries are working together towards one unified library system for all Icelandic libraries, i.e. the National and University Library, public libraries, elementary school libraries, secondary school librar- ies, university libraries and research libraries. The system is based on the Aleph 500 integrated library system from Ex Libris. The project is divided into three phases. This article describes phase one, i.e. the bibliographic conversion of the Libertas libraries that include the National and University Library and ten other research- and university libraries. The main challenges of this conversion were; chang- ing the marc standard from UKMARC to MARC 21, amending the standard to Icelandic name traditions regarding display and sorting and finally combining three databases into one database. The bibliographic conversion process was divided into eight compo- nents; system analysis, specification, retrieving the data from the existing system, programming, conver- sion of data, loading the data into the new system, testing and reporting. Each process was repeated few times until the required results were reached. It was a time and labour intensive process and it took a consid- erable time to get acceptable data. The completion of the first phase was signed with the opening of the new library system, GEGNIR, in May 2003. Danstími á bókasafninu Hún fer á hverjum mánudagsmorgni á bókasafnið að dansa charleston við manninn sem er á myndinni í uppáhaldsbókinni hennar. Hún er rauðhærð og með yndisþokka. Þegar hún kemur aftur út um hádegið hafa sprungið út blóm handan við götuna nema snjór hafi fallið á gangstéttina eins og flos. Og bros hennar er djúpt eins og draumur. Einar Ólafsson 76 BÓKASAFNIÐ 29. ÁRG. 2005