Bókasafnið 31. árgangur maí2007 ISSN 0257-6775 Efnisyfirlit 2 Guðrún Pálsdóttir Viðtal við Dr. Jóhönnu Gunnlaugsdóttur 8 Áslaug Agnarsdóttir Ritakaup Landsbókasafns og þjónusta við aðra háskóla 16 Bryndís ísaksdóttir Uppbygging háskólabókasafns 32 Ingibjörg Hallbjörnsdóttir Skjalastjórn hjá opinberum stofnunum 36 Áhugaverðar vefsíður 37 Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum: þróun skipulagsheildar 44 Kristín Ósk Hlynsdóttir Aðgengismál og vefurinn 49 Laufey Ásgrímsdóttir Rannsókn á menningarmiðlun Norrænu bókmennta- og bókasafnanefndarinnar 53 Laufey Eiríksdóttir Mikil uppbygging bókasafna á Austurlandi 56 Sigrún Klara Hannesdóttir Yfirlit yfir árangur 2002-2007 62 Unnur Rannveig Stefánsdóttir Skipulagsheildir í fjármálastarfsemi; vísbendingar um þekkingarstjórnun 76 Bókrýni 77 Eldur - ljóð eftir Þórhall Þórhallsson 78 Vefsíðurýni 80 Minningarorð 84 Bækur og lif 87 Ævintýri - ljóð eftír Kristjönu Emilíu Guðmundsdóttir 88 Afgreiðslutími safna 92 Höfundar efnis Frá ritstjóra Það hefur verið mikið um að vera á sviði bókasafns-og upplýsingafræða hér á landi undanfarið ár. Fimmtíu ára afmæli greinarinnar við Háskóla íslands var haldið hátíð- legt með ýmsum hætti. Fjölmargir fróðlegir fyrirlestrar og fræðslufundir voru á dagskrá í tilefni afmælisins og haldin var glæsileg afmælisráðstefna í mars sl. Þar var boðið upp á erlenda fyrirlesara og haldið glæsilegt galakvöld. Afmælisárinu og glæsilegri og metnaðarfullri dagskrá þess verða væntanlega gerð skil í næsta blaði í máli og myndum. Blaðið okkar í ár er efnismikið að venju og spann- ar mörg svið bókasafns-og upplýsingafræða. Fjallað er um uppbyggingu safnkosts, skjalastjórn og þekkingar- stjórnun svo eitthvað sé nefnt. Níu greinar eru í blaðinu og þar á meðal greinar eftir fyrrverandi og núverandi landsbókavörð. Einn doktor bættist í hóp félaga á síð- asta ári þegar Jóhanna Gunnlaugsdóttir skorarformaður í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands lauk doktorsprófi frá Tampere í Finnlandi. Viðtal við Jóhönnu prýðir blaðið að þessu sinni. Auk þess eru í blaðinu fastir liðir svo sem Bækur og líf, Minningarorð og Bókrýni. Nýr liður, Vefsíðurýni er nú í blaðinu í fyrsta sinn og auk þess punktar um mat á vefsíðum sem Martha Ricart hefur tekið saman. Það er ýmislegt á döfinni hjá ritnefndinni. I smíðum eru leiðbeiningar til höfunda um skil á efni til blaðsins sem ættu að verða til mikilla bóta við frágang efnis til prentsmiðju og einnig stendur til að í næsta blaði verði boðið' upp á ritrýni greina. Bókasafns-og upplýsinga- fræðingar hafa verið duglegir að bæta við sig menntun og reynslu á undanförnum árum og kominn tími til að þeir fái fagtímarit sitt ritrýnt eins og ýmis önnur fagfélög. Þar sem þetta er síðasta blaðið sem ég ritstýri vil ég óska nýjum ritstjóra Ásdísi Paulsdóttur velfarnaðar við ritstjórn blaðs- ins. Að fá tækifæri til að sinna slíku verkefni er sannarlega skemmtilegt og hefur verið mér ómetanleg reynsla sl. þrjú ár. Höfundum efnis og öðrum sem komið hafa að útgáfu blaðsins þakka ég gott samstarf. Ritnefndinni þakka ég fyrir góðar stundir og samstarf. Eg vil að lokum hvetja les- endur Bókasafnsins til að að senda ritnefndinni hugmynd- ir að efni og skrifa greinar um sín hjartans mál. Eva Sóley Útgefandi: Upplýsing. Félag bókasafns-og upplýsingafræða Lágmúla 7, 108 Reykjavík Sími: 553-7290, Netfang: upplysing@bokis.is Prentun: Gutenberg ehf. Letur: Simoncini Garamond Veffang: http://www.bokasafnid.is Mynd á kápu: Vor við Þjóðarbókhlöðuna. Ljósmyndari: Martha Ricart Ritnefnd: Eva Sóley Sigurðardóttir ritstjóri ess@cb.is Ásdís Paulsdóttir meðstjórnandi asdisp@els.is Kristín Ingunnardóttir gjaldkeri kristin@almenna.is Martha Ricart vefstjóri martha@hafnarfjordur.is Hallfríður Baldursdóttir ritari hallbald@bok.hi.is Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í Library & Information Science Abstracts (LISA).53-7290 / 862-8627