stundum þar skóg- og trjárækt sem við höfum gaman af. Eg er heppin að eiga afar góða fjölskyldu. Það er ómetanlegur stuðningur þegar maður stundar langt og erfitt nám. Eg fór í Verzlunarskólann á sínum tíma og kynntist Árna þar. Hann ákvað að fara strax að afloknu stúdentsprófi í háskólanám til Bandaríkjanna. Ég var heima fyrsta árið hans í námi og var þá sagt að ég sæti í festum! Ég vann þetta ár við prófarkalestur og sem einkaritari ritstjóranna á Morgunblaðinu. Við Árni giftum okkur árið 1971 og fórum út saman. Við höfðum lítil auraráð þannig að ég gat ekki stundað nám líka. Ég sótti því um og fékk vinnu sem stjórn- unarritari og aðstoðarskrifstofustjóri innkaupadeildar Minnesotaháskóla. Maður komst ansi langt á stúd- entsprófi úr Verzlunarskólanum á þessum tíma. En ég sótti líka námskeið í ensku og blaðamennsku við skólann 1971-1973. Gunnlaugur, sonur okkar, fædd- ist þar úti árið 1974 en við vorum komin heim þegar Halla, dóttir okkar, fæddist árið 1977. Eftir að við komum heim vann ég við vélritun og prófarkalestur í nokkur ár en dreif mig svo í Háskólann. Áhugi minn á skjalastjórn varð svo seinna til þess að ég var einn af stofnendum Félags um skjalastjórn og ég hef einnig verið félagi í ARMA (Association of RecordsManagers&Administrators)íBandaríkjunum og Records Management Society í Bretlandi í 20 ár. - Nú, þegarþú hefur lokið þessum mikla áfanga sem doktorprófið er, hvernig sérðu þáframtíð bókasafns- og upplýsingafræðinnar fyrir þér? Fræðigreinin er stöðugt að breytast. En ég tel að við eigum að bjóða áfram hefðbundið nám þar sem við kennum heimildaleitir, miðlun menningar, þekkingar og upplýsinga, mat og skipulagningu. Ég tel meira að segja að auka ætti kennslu í grundvallargreinunum flokkun og skráningu til muna en þau fög kenndi ég um árabil. Þá þarf að þróa námið í upplýsinga- og skjalastjórn áfram enda er krafan frá umhverfínu, svo sem atvinnulífinu, laga- og reglugerðarbatteríinu og sívaxandi og flóknara magni upplýsinga, til þeirra sem kalla sig upplýsingafræðinga eða bókasafns- og upplýsingafræðinga að þeir búi yfir þeirri færni að geta skipulagt og stjórnað skjölum og upplýsingum í skipulagsheildum. Stjórnendur trúa því að ráði þeir bókasafns- og upplýsingafræðing til starfa kunni hann mikið fyrir sér í upplýsinga- og skjalastjórn. Við höfum einnig áhuga á að leggja meiri áherslu á vefumsjón og vefstjórnun - það verður að öllum líkindum næsta sérhæfing. í haust bárust mér sem skorarformanni óskir frá nemendum um að kennd yrði vefstjórnun í skorinni. Ég fór strax á stúfana og tókst að koma á samstarfi við nýútskrifaða sérfræðinga á sviðinu og nú standa málin svo að við getum boðið upp á fimm eininga námskeið í vefstjórnun á vormiss- Julie, Jóhanna og Pertti, kát og glöð eftir vörnina. Pertti heldur á hatti sem doktorar skólansfá eftir vörnina. Hann sagði Jóhönnu og Julie, áður en þau gengu i salinn, að hattinum hefði fylgt sverð en jafnframt að hann hefði ekki tekið það með - hann teldi sig ekki þurfa að nota það við vörnina! eri 2007. Við þurfum alltaf að vera á höttunum eftir nýjum tækifærum. Það gera framsæknir háskólar. Aukin tækifæri felast í nýjungum, eins og skjalastjórn og vefumsjón, og upplýsingafræðideildir kenna þessi fög í vaxandi mæli eftir því sem þekkingin er fyrir hendi á hverjum stað til þess að kenna þau. Þetta eru bara dæmi en við þurfum sífellt að vera vakandi fyrir nýjum tækifærum. Þá vil ég að nám á framhaldsstigi sé eflt og að við bjóðum upp á meiri sérhæfingu og doktorsnám í sam- vinnu við aðra háskóla á Norðurlöndum og víðar. Einnig langar mig til þess að sjá fjarnám eflast, þar eru tækifærin og að því verður stefnt. Við höfum gengið í gegnum mikla erfiðleika sem voru andlát dr. Anne Clyde og fjárskortur. En félagsvísindadeild stendur sig mjög vel og þar er unnið að því hörðum höndum að fá meira fé. Þá gefur nýr samningur menntamálaráðu- neytisins og Háskóla íslands (samningurinn var und- irritaður 11. janúar 2007) um stóraukin fjárframlög til kennslu og rannsókna tilefni til bjartsýni. Ég hef þá trú að það takist að fá auknar fjárveitingar sé rétt haldið á spöðunum. Og þá eru okkur allir vegir færir. BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007