Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Áslaug Agnarsdóttir

Ritakaup Landsbókasafns

og þjónusta við aðra háskóla

Umræða í dagblöðum

Sumarið og haustið 2006 urðu nokkrar umræð-

ur í fjölmiðlum um Landsbókasafn íslands -

Háskólabókasafn og þá fyrst og fremst um rita-

kaup safnsins og ritakaupastefnu. Guðni Elísson

reið á vaðið með grein um ritakaup sem birtist

í Lesbók Morgunblaðsins 1. júlí (Guðni Elísson,

2006) þar sem hann spurði meðal annars hvernig

Háskóli Islands ætlaði að komast í tölu hundrað

bestu háskóla í heimi. Vísaði hann þar til markmiðs

Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla íslands, sem

hún kynnti í ræðu á fundi Vísinda- og tækniráðs

14. mars sama ár (Kristín Ingólfsdóttir, 2006). Þar

sagði hún: „Háskóli íslands hefur sett sér að vera

leiðandi afl í uppbyggingu íslenska þekkingarsam-

félagsins. Háskólinn hefur sett sér það að skipa sér

í röð hundrað bestu háskóla í heiminum innan 10-

12 ára." I grein sinni heldur Guðni því fram að til

þess að markmiði Kristínar verði náð þurfi fyrst „að

gjörbylta bókasafnsmálunum því ekki sé hægt að

stunda rannsóknir af neinu viti á háskólastigi án þess

að auðvelda aðgang að helstu verkum". Grein Guðna

vakti mikla athygli. Þremur dögum síðar var haft

eftir Sigrúnu Klöru Hannesdóttur landsbókaverði í

Morgunblaðinu að helst þyrfti að þrefalda ritakaupafé

safnsins (Tómt mál að tala um Háskóla íslands ...,

2006). Jón Olafsson, forseti félagsvísinda- og hag-

fræðideildar Viðskiptaháskólans á Bifröst, skrifaði

grein um ritakaup í ágúst þar sem hann gagnrýndi

bæði Háskóla íslands og safnið (Jón Ólafsson, 2006).

Laugardaginn 14. október birtist svo löng grein í

Lesbók Morgunblaðsins um stöðu bókasafnsmála í

háskólum landsins (Sigurbjörg Þrastardóttir, 2006)

þar sem rætt var við höfund þessarar greinar, lands-

bókavörð, Jón Ólafsson og rektora flestra háskóla í

landinu. Greinin byggði fyrst og fremst á gagnrýni

Jóns og hugmyndum hans til úrbóta. Rætt var við

rektora a.m.k. sex annarra háskóla um ritakaup, þ.e.

Þorstein Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri,

Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla íslands,

Ólaf Proppé, rektor Kennaraháskóla íslands,

Skúla   Skúlason,   rektor   Háskólans   á   Hólum,

Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskólans á

Hvanneyri og Runólf Ágústsson, rektor Háskólans

á Bifröst. Ekki var nefnt hver svaraði fyrir hönd

Háskólans í Reykjavík og athygli vakti að Kristín

Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Islands, „sá sér ekki

fært að svara spurningum Sigurbjargar með svo

stuttum fyrirvara, en ítrekaði að málið væri henni að

sjálfsögðu mjög hugleikið". Mætti túlka það sem svo

að Jón hafi haft rétt fyrir sér að minnsta kosti hvað

varðar þau ummæli hans um að „það [er] svo ótal-

margt sem sýnir að málum bókasafnsins er alltaf ýtt

tilhliðar".

Gagnrýni Jóns og tillögur til úrbóta

En í hverju felst gagnrýni Jóns og hvaða hugmyndir

hefur hann fram að færa sem lausn á málunum? I

stuttu máli sagt þá gagnrýnir Jón Háskóla Islands

fyrir tómlæti í garð bókasafns síns og heldur því

auk þess fram að aldrei hafi verið reynt að koma á

kerfisbundinni rita- og efnisöflun eða marka stefnu

eins og við mætti búast af háskólabókasafni. Þessi

gagnrýni beinist reyndar einnig að safninu sem Jón

segir hafa sýnt ákveðið forystuleysi en innan þess sé

„einhver fagfælni, eins og það vilji ekki fá umboð til

að reka faglega innkaupastefnu og ýti því til háskól-

ans, sem ýtir því til deildanna sem aftur ýta því til

einstakra kennara og á leiðinni leysist þetta upp"

(Sigurbjörg Þrastardóttir, 2006).

Tillögur Jóns eru svo á þann veg að hann vill

byggja upp eitt stórt innlent bókasafn fyrir alla

háskóla í landinu þar sem háskólarnir hafi jafnan

aðgang að ritum þess og rafrænum söfnum. Að hans

mati þyrftu ríkið og háskólarnir að taka höndum

saman um slíka uppbyggingu. Þetta stóra safn á auð-

vitað að vera í Þjóðarbókhlöðu. Jón er þó ekki með

tillögu um hvernig þetta skuli allt saman framkvæmt

(Jón Ólafsson, 2006).

Hugmyndin um eitt safn fyrir alla háskóla hefur

verið reifuð í stjórn safnsins og var því ein af spurn-

ingunum sem ég lagði fyrir þátttakendur í rannsókn

minni Tvthöfða risi (Áslaug Agnarsdóttir, 2006b).

Rannsóknina gerði ég sem hluta af meistaranámi í

BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92