stæði og frumkvæði háskólanema í námi. I 8. gr. um fjárhagsmálefni segir: Kostnaður við rekstur bóka- safnsins greiðist úr ríkissjóði. Þá skal hluti af fjárveit- ingu til Háskóla Islands renna árlega til bókasafnsins samkvæmt sérstöku samkomulagi milli bókasafnsins og Háskólans." Pessi grein hefur verið túlkuð svo að hún eigi fyrst og fremst við um ritakaup. Fjármögnun ritakaupa Landsbókasafns hefur tekið nokkrum breytingum frá 1995. Það ár, sem var fyrsta starfsár hins nýja safns, fékk safnið framlag frá ríkinu sem var sérstaklega eyrnamerkt ritakaupum á fjárlögum. Á árunum 1995 og 1996 nam ritakaupafé til safnsins 43 milljónir króna og var ætlað til allra rita- kaupa safnsins. Ritakaup drógust þó saman á árunum 1996-1997, meðal annars vegna hækkandi verðlags erlendis, og þurfti að skera niður tímaritaáskriftir um 20-30%. Fulltrúar Háskólans í stjórn safnsins unnu ötullega að því fyrstu árin að efla samskiptin mílli safnsins og Háskólans hvað ritakaupin varðaði. Meðal annars kemur fram í fundargerð stjórnar 17. apríl 1996 að þeir hugðust senda bréf til rektors og biðja um skýr svör við því hvort Háskólinn myndi leysa vanda bókasafnsins vegna ritakaupa á því ári. Árið 1996 var ákveðið í viðræðum milli Háskólans og bókasafnsins að leggja til að stofnaður yrði sérstakur Ritakaupasjóður Háskólans. Hann skyldi kosta öll rit sem keypt væru vegna óska Háskólans og teldust umfram þau rit sem bókasafnið fær fé til á fjárlögum og kaupir vegna almennra þarfa og hlutverks síns sem þjóðbókasafn. Greiðslurnar kæmu til safnsins frá Háskólanum sem sértekjur. Ritakaupasjóður var stofnaður 1997 og sam- þykktur af fjárlaganefnd Alþingis. Hugsunin að baki Ritakaupasjóðnum var sú að Háskólinn aflaði sjálfur fjár til kaupa á ritum í eigin þágu og sæi um skiptingu þess milli deilda, en féð rynni til bókasafnsins sem annaðist innkaupin og frágang ritanna. I ársskýrslu kemur fram að safnið samþykkti á sínum tíma að Ritakaupasjóði yrði komið á laggirnar þar sem það taldi að betra yrði að ná sátt um skiptingu fjárins milli deilda ef skiptingin færi fram innan Háskólans, og Háskólinn og deildir hans væru í sterkari stöðu en safnið til að þrýsta á stjórnvöld um aukið fjármagn eða afla þess með öðru móti. Árið 1997 var framlag til Ritakaupasjóðs 31,5 milljónir króna sem kom til safnsins gegnum fjárlög Háskólans (Ársskýrslur w JVa/ionaói/cUomóaI e/S/ceca/ué 125 ára 1882 - 2007 Laugavegi 162 - 105 Reykjavík sími 590 3300 - fax 590 3301 upplysingar@skjalasafh.is www.skjalasafh.is Lestrarsalur opinn: kl. 10:00- 18:00 mán.mið. kl. 10:00-19:00 þri. kl. 10:00-16:00 fös. 10 BÓKASAFNIÐ 31. ARG. 2007