Aðferð og þátttakendur Sú aðferð sem notuð var við þessa rannsókn er hluti af fjölbreyttri rannsóknarhefð sem kallast eigind- legar rannsóknaraðferðir. Þær byggja á athugunum rannsakandans sjálfs á vettvangi daglegs lífs til þess að öðlast innsýn í reynslu fólks og aðstæður og nákvæmar lýsingar gegna lykilhlutverki við að öðlast dýpri skilning á lífi þátttakenda. Notuð voru opin viðtöl við rannsóknina þar sem rannsóknarsviðið, skjalastjórn opinberra stofnana, er vel afmarkað en fremur óaðgengilegt til þátttökuathugana. Auk þessa var rannsókninni ætlað að ná til fremur breiðs hóps innan þröngra tímamarka en við slíkar aðstæður eru viðtöl talin henta vel (Bogdan og Biklen, 2003). Viðtöl voru tekin við umsjónarmann eða ábyrgðar- aðila skjalamála hjá 12 opinberum stofnunum en í þremur þeirra reyndist nauðsynlegt að ræða við fleiri en einn aðila. Ákveðið var við rannsókn þessa að velja þátttakendur frá þeim ríkisstofnunum sem hafa undir höndum mikið af persónuupplýsingum. Ástæða þess var einkum sú að mikilvægt hlýtur að teljast að nota aðferðir skjalastjórnar við meðferð persónuupplýs- inga til að tryggja lagaákvæði, s.s. um aðgang og varðveislu slíkra upplýsinga, þótt skráning mála sem berast stjórnvöldum sé í öllum tilvikum lagaskyld. Helstu stofnanir sem búa yfir slíkum upplýsingum heyra einkum undir þrjú ráðuneyti: félagsmálaráðu- neytið, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og dóms- og kirkjumálaráðuneytið og voru valdar fjórar undirstofnanir frá hverju þeirra. Reynt var að velja stofnanir með ólíka starfsemi frá hverju ráðuneyti og má sem dæmi nefna að frá heilbrigðisráðuneyt- inu voru valdar öldrunarstofnun, heilbrigðisstofnun, stjórnsýslustofnun og stofnun sem veitir sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Ennfremur var rætt við starfsmann Þjóðskjalasafns Islands þar sem ein rannsóknarspurningin beinist að samskiptum safnsins við opinberar stofnanir á sviði skjalastjórnar. Gagnasöfnun fór fram á tímabilinu október 2005 - janúar 2006 og fóru öll viðtölin fram á viðkomandi stofnun. Tólf þeirra voru tekin upp og afrituð orðrétt en eitt viðtalið var ekki hljóðritað heldur voru skrifuð minnisblöð. Að auki var sendur tölvupóstur á nokkra viðmælendur til að afla við- bótarupplýsínga þegar ákveðnir þættir höfðu orðið útundan í viðtölunum. Síðasti hluti rannsóknarinnar var óformleg könnun meðal ráðuneyta á afskiptum þeirra af skjalamálum undirstofnana þeirra. Skjalastjórn í fræðilegu samhengi Skjalastjórn er ekki vísindagrein í þeim skilningi að kenningar hennar og hugmyndir verði hagnýttar á NAFN STARFSMANNS STARFSHEITI HEITISTOFNUNAR Ragnheiður Pétursdóttir launafulltrúi Stofnun A Ragna Friðjónsdóttir, Rósa Guðjónsdóttir og Gunnhildur Geirsdóttir læknaritari/bókari, aðalfréhirðir og framkvæmdastjóri Stofnun B Þórður Gunnlaugsson skrifstofustjóri Stofnun C Helga Hákonardóttir og Ásgerður Bogadóttir ritari og rekstrar- og skrifstofustjóri Stofnun D. Arna Waltersdóttir skrifstofustjóri Stofnun E. Þóra Karlsdóttir skrifstofustjóri á læknaritarasviði Stofnun F. Hrönn Gústafsdóttir skrifstofustjóri Stofnun G. Sigurbjörg Freysdóttir framkvæmdastjóri Stofnun H. Svanfríður Björnsdóttir skjalastjóri Stofnun I. Linda Osk Axelsdóttir skrifstofumaður í skjalavinnslu Stofnun J. Dagrún Magnúsdóttir fulltrúi Stofnun K. Óskar Arason og íris Ólafsdóttir framkvæmdastjóri og ritari Stofnun L. Tafla 1 - Þátttakendur í rannsókninni BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007 23