stillingar.is. Með því að smella á lítinn hnapp í val- stiku á vefnum geta notendur valið þá litasamsetn- ingu, stafagerð eða leturstærð sem þeim hentar, valið bil á milli lína og orða og nýtt sér fleiri möguleika. Félagsmálaráðuneytið styrkir þróun verkefnisins sem er unnið af Hugsmiðjunni í samráði við hagsmunaðila notenda með lestruflanir. Aðgengisstefna I skýrslu um aðgengi allra að vefnum sem gefin var út af félagsmálaráðuneyti og forsætisráðuneyti í janúar 2006 (Arnar Pálsson og Sigurður Davíðsson) er því beint til stofnana að þær marki sér stefnu í aðgengis- málum fyrir árslok 2007 og vefir þeirra uppfylli alþjóðlegar lágmarkskröfur um aðgengi fyrir árslok 2008. Eins og áður sagði reið Fasteignamat ríkisins enn á vaðið og gaf út aðgengisstefnu sína í apríl 2006 en aðgengísstefna fyrir stjórnarráðsvefinn var gefin úr 16. maí sama ár. Aðgengisstefna Fasteignamats ríkisins: Fasteignamat ríkisins (FMR) einsetur sér að vefsetur stofnunarinnar sé aðgengilegt notend- um með sérþarfir. Markmiðið er að allt efni á vefsetri FMR frá árinu 2005 standist að lágmarki viðmiðunar- reglur SJÁ fyrir vottun um forgang 2, sem byggðar eru á World Wide Web Consortium Accessibility Guidelines 1.0 (WCAG 1.0 gerð AA), fyrir 3. maí 2006. Eldra efni sem talið er mikilvægt eða er mikið notað standist sömu viðmið. Stefnt er að því að allt efni á vefsetri FMR frá árinu 2005 standist viðmiðunarreglur SJÁ fyrir vottun um forgang 3 (WCAG 1.0 af gerð AAA) fyrir 1. desember 2007. Með gæðaeftirliti er tryggt að vefsetur FMR uppfylli ávallt þau markmið sem stofnunin hefur sett sér varðandi aðgengi og er þess gætt að nýtt efni sé í samræmi við yfirlýsta aðgeng- isstefnu sem birt er á vefnum. Þess verður krafist að efni frá þriðja aðila uppfylli kröfur FMR um aðgengi fyrir alla. Jafnframt verður farið fram á að hugbúnaðarsalar sem stofnunin skiptir við geri grein fyrir því hvernig búnaður þeirra taki tillit til krafna um aðgengismál. Séð verður til þess að starfsfólk fái þá þjálfun sem til þarf miðað við starf sitt og hlutverk. Þetta er meðal annars gert með því að koma upp sérstakri upplýsingasíðu um aðgengismál á innri vef. Fasteignamat ríkisins endurskoðar aðgeng- isstefnu sína reglulega í því skyni að uppfylla enn betur kröfur um aðgengi allra að vefnum. Nokkur atriði til að hafa í huga Auk þeirra þátta sem taldir voru upp hér að framan í tengslum við þær úrbætur sem unnar voru til að auka aðgengi að vef FMR má nefna nokkur atriði sem gott er að huga að: Stílsíður (CSS) séu notaðar rétt og töflur og myndir eru ekki notaðar til að stjórna útliti AUt mál sé eins skýrt og einfalt og mögulegt er Fyrirsagnir og kaflaskipti séu skýr Hljóðskrár hafi sambærilega textaskrá Styttri myndskeið í boði með útdrátt efnis á táknmáli Myndir hreyfist ekki hratt yfir skjáinn og/eða blikki PDF skjöl séu gerð aðgengileg fyrir skjálesara Lokaorð Fatlaðir njóta þess að vafra um vefinn, afla sér upp- lýsinga og versla án þess að þurfa til þess aðstoð frá öðrum. Þarna er einmitt notendahópur sem þarfnast vefsíns hvað mest því hann á e.t.v. ekki svo auðveld- lega heimangengt. Stefnt er að því að upplýsingasamfélagið verði aðgengilegt öllum óháð getu þeirra eða fötlun. Með aukinni miðlun upplýsinga um vefinn þarf að stuðla markvisst að fræðslu um leiðir til þess að gera þær þar aðgengilegar öllum. Þess vegna er mikilvægt að við- miðunarreglur World Wide Web Consortium, Web Content Accessibility Guídelines 2.0 verði þýddar á íslensku þegar þær koma út og þær rækilega kynntar. Gagnlegar vefsíður: Aðgengi allra að vefnum - tillögur http://utvefur.is/adgengi/Itarefni/ Goðsagnir um aðgengilegar vefsíður (PDF skjal) http://www.menntagatt.is/Uploads/FileGallery/ Fatladir/adgengi_fyrir_alla.pdf Stefnumótun í aðgengismálum http://utvefur.is/adgengi/stefna/ Vefþjónusta fyrir sjónskerta og lesblinda http://www.stillingar.is Tólastika fyrir Firefox - Web Developer Extension http://chrispederick.com/work/webdeveloper/ Tólastika fyrir Internet Explorer - Web Accessibility Toolbar - Vision Australia http://www.visionaustralia.org.au/info.aspx? page=614 UT vefurinn - Aðgengi allra að vefnum http ://utvefur. is/adgengi W3C Web Accessilibity Initiative WAI http://www.w3 .org/WAI/ BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007 47