Nesskóli í Neskaupstað - Bókasafnið er ájarðhæðinni Bókasafnið í Neskaupstað nú er Margrét Gunnarsdóttir sem hefur verið starfs- maður safnsins frá árinu 2000. Á Eskifirði er gömul hefð fyrir samsteypusafni í húsnæði grunnskólans, en þegar ákveðið var að stækka skólann var tekin sú ákvörðun að flytja safnið sem áður hafði verið á 2. hæð niður á jarðhæðina þannig að almenningur hefði greiðari aðgang auk þess sem húsnæðið stækkaði talsvert. Það er nú 208 m2 og er mjög glæsilegt. Inngangur að safninu er frá aðalgötu bæjarins og er safnið mjög áber- andi kennileiti í bænum. Auður Valdimarsdóttir sem stjórnað hefur allri uppbyggingu safnsins frá árinu 1985 hefur nú hætt störfum og síðan þá var Þórunn Fjóla Víðisdóttir forstöðumaður í tæplega tvö ár. Guðný Einarsdóttir hefur stjórnað safninu frá því í ágúst2005. I Neskaupstað hefur almenningssafnið lengi búið við mjög þröngan kost og skólasafn grunnskólans einnig verið á hrakhólum, auk þess sem þar hefur aldrei náðst að byggja upp nýtilegt skólasafn. Þegar ráðist var í viðbyggingu við skólann var húsnæði fyrir samsteypusafn mjög veigamikill þáttur. Safnið er á jarðhæð skólans og með gott aðgengi fyrir almenn- ing. Nýja húsnæðið sem er 260m2 var tekið í notkun haustið 2005 og er mjög glæsilegt. Þar starfa nú tveir starfsmenn Margrét Björnsdóttir sem hefur verið for- stöðumaður almenningsbókasafnsins frá árinu 1988 og María Gísladóttir sem sér um kennslu og hefur umsjón með þeim hluta sem snýr að skólasafninu. Á Reyðarfirði var ný viðbygging við grunnskól- ann vígð þann 17. nóvember sl. Þar á meðal er glæsilegt samsteypusafn og við það eru skólasafnið og almenningssafnið sem bjuggu bæði við mjög slæmar aðstæður nú sameinuð í glæsilegu 217m2 húsnæði á jarðhæð skólans. Forstöðumaður beggja safnanna er Guðrún Rúnarsdóttir sem hefur rekið skólasafnið síðan árið 2000 og almenningsbókasafnið frá árinu 2002. Vinnuaðstaða hennar hefur við flutninginn núna breyst mikið. Á þessu ári verður boðin út stækkun grunnskólans á Fáskrúðsfirði þar sem gert er ráð fyrir rúmlega 180 m2 rými fyrir skóla og almenningssafn. Gert er ráð fyrir því að sá áfangi verði tekinn í notkun árið 2008. Enn er þá ólokið að segja frá stækkun safnsins á Stöðvarfirði sem fluttist í nýtt og betra rými innan skólans sl. vor. Forstöðumaður þess er Linda Hugdís Guðmundsdóttir og starfsmaður með henni er Anna María Sveinsdóttir. Nú í september rýmkaðist heil- mikið um safnið í Menntaskólanum á Egilsstöðum þegar ný álma við skólann var tekin í notkun og við bókasafnið bættist við það rými sem áður hýsti skrif- stofur skólans. Forstöðumaður safnins er Ingibjörg Bergmundsdóttir. Bókasafnið á Reyðarfirði - Nýjasta safnið ífjórðungnum Bókasafnið á Reyðarfirði - Guðrún Rúnarsdóttir í'nýrri vinnuaðstöðu 54 BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007