langmestu leiti skrifuð að frumkvæði einstaklinga, útgefenda eða óháðra félagasamtaka. I bókfræðikaflanum ræðir Einar m.a. um bókfræðiráðstefnuna á Akureyri árið 1990 og Rannsóknarmiðstöð í bókasafns- og upplýsingafræði heitina sem gaf út tvö hefti í ritröðinni Lykill. Hvort tveggja fyrirbæri sem þyrfti að endurvekja. Athygli vekur hve mikið hefur verið skrifað um prentsögu á tímabilinu og hve ítarlega hefur verið skrifað um fjölmiðla, sérstaklega um dagblöð og tímarit og stórvirki verið unnin til að koma eldri árgöngum þeirra á stafrænt form. Um handrit, bókagerð og útgáfusögu hafa líka verið skrifaðar merkar bækur og greinar sem Einar gerir mjög góð skil. Saga bókasafna og félagasamtaka bókavarða fær líka ítarlega umfjöllun. I lok greinar sinnar vekur Einar athygli á hve tungumálið hafi breyst tiltölulega lítið og að fornbók- menntirnar séu enn lifandi með þjóðinni. Lestrarvenjur barna og unglinga hafi þó breyst á síðustu árum og fari nú í auknum mæli fram við tölvuskjáinn. Lítið hafi verið skrifað um bókagerð sem slíka á síðustu árum enda þótt á hverju ári komi út bókverk sem eru framúrskarandi að allri gerð. Greinin er öll hin fróðlegasta og mikill fengur að því að fá yfirlit um íslenska bóksögu á síðustu áratugum. Einar hefur lag á að skrifa í kringum hvern efnisþátt og tengja við fortíðina og gera efnið þann- ig bæði lifandi og fróðlegt. Það kemur á óvart hve mikið hefur þrátt fyrir allt verið skrifað um bóksögu á tímabilinu en vekur líka til umhugsunar um hversu margt er ógert og að bóksagan er óþrjótandi brunnur spennandi rannókna og hefur verið vannýtt sem slík af stétt bókasafns- og upplýsingafræðinga. Ólöf Benediktsdóttir Eldur Af eldi ertu kominn, að eldi skaltu aftur verða. Að lokum sameinumst við, fjandvinirnir. Þú sem bjóst milli þilja. Þú sem lýstir upp nóttina. Þú sem fylgdir mér hvert skref. Beiðst mín í skraufþurru grasinu. Dansaðir á sumardegi á hafinu, lagðir hendur á bátinn. Þú fórst fingrum um hár mitt í heitum júlívindinum. Féll í faðm þinn, féll í eldhafið. Þórhallur Þórhallsson BOKASAFNIÐ 31. ARG. 2007 77