Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Vefsíðurýni

www.tregawott.net

Tíuþúsund tregawött

tregawott.net

Bókrýnir hefur skipað fastan sess í þessu tímariti en

þar sem internetið og upplýsingar á rafrænu formi

eru notaðar í sívaxandi mæli þótti nú tímabært að

fylgja þróuninni eftir og meta vefsíðu. Við val á síðu

var haft að leiðarljósi að síðan væri á íslensku og að

efni hennar tengdist bókasafnaheiminum. Síðan sem

metin er nú þótti spennandi viðfangsefni þar sem

hún hefur nokkra sérstöðu í íslenska netheiminum;

er bæði vettvangur fyrir ljóðskáld til að koma verkum

á framfæri sem og vettvangur umræðna um ljóð og

ljóðatengt efni. Áður en síðan var metin tókum við

saman nokkur almenn atriði um mat á vefsíðum (sjá

bls. 79). Listinn er ætlaður sem hjálpartæki, nokkurs

konar viðmið um hvaða atriði er mikilvægt að skoða

og meta.

Segja má að vefsíðan Tíuþúsund tregawött sé

nokkurs konar bloggsíða um ljóð og ljóðatengt efni,

en að síðunni standa ung íslensk ljóðskáld. I þessari

grein er rýnt í vefsíðuna og fjallað um kosti hennar

og galla.

Á vefsíðunni, sem hefur sitt eigið lén, kemur fram

hverjir standa að henni, en þó vantar upplýsingar

um bakgrunn þeirra, til dæmis hvort um sé að ræða

fræði- eða áhugamenn. Fram kemur að hægt er að

hafa samband við aðstandendur síðunnar í gegnum

tölvupóst en engar upplýsingar er að finna um það

hvort þeir kosta hana sjálfir eða hvort aðrir aðilar

gera það.

Textinn á síðunni er vandaður, málfar gott og

stafsetning góð og orðfæri hæfir vel efni síðunnar.

Tilgangurinn með vefsíðunni er augljós - að koma

á framfæri ljóðum og ljóðatengdu efni af ýmsu tagi.

Heiti síðunnar og lénið gefa hins vegar enga hugmynd

um hvaða efni er þar að finna. A síðunni er leitarvél

sem nýtist meðal annars til að leita að höfundum, yrk-

isefnum og öðru því tengdu. Það væri kostur ef hægt

væri að flokka efni síðunnar eftir höfundum ljóða því

skilvirkara er að skoða einstaka höfunda þannig.

Á forsíðu sést ágætlega hvernig vefurinn er skipu-

lagður og hvaða möguleika notandinn hefur þegar

hann skoðar síðuna. Forsíða og undirsíður hafa sama

útlit og er það ágætlega hannað. Hvítur bakgrunnur

gerir síðuna skýra og bjarta en letrið mætti skerpa.

Helst vantar möguleikann á því að breyta stærð og

lit leturs og bakgrunnslit. Efni er ágætlega flokkað

og krækjur á undirsíður skýrar; einnig er krækja á

forsíðu af öllum undirsíðum. Á síðunni eru einnig

fjölmargar krækjur í aðrar vefsíður og eru þær lang-

flestar virkar. Þegar myndefni er birt með texta teng-

ist það innihaldi hans yfirleitt vel. I sumum tilvikum

bæta myndirnar upplýsingum við textann en í öðrum

eru þær aðallega til skrauts. Myndefni á síðunni er

það lítið að það hægir ekki á henni og truflar ekki

lestur. Innskráningarhnappur á forsíðu gefur notend-

um til kynna að þeir geti skráð sig inn á lokað svæði

síðunnar en í raun er sá hnappur aðeins ætlaður rit-

stjórum. Þessi hnappur mætti vera minna áberandi til

að rugla ekki notendur í ríminu.

I desember 2006 flutti vefsíðan frá eldra svæði,

10000tw.blogspot.com. Síðan er nokkuð breytt frá

fyrra útliti, er nú öllu bjartari og skemmtilegri þótt

uppsetning efnis haldi sér að mestu. Dagsetning

er við hverja færslu sem sett er inn á síðuna og af

dagsetningu nýjustu færslu má ráða hvenær vefurinn

var síðast uppfærður. Nýtt efni birtist reglulega á síð-

unni. Vefslóðin er nokkuð einföld og síðan er fljót

að hlaðast niður. Ekki þarf annan búnað en vefskoð-

arann til að skoða eða nota síðuna og er hún öllum

opin án endurgjalds.

Vefsíðan ber með sér að vandað er til vinnu við

hana. Færslurnar eru hnitmiðaðar og hæfilega lang-

ar þannig að notendur gefast ekki upp á lestrinum.

Þegar á heildina er litið er óhætt að segja að síðan

sé skýr, aðlaðandi og góð afþreying fyrir ljóðaunn-

endur.

Martha Ricart

Svanur Már Snorrason

78

BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92