Mat á vefsíðum Höfundar og ábyrgðaraðild (0-10 stig) Það er skýrt tekið fram hverjir eru höfundar efnis (nafn, vinnustaður...) Bakgrunnur höfunda eða þeirra sem sjá um síðuna er tilgreindur (fræðimaður/áhugamaður, menntun, starfssvið...) Á síðunni eru upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við höfunda (tölvupóstur eða annað) Er augljóst hver kostar síðuna (virtur aðili á efnissviðinu, annar þekktur aðili/fyrirtæki, óþekktur aðili...) Auðvelt er að sjá á vefslóðinni hvar síðan er staðsett (hjá fyrirtæki, eigið lén...) Nýtur hýsingaraðilinn virðingar? Innihald og upplýsingagildi (0-30 stig) Hvernig er umfjöllunin um efnið (yfirborðskennd, ítarleg, málefnaleg, hlutdræg...)? Upplýsingarnar eru ítarlegar Upplýsingarnar eru nákvæmar og réttar Textinn á síðunni er vandaður og frágangur hans góður (málfar, stafsetning...) Orðfæri og orðaforði hæfia fyrirhuguðum lesendum síðu Tilgangur síðunnar er augljós Heimilda er getið og þær vel skráðar Titill síðunnar er lýsandi fyrir efni hennar Á síðunni er leitarvél Framsetning efnis og átlit (0-25 stig) Strax á fyrstu síðu sést hvernig vefurinn er skipulagður og hvaða valmöguleika notandinn hefur Sama heildarútlit er á öllum síðum Letur og bakgrunnur gera síðuna skýra og auðlesanlega Hægt er að breyta stærð leturs og lit á texta og bakgrunni Framsetning efnis er í samræmi við innihald Útlit síðunnar er aðlaðandi Auðvelt er að sjá hvar krækjur eru Krækjur eru flokkaðar Krækjur eru viðeigandi fyrir viðfangsefnið Krækjurnar virka Það er krækja aftur á forsíðuna frá öllum undirsíðum Tengist myndefni innihaldi síðunnar? Veitir það viðbótarupplýsingar eða er það til skrauts? Myndefni og hljóð hægja ekki á síðunni og trufla ekki lestur Síðan er auðveld í notkun Utgáfa og uppfærsla (0-15 stig) Á síðunni kemur fram hvenær hún var gerð Á síðunni kemur fram hvenær hún var síðast uppfærð Tekið er fram hversu oft og hvenær fyrirhugað er að uppfæra síðuna (ath. að það skiptir mismiklu máli eftir því hvort viðfangsefnið er sagnfræðilegt eða samtímalegt hversu oft upplýsingarnar eru uppfærðar) Aðgangur (0-10 stig) Vefslóðin er einföld Síðan hleðst fljótt niður Þarf að nota annan búnað en vefskoðarann til að skoða síðuna? Hægt er að fletta síðunni upp í leitarvélum Eru einhver skilyrði fyrir notkun síðunnar (persónuupplýsingar, gjald...) ? Ýmislegt (0-10 stig) Síðan hefur fengið vottun (t.d. hjá Sjá ehf. og Öryrkjabandalaginu) Síðan hefur fengið viðurkenningu (t.d. fyrir útlit, hönnun) Það kostar ekkert að nota síðuna Það er farið vel með persónulegar upplýsingar Auðvelt er að prenta út upplýsingar af síðunni Heildarstig 90-100 Frábær 80-89 Góð 70-79 I meðallagi 60-69 Sæmileg <60 Ekki góð Heimildir Inga Hrund Gunnarsdóttir, Katrín Baldursdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. 2003. Heimildir - Gæðamat upplýsinga á netinu. http://www.mr.is/%7Eingahrund/ netheimildir (sótt 19.12.2006). Kristín Ósk Hlynsdóttir. 2007. Aðgengiá vefnum. http://hi.is/~krosk/ gogn/adgengismal-koh.ppt (sótt 10.1.2007). Salvör Gissurardóttir. 1998. Matsblað fyrir vefsíður. www.ismennt.is/vefir/ari/framhald/matvefsidur.html (sótt 19.12.2006). Þórdís T. Þórarinsdóttir. 1999. Netið sem heimild. Hugleiðingar um mat á áreiðanleika upplýsinga á Internetinu. http://www.bokasafnid. is/23arg/thth99.html (sótt 19.12.2006). BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007 79