Conan Doyle, urðu að víkja fyrir Nóbelskáldinu, Konungasögum Norðurlanda og loks sjálfsævisögum montinna vitleysingja sem enginn veit hverjir eru í dag. Leiðindin sem fylgdu því að lesa dreggjar vagns- ins fóru stigvaxandi, en voru engu að síður skárri en að horfa út um gluggann og telja bíla sem keyrðu yfir Fossvogsdalinn (sem var mín helsta iðja á morgn- ana meðan beðið var eftir bókavagninum). Kom sér það vel að vera ættstór, þar sem maður gekk undir manns hönd að gauka að mér lesefni. Ymist það sem þeim fannst eðlilegt að drengur á mínum aldri læsi, eða það sem þeim fannst gaman að lesa sjálfum. Það úrval bóka sem mér barst frá ættingjum mínum var að því leiti ekki ólíkt því sem ýtt var um gangana í hill- unni góðu; að umfjöllunarefnið var fjölbreytt í meira lagi. Misjafnlega áhugasamur las ég megnið af þessu, hafandi lært af bókavagninum að ólíklegustu bækur gátu haldið athygli manns frá umferðinni. Og það er arfleifð hans. I gegnum tíðina hef ég lesið þónokkuð af bókum og þótt smekkur minn verði ekkert fágaðari með árunum, þá hef ég lesið nógu mikið af bókum til þess að einstaka vizkukorn slæðist með og öðlast þannig bókvit upp að einhverju takmörkuðu marki, þrátt fyrir alla þá annmarka sem æðri máttarvöld hafa kosið að gæða mig. Ævintýri Dansa álfar og dvergar úr klettum á síðum bóka ganga forynjur og tröll úr fjöllum á síðum bóka líða huldukonur, dísir og hafmeyjar um síður bóka flýja manna börn á vit ævintýra á síðum bóka. Kristjana Emilía Guðmundsdóttir BÓKASAFNIÐ 31. ÁRG. 2007 87