Dagur - 28.02.1998, Blaðsíða 2
II- LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
HÚSIN í BÆNUM
FREYJA
JÓNSDÓTTIR
SKRIFAR
í BYRJUN JANÚAR 1902 kaupir
Bergur Jónsson byggingarlóð
norðan við Laugaveg. Sama ár í
september hefur Bergur reist
íbúðarhús á Ióðinni, og var húsið
þá tekið til brunavirðingar. I skjöl-
um virðingamanna er því lýst á
eftirfarandi hátt: Ibúðarhús, tvær
hæðir og kjallari, byggt af bind-
ingi, 6.5 x 5.5 metrar að grunn-
fleti. Það er klætt utan með sam-
settum borðum, pappa og járni
yfir. Þak er járnklætt á súð og með
pappa í milli. Á aðalhæðinni eru
þrjú íbúðarherbergi og eldhús sem
allt er þiljað innan og herbergin
með panel og pappa innan á þilj-
um og neðan á Ioftum. Allt málað.
Á hæðinni er einn ofn og ein elda-
vél. Uppi eru fjögur herbergi, þilj-
uð og máluð. Þar eru tveir ofnar
og tvær eldavélar. Kjallari er undir
öllu húsinu með steyptu gólfi.
Við norðurhlið hússins er inn og
uppgönguskúr byggður af sama
efni og húsið sjálft. Allur þiljaður
að innan og málaður.
Bergur Jónsson átti húsið ekki
lengi og 6. febrúar 1905 selur
hann eignina í tveimur helming-
um, þeim Jóni Þorsteinssyni og
Jóni Sigmundssyni. Jón Þorsteins-
son var söðlasmiður og ári síðar
byggði hann á lóðinni verkstæðis-
hús, 7.5 x 3.1 metrar að grunn-
fleti, einlyft, byggt af bindingi og
með járnklæddu skáþaki.
I desember 1905 selur Jón Sig-
mundsson Jóni Þorsteinssyni sinn
helming eignarinnar. I þrjú næstu
ár á eftir rak Jón Þorsteinsson
þama söðlasmíði og verslun til
ársins 1909 en þá selur hann
Þórði Jónssyni alla eignina. Árið
1911 byggði Þórður skúr norður
úr íbúðarhúsinu að grunnfleti 7.5
x 3.6 metra.
Snemma á árinu 1914 selur
Þórður Jónsson firmanu „Von“
alla eignina ásamt lóð.
Árið 1908 áttu heima í húsinu:
Jón Þorsteinsson söðlasmiður,
fæddur 1874; María Guðlaugs-
dóttir kona hans, fædd 1885; Is-
leifur Þorsteinsson námsmaður,
fæddur 1878; Jóhann Isleifsson
vinnumaður, fæddur 1885; Óh'na
Einarsdóttir vinnukona, fædd
1887; og Ólafur Jónsson, skó-
smiður fæddur 1867. Eins og títt
var á þessum tíma var búið þröngt
og í þessu manntali eru fjögur^
önnur heimili í húsinu með sam-
tals sjö manns.
Eftir að fírmað Von varð eigandi
hússins bjó verslunarstjórinn á
efri hæðinni ásamt fjölskyldu
sinni og fleira fólki. Hallgrímur
Tómasson var þá verslunarstjóri
hjá Von.
Samkvæmt íbúaskrá 1915 eiga
heima í húsinu: Hallgrímur Tóm-
asson verslunarstjóri, fæddur 19.
desember 1877 að Stærri - Ár-
skógum Arnarneshrepp; Hansína
Hansdóttir húsfrú, fædd 25. febr-
úar 1881 að Stórabergi Vindhæi-
ishreppi; Tómas Hallgrímsson,
fæddur 24. apríl 1902 að Graf-
arósi við Hofsós; Jónas Hallgríms-
son, fæddur 12. mars 1910 á
Siglufirði; Charl E. Holm verslun-
armaður, fæddur 25. desember
1848 að Grafarósi við Hofsós.
Ennfremur áttu heima í húsinu:
Sigríður Anna Jónsdóttir vinnu-
kona, fædd 1899 á Norðfirði; Þór-
dís G. Bjarnadóttir húskona, fædd
28. október 1883 í Skoreyjum
TrT’fj 1
ÍL I ■m m : p*; M \i 'fl!
| ■ ■ n H 0 I B
| 1
Eftir að Gunnar i Von keypti húsið um 1920 lét hann hækka það um eina hæð og er myndin tekin er þær framkvæmdir stóðu
yfir.
Laugavegur 5 5
Von
húsið og meðal annars lét hann
lyfta því og gerði steinsteypuhæð á
milli kjallara gamla hússins. Þá
var gerð viðbygging úr stein-
steyjru, 32.37 fermetrar, við vest-
urenda hússins og gluggum á
framhlið breytt. Ilúsinu v'ar lyft
um 2.3 metra og þótti mörgum
Helgafellssveit; Marta Lárusdóttir
húskona, fædd 9. september 1853
að Innra - Hólmi á Akranesi; Sig-
urður Sigurðsson daglaunamaður,
fæddur 14. júlí 1876 að Ystakoti í
Vestur - Landeyjum; Báðhildur
Jónsdóttir húsfrú, fædd 5. október
1876 á Svalbarði í Bessastaðar-
hreppi; og dætur þeirra, Kristjana,
fædd 5. apríl 1903 að Ystakoti og
Guðlaug, fædd 15.nóvember
1906 á Selsskarðí í Garðahreppi.
1915 fær I lallgrímur Tómasson
að breyta götuhlið hússins, þannig
að í stað glugga á kjallara voru
gerðar útidyr. Leyfið var veitt með
þeim skilyrðum að tröppugangur
næði ekki Iengra út að götu en
hálfan metra. Ári síðar fær Hall-
grímur að breyta gluggum á út-
byggingu við húsið.
Árið 1920 er Gunnar Sigurðs-
son kaupmaður búin að eignast
húsið. Ekki er vitað með vissu
hvað ár hann kom þangað en það
mun hafa verið laust fyrir 1920.
Hann kaupir alla eignina ásamt
þcim rekstri scm í húsinu var, fir-
manu Von.
Fljótlega hóf hann að stækka
nýstárleg framkvæmd. Ári síðar
var gerð viðbygging við austurend-
ann og viðbygging sem var þar fyr-
ir rifín. Á svipuðum tíma fær
Gunnar keypta lóðarræmu til við-
bótar lóð sinni, að norðanverðu
við húsið.
Vorið 1927 er byggt á lóðinni
tvílyft geymsluhús (pakkhús) úr
steinsteypu. Ilúsið var oftast kall-
að Svarta-húsið.
Á fyrstu árum Gunnars á
Laugavegi 55 hefur varla liðið
meira en ár á milli stórfram-
kvæmda við stækkun og endur-
bætur á húsakynnum þar.
I brunaviröingu sem gerð var í
okóber 1924 eftir að búið er að
lyfta húsinu, eru á fyrstu hæð
tvær sölubúðir með borðum,
skúffum, skápum og hillum og tvö
skrifstofuherbergi. Á gólfum búð-
anna eru leirflísar og innan á
veggjum eru Iagðar postulínsflísar.
Að öðru leyti er hæðin þiljuð inn-
an og ýmist veggfóðruð eða mál-
uð. Á efri hæð eru Ijögur íbúðar-
herbergi, eldhús, baðherbergi með
klósetti og anddyri. I risi eru þrjú
íbúðarherbergi, eldhús og gangur.
Kjallari er undir öllu húsinu,
hólfaður í fímm geymsluklefa.
Inn- og uppgönguskúr er \ið
norðurhlið, byggður eins og eldri
hluti hússins. Hér að framan hef-
ur verið getið um verslunarhús
sem var rifið, þegar þessi virðing
Systurnar Guðriður og Gyða í Dömu & herrabúðinni. Dóttir Guðríðar er með þeim
á myndinni.
Margrét og Gunnar í stofunni á Laugavegi 55.
var gerð stóð það enn. Þá er getið
um viðbyggingu tvílyfta, við vest-
urgafl hússins, úr steinsteypu á
þrjá vegu, en Ijórða hliðin er gafl
eldra hússins. Þakið er úr borða-
súð með pappa og járni yfir.
Á neðri hæðinni eru tvö lítil
herbergí, stigagangur og opin
gangur. Á efri hæðinni eru tvö
íbúðarherbergi og gangur. Allt
þiljað innan og ýmist veggfóðrað
eða málað. Kjallari er undir allri
viðbyggingunni með steinsteypu-
gólfi sem notaður er til geymslu.
Þá var einnig búið að byggja
þvottahús úr steinsteypu á lóð-
inni, með járnþaki á borðasúð,
2.6 x 3.0 metrar að grunnfleti.
Á neðri hæð hússins hafa alltaf
verið verslanir. En lengst af var í
húsinu verslunin Von, sem Gunn-
ar Sigurðsson rak ásamt frjöl-
skyldu sinni.
Nýlenduvöruverslun var í við-
byggingunni \ið austurenda húss-
ins sem Páll Hallbjörnsson rak.
Næsti kaupmaður á eftir honum
var Ásgeir Ingimarsson. Eftir að
Ásgeir hætti að versla 1945 settu
dætur Gunnars, Gyða og Guðríð-
ur, á stofn Dömu & herrabúðina
og ráku hana sjálfar þar til fyrir
fáum árum að aðrir tóku við rek-
stri hennar. Fyrir um átta árum
var skipt um innréttingar í versl-
uninni.
Verslunina Von rak Gunnar Sig-
urðsson í þrjá og hálfan áratug og
verslaði bæði með unnar og fer-
skar kjötvörur. Einnig lagði hann
kapp á að vera með fjölbreytt úrval
af grænmeti og ávöxtum. Kjötbúð-
in Von var á sínum tíma mjög
þekkt nafn í heimi viðskiptanna.
Eftir að verslunin hætti var G.B.
Silfurbúðin í plássinu sem Von
hafði verið. Amatör, verslun með
fílmur og myndavélar var í vestari
viðbyggingunni og einnig var Guð-
mundur Hannar úrsmiður um
árabil með verslun og verkstæði í
húsinu. Ljósmyndastofa var í
mörg ár á efri hæð hússins.
Gunnar Sigurðsson, sem oftast
var kallaður Gunnar í Von, var
einn af kunnustu athafnamönn-
um Reykjavíkur. Hann var fæddur
á Fossi á Skaga. Olst upp í stórum
systkinahóp og þóttí heimili for-
eldra hans bera af í myndarskap.
Kona hans var Margrét Gunnars-
dóttir frá Ysta - Gili í Langadal og
er henni lýst sem mikilli gáfu og
mannkostakonu. Faðir hennar var
Gunnar Jónsson frá Glaumbæ í
Skagafirði og móðir hennar Guð-
ríður Einarsdóttir frá Bólu í
Skagafírði. Margrét var kvenna-
skólagengin frá Húsmæðraskólan-
um á Blönduósi. Hún þótti með
afbrigðum myndarleg húsmóðir
og var oft gestkvæmt á heimili
þeirra hjóna. Þau eignuðust fimm
dætur sem allar tóku drjúgan þátt
í rekstri búðarinnar og einnig við
rekstur búsins á Gunnarshólma.
Það má með sanni segja að til-
vera Gunnarshólma sé ævintýri
ungra hjóna. En þau Gunnar og
Margrét reistu sér sumarbústað
rétt utan við borgina 1928. En bú-
staöurinn varð að stórbýlinu
Gunnarshólma sem blasir við þeg-
ar er ekið um Suðurlandsveg.
Laugavegur 55 er reisulegt hús
með milda sögu sem hér að fram-
an hefur verið sagt ágrip af. Núna
eru í húsinu þrjár verslanir: Dömu
& herrabúðin, Carl A. Bergmann
úra og skartgripaverslun og
Straumar, tískuverslun með
dömufatnað.
Á efri hæð er stór og glæsileg
íbúð og einnig er íbúð í risi. Hús-
inu hefur alltaf verið sýndur sómi
og verið vel um það hugsað. Það
er nú í eigu afkomenda Gunnars
og Margrétar.
Helstu heimilciir eru frá
Borgarskjalasafni.