Dagur - 01.04.1998, Blaðsíða 1
Fiill langt gengið í
reykmgaáróðrmiun
Tilmæli tóbaksvarnax-
ráðs til sveitarstjóma
urn að ráða ekki ungl-
inga sem reykja mæl-
ast misvel fyrir.
„Mér íínnst þetta fráleitt og ég er
andsnúinn svonalöguðu. Eg efast
um að þetta sé rétta leiðin til að
snúa reykingafólki til rétts vegar,“
segir Ossur Skarphéðinsson, for-
maður heilbrigðis- og trygginga-
nefndar Alþingis.
Tóbaksvarnarráð og Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur hafa sent
erindi til sveitarstjóma í landinu
þar sem þess er farið á leit að þær
ráði ekki unglinga sem reykja í
sumarvinnu. „Okkar tillaga er sú
að tekið sé fram í auglýsingunni
... að þeir verði aðeins ráðnir sem
reykja ekki og nota ekki tóbak ...
Hinum yrði boðið upp á nám-
skeið að hætta að reykja,“ segir
orðrétt í erindinu.
Þar segir einnig að þetta yrði
liður f framtíðaraðlögun unglinga
að vinnumarkaðnum þar sem æ
algengara verði að fyrirtæki ráði
aðeins reyklausa starfsmenn.
Einnig segir í bréfinu að verði
farið að þessum tilmælum verði
að gera unglingum það ljóst að
það varði brottrekstur að ráða sig
í vinnu á fölskum forsendum.
Fráleitar aðferðir
Össur Skarphéðinsson segir að
Karl Björnsson, bæjarstjóri á Selfossi.
Verður næsta skrefað hvetja til þess
að unglingar sem reykja verði útilokað-
ir frá öðrum skólum.
fráleitt væri að hefta atvinnu-
möguleika fólks þó það reykti og
verið gæti að aðgerðir af þessu
tagi samræmdust ekki stjórnar-
skránni og jafnræðisreglum
stjórnvalda.
„Vinnuskóli Reykjavíkur er
reyklaus vinnustaður og því reyk-
ir enginn þar. Hvort reykt er þar
fyrir utan vitum við ekki og þjón-
ar engum tilgangi að spyrja út í
það,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri.
Full langt gengið
„Mér finnst þetta erindi fremur
sérstakt og að hér sé full langt
gengið,“ sagði Karl Björnsson,
bæjarstjóri á Selfossi, í samtali
við Dag. „Eg er ekki talsmaður
unglinga sem reykja, en mér
hugnast ekki að verið sé að skipta
þeim upp í tvo hópa, 1. og 2.
flokks, eftir því hvort þau reykja
eða ekki. Mér er til efs að þessi
baráttuaðferð Tóbaksvarnarráðs
sé rétt - og það er spurning hvort
áróður af þessu tagi skilar tilætl-
uðum árangri." Karl Björnsson
tók fram að Selfossbæ hefði ekki
borist þetta erindi, svo sér væri
kunnugt, og það hefði því ekki
fengið formlega umfjöllun. Hann
sagði að unglingavinnan væri
réttilega vinnuskóli og því væri
það umhugsunarefni hvort næsta
skref gæti orðið að hvetja til þess
að unglingar sem reykja yrðu úti-
lokaðir frá öðrum skólum.
- SBS
Vísir - nýr
heimur á
Netinu
Frétta-, skemmti- og þjónustu-
miðillinn Vísir, sem birtist á Net-
inu í dag, mun bjóða upp á frétt-
ir af innlendum og erlendum
vettvangi auk margvíslegrar þjón-
ustu og samstarfsaðila. Að baki
fréttum á Vefnum standa rit-
stjórnir þriggja blaða - Dags, DV
og Viðskiptablaðsins - auk starfs-
manna Vísis. Má því með sanni
segja að stærsta ritstjórn landsins
annist stöðugan fréttaflutning á
vefnum sem er öllum opinn.
Stefnt er að því að stöðugt
flæði frétta verði frá klukkan sjö
að morgni til miðnættis. Auk al-
mennra frétta má m.a. nefna um-
fjöllun um íþróttir, viðskipti, veð-
ur og kosningarnar í vor og sér-
staka vefi fyrir smáauglýsingar,
bílamarkað, ferðaskrifstofu og
ættfræðiupplýsingar.
Vísir er samstarfsverkefni DV,
Dags, Viðskiptablaðsins, Skímu
og margra fleiri. Með Degi í dag
fylgir sérstakur fjórblöðungur um
Vísi.
Vefurinn var opnaður i morg-
un, en formleg opnunarhátíð
verður £ Borgarleikhúsinu síðdeg-
is.
Slóð Vísis er: http://www.visir.is
Sjá nánar á bls. 21
Blessuð sólin bræðir allt
Baráttan við náttúruöflin tekur á sig ýmsar myndir, eins og sjá mátti á skautasvelli Akureyringa þar sem norðlenskir skautamenn
kepptust við að moka snjó á skautasvellið til að vernda það gegn sólbráðinni. Blessuð sólin hafði betur og varð að aflýsa
fshokkikeppni sem vera átti í gærkvöld. - mynd: bös
Katrín Fjeldsted, læknir.
Kiitrín ávallt
reiðubúin
„Það hefur enginn hringt í mig
enn þá en verður maður ekki að
vera eins og skátarnir, „ávallt
reiðubúin" enda er ég fyrsti vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík," sagði Katrín Fjeldsted
læknir aðspurð hvort hún væri
farin að búa sig undir að taka við
af Friðrik Sophussyni þegar hann
hættir um miðjan mánuðinn, eins
og talað er um.
„Það kallar því á nokkra endur-
skoðun á mínum störfum öllum
verði ég kölluð inn á þing. Það
skiptir að visu nokkru máli
hvenær kallið kemur. Það er ekki
sama hvort það verður strax í vor
eða ekki fyrr en í haust," segir
Katrín. - s.DÓR
Wll.01
Perfecta^
y
Neysluvntnsdælur
SINDRI
BORGARTÚNr'Tf SiMI 562 722
-sterkur í verki