Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 4
20 -ÞRIDJUDAGUR 12. MAÍ 1998 ro^tr LIFIÐ I LANDINU „Kannanir sýna aö almenningur eryf- irieitt mátfallinn flestu sem frá þessari stjórn kemur enda sitja í henni landsbanka- flokkarnir tveir, sem gerðu réttast í þvi að taka upp þá hugmynd sem Hannes Hólm- stelnn fékk og var góð: að sameinast um grímulausa hagsmunagæslu sína.“ Samkvæmt skoðana- könnun sem birtist í DV í gær eru um 70 prósent Iandsmanna andvíg tertu- frumvarpi félagsmálaráð- herra. Það er ekki að undra. Kannanir sýna að almenningur er yfirleitt mótfallinn flestu sem frá þessari stjórn kemur enda sitja í henni lands- bankaflokkarnir tveir, sem gerðu réttast í því að taka upp þá hugmynd sem Hannes Hólmsteinn fékk og var góð: að sameinast um grímulausa hagsmuna- gæslu sína. Onnur nýleg skoðanakönnun sýnir hins vegar yfirburðafylgi þessarar ríkisstjórnar meðal almennings. Fólkið styður stjórnina en ekki stefnumál henn- ar. Fólk styður stjórnina til allra illra verka. Þversögn? Stúpid þjóð í vanda? Nei, öðru nær. Fólkið veit sem er að það hefur enn sem komið er engan valkost. Það lít- ur enn á litlu flokkana eins og leiðinlegu krakkana sem hafðir eru útundan í bekknum. Það veit sem er að liðsoddar þeirra harma það eitt að fá ekld að vera í stjórn með Davíð. Davíð er í huga okkar óhjákvæmilegur forsætisráðherra; hann er eins og suðvestanáttin hér í bænum; hann er hlutskipti okkar. *** Utúrdúr: A dögunum komu fregnir af áformum fólks í svokölluðum vinstri armi Alþýðubandalagsins um að stofna nýtt stjórnmálafélag, ef ekki flokk, til þess að andæfa sameiningaráformum A-flokk- anna. Þetta voru góðar fréttir. Nú fær fólk sem andvígt er markaðshlutanum af hinu blandaða hagkerfi Ioksins vettvang sem því hæfir, og fari allt á besta veg kann að koma út úr þessari þróun allri flokkakerfið sem ég var að stinga upp á fyrir nokkru við úfnar undirtektir Alla- balla: breiður jafnaðarmannaflokkur og svo aftur lítill sósíalistaflokkur til vinstri sem veitir nauðsynlegt aðhald í velferðar- og umhverfismálum án þess að bera of mikla ábyrgð með setu í ríkisstjórnum. Þessi áform sýna að fólkið sem tekið hef- ur í arf að líta á kratana sem höfuðstoð auðvaldsins, fólkið sem er andvígt kredit- kortum, interneti, vídeói og litasjónvarpi situr ekki lengur í miðju flokksins og stjómar ferðinni heldur er það komið út í horn. *** 70 prósent landsmanna eru andvíg tertu- frumvarpinu. Við þekkjum nefnilega stjórnarflokkana og hljótum að bregðast við af alefli þegar sýnt þykir að nú standi til að afhenda gæðingum öll gögn og gæði á hálendinu án þess að hirða um al- mannaheill, en það hugtak er stjómar- flokkunum óskiljanlegt. Nú þegar tekist er á um hálendið og skipulag þess í fram- tíðinni og yfirráð yfir þvf er það þyngra en tárum taki að ekki skuli vera starfandi í landinu umhverfisráðuneyti. Talsmaður grund- aður ótti ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki sem þar á bæ er flokkaður undir hryðju- verk er Halldór Asgrímsson en eins og þjóð veit hefur hann þá stefnu í umhverf- ismálum að ganga í selskinnsjakka. Eftir að Guðmundur Bjarnason sem ber titil- inn umhverfisráðherra gerði sig sekan um þá óhæfu að átta sig á tilgangi loftlags- ráðstefnunnar í Kyoto fær hann ekki að tjá sig um neitt sem umhverfí viðkemur - ekki einu sinni sem Iandbúnaðarráð- herra. Það er full ástæða til að óttast þetta frumvarp Páls Péturssonar. Þegar fólk vill að farið sé hægt í að úthluta yfirráðum yfir þessari auðlind þá er til dæmis um að ræða velgrundaðan ótta við að reist verði skringileg hús. Að í miðri tign öræfanna rísi einhvers konar Hveragerði - ef ekki hreinlega einhvers konar íslenskt Las Vegas, eða hvað annað sem fjárþurfi braskarar í litlum sveitafélögum með góð tengsl inn í kvótaflokkana láta sér detta í hug að taka upp á til að verða sér úti um auðfenginn gróða. Það er til dæmis um að ræða velgrund- aðan ótta við að hálendið verði allt gaddavír vaxið, þessu eftirlæti íslenskrar bændastéttar sem ásamt hinu eftirlæti bændastéttarinnar, skurðunum, hefur svo víða gefið landinu okkar ásýnd sem minn- ir einna helst á myndir úr fyrri heimstyrj- öldinni. Það er til dæmis um að ræða velgrund- aðan ótta við að úthlutun á þeim gæðum sem hálendið geymir verði ámóta réttlát og þegar hafsins gæðum var deilt út til útvalinna undir forystu Halldórs Asgríms- sonar. Það er til dæmis um að ræða velgrund- aðan ótta við að verið sé að opna Lands- virkjun Ieið til að róta og raska og eyði- leggja og sökkva - og umturna viðkvæmu vatnakerfí landsins með ófyrirsjáanlegum afleiðingum undir því fororði að ef ekki komi stóriðja bíði Islendinga miðalda- myrkur, fátæktarhokur og sultarlíf. *** Það er um að ræða velgrundaðan ótta. Við þekkjum okkar stjórnarherra; landinu er stjórnað ennþá af úthlutunar- og skömmtunarstjórum af sauðarhúsi Sverr- is Hermannssonar. En þetta snýst líka um sýn. Pétur Gunnarsson rithöfundur sagði nýlega í erindi um Daginn og veg- inn í útvarpinu: „Oræfín eru dulvitund Iandsins og það er í dulvitundinni sem draumarnir búa og sköpunin, allt sem er dýrast og upprunalegast." Þar mælir Pét- ur manna heilastur að vanda. Gæði öræf- anna felast f því að þau eru ósnortin. Gildi þeirra er að gildi þeirra er ekkert. Þetta er ómanngerð náttúra; og eftir því sem árin líða og taktföst og eintóna og grá og malbikuð menningin skríður með sömu skiltum sínum yfír allar deildir jarð- ar eykst sífellt gildi staða á borð við öræfí Islands. Þau eru eitt af því fáa sem er eft- ir í heiminum sem ekki er einnota. Þau eru eitt af því fáa sem eftir er í heiminum þar sem heyrist í Almættinu. UMBÚDA- LAUST Á slóðum Njálu og NóMsskáldsins Jón Karl Helgason á mikið hrós skilið fyrir bók sína Hetjan og höfundurinn, sem nýlega kom út hjá Máli og menningu. Þetta er skemmtileg og áhugaverð bók, og reyndar býsna frumleg í efnistök- um. Ein meginhugmynd Jóns Karls í þessu verki er að höfund- urinn hafi leyst hetjuna af hólmi sem mest áberandi persónan í menningarsögu landsmanna, og Jón Karl skautar fyrirhafnarlítið milli Njáls sögu og Nóbelsskálds- ins meðan hann styður þessa skoðun sína góðum rökum. Þetta er bók sem allir aðdáendur Njáls sögu og Hall- dórs Laxness ættu að fagna innilega, og það er enginn smáhópur sem fyllir þann flokk. MEIMiMIIMGAR VAKTIN Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar Það er erfitt að lýsa þessari bók í stuttu máli, svo víða kemur höf- undur við. Einn kafli bókarinnar Ijallar um viðhorf þjóðarinnar til þeirrar Iánlausu og taugabiluðu dekurrófu Hallgerðar langbrókar. Annar, og sá kostulegasti, segir frá sérkennilegum atburðum þar sem lifendur fullyrða að þeir hafi komist í dulrænt samband við persónur Njálu. Málarekstur og vafstur vegna umdeildrar útgáfu Halldórs Laxness á fornsögum með nútímastafsetningu fær mik- ið vægi og úr því máli býr Jón Karl til leikþátt. Að mínu mati heppnast sú til- raun ekki fyllilega, gerir sig einfaldlega ekki á prenti. En hvað um það, Jón Karl hefur skrifað sérlega læsilega og eftir- Jón Karl Helgason, rithöfundur, á hrós skilið fyrir nýútkomna bók, Hetjan og höfundurinn. Bókin er áhugaverð og frumleg í efnistökum. tektarverða bók sem byggir á traustri fræðimennsku án þess að úthýsa létt- leikanum. Þetta er ákaflega skemmtilegt verk um hið sterka og nána tilfinninga- samband fólksins £ landinu við bók- menntir sínar, höfunda þeirra og persón- ur. Að lokum verður að geta bréfs Ragn- ars í Smára, skrifað í desembermánuði 1955, þar sem hann lýsir Nóbelsverð- launahátíðinni og birt er í bókarlok. Þetta er frábærlega skemmtilegt bréf, fullt af húmor og tilfinningu. Þegar maður les það þykir manni mikið mein að Ragnar skyldi ekki hafa sett endur- minningar sínar á blað. Þær hefðu orðið dýrðleg lesning.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.