Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 1
1 Deilt um kvóta á Vatneyri BA Byggðastofnim neitar að samþykkja flutning kvóta af Vatneyrinni frá Patreksfirði þar sem skipið hafi rýmað í verði eftir kvótadóm Hæstaréttar. Fiskistofa hefur sem kunnugt er kært útgerð Vatneyrinnar frá Pat- reksfirði fyrir að veiða án þess að hafa til þess kvóta og jafnframt svipt skipið veiðileyfi. Skipið kann hins vegar að hafa úr næg- um kvóta að moða á næsta fisk- veiðiári vegna afstöðu Byggða- stofnunar. Svavar Guðnason, útgerðar- maður Vatneyrinnar, keypti hana af útgerðinni Jóni Erlingssyni í Sandgerði en skipið hét áður Er- lingur. Tæplega 500 tonna þorskígildiskvóti fylgdi ekki með í kaupunum og var kveðið á um það í kaupsamningi. Honum hef- ur hins vegar ekki enn verið þing- lýst vegna þess að Byggðastofnun hefur neitað að samþykkja að kvóti skipsins verði færður af því. Byggðastofn- un á veð í skipinu og lögum sam- kvæmt er ekki hægt að færa kvóta af skipi án blessunar veðhafa enda ljóst að verð- mæti veðsins rýrnar veru- lega við það. Allir aðrir veðhafar hafa hins vegar fallist á kvóta- flutninginn. I bókum Fiskistofu er Vatneyrin þ\a enn skráð með 492 tonna þorskígildiskvóta. Eyþór Jónsson, einn eigenda Jóns Erlingssonar, segir að afla- hlutdeildin sé enn á skipinu. Astæðan sé sú að skipið hafi lækkað í verði eftir kvótadóm Hæstaréttar og því hafi Byggða- stofnun neitað að aflétta veðrétt- inum til að halda Vatneyrinni í hærra verði. Standi Byggðastofn- un enn fast á sínu 1. sept- ember nk. hafi þeir ekki umræddan kvóta til um- ráða fyrir sldp útgerðarinn- ar, snurvoða- bátinn Jón Erlingsson og togarann Hauk, og Svavar Guðnason gæti þá hafið nýtingu hans. Kannski borgar Byggðastofn- n n „Kannski borgar Byggðastofnun fyrri eigendum kvótann, og þá á ég bara þennan kvóta sem er á bátnum í dag sem er að verðmæti um 400 milljónir króna,“ segir Svavar Guðnason. „Ef Byggða- stofnun verður ekki búin að færa fastakvótann af bátnum áður en nýtt fiskveiðiár gengur í garð 1. september nk. tapa fyrri eigendur kvótanum sem þá verður úthlut- að.“ Það breytir því ekki að búið er að veiða kvóta skipsins á þessu ári og efnahagsbrotadeild ríkis- lögreglustjóra er að rannsaka meint brot Vatneyrinnar á fisk- veiðilöggjöfinni með veiðum utan kvóta í febrúar síðastliðn- um. „Það hefur ekkert verið talað við mig af hálfu ríkissaksóknara en öll skipshöfnin hefur verið yf- irheyrð. Ég er yfirlýstur sakamað- ur eftir þessar kvótalausu veiðar og fæ ekki að bera hönd fyrir höf- uð mér. Mér er sagt að ástæðan séu annir. Fyrst var það mál Níg- eríumanns en síðan komu fleiri mál sem töfðu málið gegn mér,“ segir Svavar Guðnason. - GG Vatneyrin BA var seld án kvóta en Byggðastofnun neitar að fallast á það. Hjörleifur Guttormsson. Hjörleifur fram í Reykjavík Ögmundur Jónasson, alþingis- maður, verður í fyrsta sæti á lista Vinstri hreyfingar - græns fram- boðs í Reykjavík en framboðslist- inn var kynntur í gærkvöld. I öðru sæti er Kolbrún Halldórs- dóttir leikstjóri og athygli vekur að Hjörleifur Guttormsson, þingismaður Austurlands, er í þriðja sæti. Drífa Snædal, fyrr- verandi formaður Iðnnemasam- bandsins, er f fjórða sæti og Guðmundur Magnússon, for- stöðumaður hjá Sjálfsbjörg, í fimmta sæti. Um svipað leyti og sjálfstæðismenn streymdu á landsfund í fálkum skreyttri Laugardalshöllinni fór þessi fálki á stjá yfir Pollinum á Akureyri. Og á meðan landsfundarfulltrúar biðu með öndina í hálsinum eftir ræðu formanns- ins, lét þessi fálki til skarar skríða og veiddi önd sér til matar. Sjá fréttir af landsfundi Sjálfstæðisflokksins á bls. 5. Alexander Briggs fyrir dómi: Fékk 7 ára dóm eftir að íslendingur Ijóstraði upp um e-pillusmygl. Briggs fullyrðir að einhver annar hefði sett efnið í tösku sína. Sjö áríyrir e-pfllu- smygl Bretinn Kio Alexander Ayobam- bele Briggs var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að hafa smyglað 2.031 e-pillu (ecstasy) til landsins. Er þetta þyngsti dómurinn sem kveðinn hefur verið upp í máli þar sem ein- göngu fíkniefni koma við sögu, en hinn ákærði mun áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Dómari málsins, Pétur Guð- geirsson, fann ekkert málsbæt- andi í framburði og aðstæðum hins ákærða og þótti frásögn hans almennt losaraleg og ekki trúverðug. Eins byggði hann ekki á framburði vitnisins Guð- mundar Inga Þóroddssonar, sem ljóstraði upp um ákærða í því skyni að fá einhverja ívilnun hjá lögreglu eða ákæruvaldi í öðru máli sem hann átti hlut að. Briggs kom til landsins frá Spáni 1. september í fyrra og fundust e-pillurnar í tösku hans, þar sem einnig fundust buxur sem ákærði kannaðist ekki við og í vasa þeirra uppdrættir af Leifsstöð. Hann hefur frá upp- hafi neitað sök og fullyrt að hann hafi ekkert vitað um að efnið væri í töskunni, en komið til landsins í atvinnuleit. Islend- ingurinn „Gummi“ eða einhver annar hefði laumað efninu í töskuna. Styrldeiki efnisins var nokkuð undir meðalstyrkleika og Briggs hefur ekki hlotið dóm áður. Hins vegar leit dómarinn til þess að um mjög hættulegt efni væri að ræða og að Briggs hefði verið ósamvinnuþýður og óstöðugur í framburði. - FÞG Afgreiddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI • SÍMI 462 3524 WORiDWfíX EXPftESS EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.