Dagur - 18.03.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 18.03.1999, Blaðsíða 1
Heimameim leysi frambodsdeilumar Margrét Frímanns- dóttir, talsmaður Sainíylkiiigariiiiiar, segir það kjördæma- ráðsins að leysa deil- nr imi framboðslist- anii á Norðurlandi eystra og neitar því að deilumar hafi skaðað Samfylkinguna. Margrét Frímannsdóttir, tals- maður Samfylkingarinnar og for- maður Alþýðubandalagsins, hyggst ekki hafa opinber afskipti af uppröðun á lista Samfylking- arinnar á Norðurlandi eystra. Eins og lesa má í Degi í dag, er uppi algjör pattstaða, þar sem ákveðnir aðilar innan Samfylk- ingarinnar virðast ekki geta hugsað sér að Sigbjörn Gunn- arsson, réttkjör- inn sigurvegari prófkjörs, leiði listann. Fjármál Sigbjörns hafa verið til skoðunar en sjálfur talar hann um rógbera sem svert hafi mannorð sitt. „Eg mun ekki beita mér í þessu máli heldur er það á könnu kjör- dæmisráðsins fyrir norðan. Það er stefnt að því að halda kjördæmis- ráðstefnu um helgina og þar á ég von á að gengið verði frá framboðslista fyrir Norðurland eystra,“ segir Margrét. Margrét segist þó fylgjast vel með gangi mála, enda upplýsir Finnur Birgis- son, formaður kjördæmisráðs á Norðurlandi eystra, í blaðinu í dag að forysta Samfylkingar- innar hafi fengið upplýsingar um fjárhag Sig- björns. Margrét vill ekki upplýsa um persónulegar skoðanir hennar á því. „Málið er alfarið í höndum heimamanna. Enn liggur engin tillaga fyrir um Iistann og ég sé ekki ástæðu til að tjá mig um þetta áður en þeir hafa náð nið- urstöðu varðandi uppröðun. Minn vilji skiptir í því efni engu.“ Gísli Bragi Hjartarson, framá- maður í Alþýðuflokknum og bæj- arfulltrúi á Akureyri til langs tíma, er sammála Sigbirni um að Samfylkingin hafi skaðast á þessum málarekstri öllum. Því neitar Margrét. Samfylkingin njóti þvert á móti mikils fylgis í skoðanakönnunum enda væri það skrýtið ef dráttur á uppröð- un í einu kjördæmi gæti skaðað flokkinn á landsvísu. Framboðs- frestur sé ekki enn runninn út og oft hafi áður verið ágreiningur innan annarra flokka með upp- röðun. D-dagur framundan Það má segja að D-dagur nálgist hjá Samfylkingunni. Stríðsá- stand varir norðan heiða og allir þeir sem blaðið hefur rætt við segja brýnt að leysa hnútinn sem allra fyrst. Fæstir virðast þó sjá fyrir sér handbragðið. - BÞ Margrét Frímannsdóttir: „Ég mun ekki beita mér í þessu máli heldur er þaö á könnu kjördæmisráðsins fyrir norðan." Tímamóta rannsókn Asgeir Theodórs, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, hefur undanfarið stjórnað íslenskum hluta fjölþjóðlegrar rannsóknar á meðferð á einkennum melting- arónota. Rannsókninni er Iokið og þykja niðurstöðurnar stór- merkar. Þær hafa verið birtar í nýjasta hefti hins virta lækna- tímarits „New England Journal of Medicine". Meltingarónot eru talin hrjá þriðjung Islendinga. Erfiðlega hefur gengið að greina og lækna ónotin á markvissan hátt en ein- kenni kvillans koma m.a. fram í kviðverkjum, uppþembu, flökur- leika og brjóstsviða. Niðurstöður Asgeirs og félaga er að sérstök baktería, Helic- obacter pylori, er ekki meginá- stæða einkennanna eins og talið hefur verið. Þetta þýðir að kostn- aðarsöm sýklalyfjameðferð sem algeng hefur verið, nýtist ekki. Þar með sparast gífurlegir fjár- munir í heilbrigðiskerfinu. - BI> Reiðmaðurinn fór fetið í gær norðan heiða sem var við hæfi í vetrarkyrrðinni. Hins vegar er spáð umhleypingum næstu daga og rysjóttri tíð. mynd brink — Páll Pétursson. Páll fer í hjarta- aogerð Páll Pétursson félagsmálaráð- herra verður frá störfum á næst- unni þar sem hann þarf að fara í hjartaaðgerð. Til stóð að ráð- herrann færi færi í kransæða- blástur, en við nánari skoðun töldu læknar öruggara að hann færi í aðgerð. Yfirleitt eru menn frá í um 3 mánuði vegna slíkrar aðgerðar og eftirmeðferðar og er ljóst að Páll mun ekki verða kominn á fullt skrið í kosninga- baráttunni. Páll Ieiðir lista fram- sóknarmanna á Norðurlandi vestra og mun staða hans þar ekki breytast. Arni Gunnarsson sem skipar annað sætið segir að menn muni ekki láta tímabundin for- föll af þessu tagi hafa of mikil áhrif. „Aðgerð af þessu tagi þýð- ir væntanlega að Páll verður ekki kominn aftur á fullum af- köstum í kosningabaráttuna, þannig að það er ljóst að hin daglega vinna í kosningabarátt- unni mun lenda meira á okkur hinum sem erum neðar á listan- um,“ segir Arni. Hann segir þó að Páll verði með í kosningabar- áttunni þó aðstæður valdi því að það verði með öðrum hætti en annars hefði orðið. „Það breytir ekki því að hann mun leiða þennan lista,“ segir Árni enn fremur. Ekki slæm áhrif Aðspurður hvort hann óttist ekki að þetta muni hafa slæm áhrif á kosningabaráttuna segir Arni: „Nei. Það er mín trú að þetta muni ekki spilla fyrir okk- ur. Eg held að kjósendur á Norðurlandi vestra gleymi ekki sínum foringja þó hann þurfi að fara í aðgerð sem ekki er hægt að fresta. Þúsundir Islendinga fara í aðgerðir af þessu tagi á hverju ári og mæta til starfa að nýju tvíefldir og ég er sannfærð- ur um að það verður tilfellið hjá Páli,“ sagði Arni Gunnarsson. | Afgreiddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir T+MÆM WOfílDW/DE EXPRBSS trúlofunarhringar EITT NÚMER AÐ MUNA GULLSMHDIR \Jí/\ SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 5351100 ÞREFALDUR 1. VINNINGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.