Dagur - 19.03.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 19.03.1999, Blaðsíða 1
t Selma Bjömsdóttir var valin til þess aðflytja Evróvisjónlagið í ár. Hún hefurbakgmnn úr söngleikjum en er allsendis ekki óvön að koma fram í sjónvarpi. Þessa dagana erverið að vinna myndhand með laginu. Evróvisjónlag íslendinga, „I am all out of luck“, verður frumflutt í sjónvarpsþættinum Stutt í spunann föstudaginn 9. apríl, en eftir það verður myndbandið sýnt í sjónvarpstöðum út um alla Evr- ópu. Keppnin sjálf verður síðan í lok maí í Jerúsalem. Selma Björnsdóttir söngkona segir ekki alveg komið á hreint hverjir fari út til þess að flytja lagið þar. Breyttar regl- u r Reglum keppn- innar hefur ver- ið bréytt og nú þurfa keppendur ekki að syngja á móðurmáli sínu heldur geta þeir sungið á hvaða tungumáli sem er og mun íslenska fram- Iagið verða flutt á ensku. Þetta er gert til þess að þjóðir sem eiga erfitt tungumál standi jafnvel að vígi og aðrar, þar sem keppnin er lagakeppni. „Ég Reglum keppninnar hefur verið breytt og nú þuifa keppendur ekki að syngja á móð- urmáli sínu heldur geta þeirsungið á hvaða tungumáli sem erog mun íslenska framlagið verða fluttá ensku. hugsa að þetta sé bara til þess að þjóðir eins og við eigi mögu- leika á að vinna," segir Selma. Evróvisionlag Islendinga í ár heitir „I am all out of Luck“ og samdi Þorvaldur Bjarni Þorvalds- son það. Þau hafa áður unnið saman og áttu meðal annars fjögur lög í kvik- myndinni Spor- laust. Þessa dag- ana er Þorvaldur að leggja loka- hönd á lagið í hljóðveri í London. Þar nýtur hann dyggrar aðstoðar hljómlistarmannanna Ash og James Sanger. „Lagið var að mestum hluta tekið upp í Stúdíó Sýrlandi en núna er verið að mixa loka mixið af laginu úti í London. Það eru ýmsir tónlistarmenn sem hafa spilað með okkur," segir Selma. Hún segir að lagið sé danspopp en finna megi í því „techno"- áhrif. Full viiina Oskar Jónasson er leikstjóri að myndbandinu en það er tekið upp víðsvegar um borgina; á Hót- eí Borg, Matvælaskólanum í Kópavogi og víðar. Filippía Elís- dóttir fatahönnuður sér um bún- Úskar Jónasson leikstýrir myndbandinu sem sjónvarpið gerir viö Evróvisioniag- ið. Handritið er samið afhonum, Seimu og Fiiippíu Elísdóttur, fatahönnuði. ingana. „Hún gerði handritið að myndbandinu ásamt okkur Osk- ari. Það er sjónvarpið sem sér um að taka myndbandið upp. Þetta er léttvæg saga af þjónustustúlku keppandi númer 13. Þó að það sé óhappatala er Selma hvergi banginn og brosir framan í heim- inn. -pjesta á dálitið erilsömu veitingahúsi og sýnir erfiðan vinnudag hjá henni þar sem ekki gengur allt upp.“ Selma segir að texti íagsins sem Sveinbjörn I. Baldvinsson samdi, auk þeirra Þorvalds, sé samt ekkert endilega um þjón- ustustúlku, það sé bara sagan í myndbandinu. Hún segir að Iag- ið fjalli um að þó ekki gangi allt upp á hverjum einsta degi sé málið bara að brosa framan í heiminn. Hún segir að markmið- ið hjá sér sé fyrst og fremst að hafa gaman af þessu, þetta sé mjög skemmtileg vinna. Selma segir það vera fulla únnu í augnablikinu að vinna í kringum þetta lag en þegar myndbandsgerðinni er Iokið taki við vinna í Borgarleikhúsinu, þar sem hún leikur eitt aðalhlutverk- ið í Litlu Hryllingsbúðinni. Þegar hefur verið dregið um röð í keppninni og er Selma Myndbandið fjallar um brosandi þjónustustúlku á erilsömu veitingahúsi, þar sem allt gengur á afturfótunum. myndir: hilmar þór Umboðsmenn um land allt Nýjustu hljómtækjastæðurnar frá CDC-421 2X20W • RMS-Surround 3ja diska geislaspilari Útvarp með 20 stöðva minni RDS-tvöfalt segulband • Surround hátalarar fylgja. CDC-471 Heimabíóhijómtæki • 2X40W eða 4X40W • RMS-Dolby pro logic magnari • Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari • Útvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja. CDC5H Heimabíóhljómtæki • 2X100W eða 4X50W »RMS • Dolby prologic magnari • Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari • Utvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.