Dagur - 19.11.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 19.11.1999, Blaðsíða 1
Verð ílausasölu 150 kr. 82. og 83. árgangur - 221. tölublað Kío Briggs vann hjá memtinn höfuðpaur Meintiii höfuöpaur í stóra hassmálinu handtekinn á íslandi skömmu eftix hand- töku Kio Briggs í Dan- mörku. Kio hafði unn- ið um tíma hjá höfuð- pauraum meinta. Kio Briggs, sem nýverið var sýkn- aður á Islandi af ákæru um stór- fellt e-pillusmygl til Islands, en á dögunum handtekinn í Dan- mörku með á áttunda hundrað e-pillur, vann tímabundið í sum- ar hjá fýrirtækjaeigandanum fer- tuga sem hnepptur hefur verið í mánaðarlangt gæsluvarðhald vegna stóra hassmálsins. I því máli voru 30 kíló af hassi tekin í Barcelona í vörusendingu sem senda skyldi til íslands. Hinn meinti höfuðpaur, sem heldur fram sakleysi sínu, en hefur ekki kært gæsluvarðhalds- úrskurðinn til Hæstaréttar, er rafvirkjameistari og rekur fyrir- tæki um inn- flutning á inn- réttingum. Mál hans höfðu verið til skoðunar á annað ár hjá fíkniefnalögregl- unni þegar loks var látið til skar- ar skríða og hef- ur það vakið at- hygli að ekki var talin þörf á því að undirbyggja málið með því að leyfa sending- unni að berast til Islands til að handtaka viðtakanda hennar. Bendir það eindregið til þess að lögreglan hafi mjög sterkar vís- bendingar og gögn undir hönd- um og að því er ætla má fram- burð einhvers eða einhverra um sendinguna á 30 kílóum af hassi frá Barcelona og að hinn meinti höf- uðpaur hafi staðið að send- ingunni. Upplýsingar eftir handtöku Kio Bretinn Kio Al- exander Briggs var 7. nóvember síðastliðinn handtekinn í Danmörku og úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald í Danmörku, eftir að hafa verið tekinn á Iandamær- um Danmerkur og Þýskalands með um 800 e-töflur. Hann hef- ur frá þeim tíma verið í einangr- un og skýrslutökum hjá dönsk- um yfirvöldum. Sem kunnugt er kom Kio á sínum tíma frá Spáni þegar hann var handtekinn með yfir 2000 e-töflur við komu til ís- lands. Aðeins liðu nokkrir dagar frá handtöku Kio Briggs í Dan- mörku þar til íslensk og spænsk Iögregluyfirvöld létu til skarar skríða í Barcelona og fundu 30 kíló af hassi vandlega falin .í sendingu af innréttingum sem fara skyldu til Islands. 16. nóv- ember voru síðan þrír menn hnepptir í gæsluvarðhald á ís- landi, hinn fertugi meinti höfuð- paur, sem Kio Briggs vann hjá í sumar, og tveir aðrir, 39 og 37 ára, sem ólíkt hinum meinta höf- uðpaur höfðu áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkni- efnamála. Annar þeirra, fæddur í október 1962, var 1995 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir stór- fellt fíkniefnabrot. — FÞG Kio Briggs: Nokkrum dögum eftir að hann var handtekinn í Dan- mörku létu lögregluyfirvöld til skarar skríða gegn fyrrum vinnu- veitanda hans. Vilia nýja köffitun Stúdentaráð Háskóla Islands hélt 25 ára afmæli framfærslukönnun- ar LÍN hátíðlegt í dag. Með af- mælisveislunni vildi Stúdentaráð benda á þá staðreynd að á 25 árum hafi engin raunveruleg framfærslukönnun verið gerð þrátt fyrir skýra lagaskyldu sjóðs- ins til að annast gagnasöfnun um þörf námsmanna á námslánum. Stúdentaráð hefur nú hafið und- irskriftasöfnun meðal náms- manna þar sem skorað er á stjórn LÍN að láta gera nýja fram- færslukönnun og byggja upphæð námslána á henni. Boðið var upp á afmælistertu og tertan hafði verið skreytt með framfærslugrunninum sem gerður var upp úr könnuninni frá 1974. Einnig hafði beinagrind verið klædd upp í fatatískunni frá 1974. Allir þingmenn og stjórnarmenn LIN fengu formlegt boðskort, en innan við 10 alþingismenn mættu á svæðið. Að aflokinni veislunni var farið niður á Alþingi þar sem alþingismönnum var afhent kaka, sem skreytt var með framfærslu- grunninum gamla. — HI Finnur Beck ávarpar afmælissamkomuna i Háskólanum í gær með fulltrúa hins sveltandi námsmanns sér við hlið. Finni á hægri hlið má sjá „ framfærslukökuna" sem bökuð var í tilefni dagsins. - mynd: e.úl. Ásbjörn Björgvinsson. Riddarií Hollandi Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu- maður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík, mun taka við orðu úr hendi Bernharðs prins af Hollandi í næstu viku. Um er að ræða „Orðu hinnar Gullnu Ark- ar,“ sem veitt hefur verið árlega frá því snemma á áttunda ára- tugnum. Tvær útgáfur eru af orðunni, annas vegar „Officer of the Golden Ark“ og hinsvegar „Knight of the Golden Ark,“ og hlýtur Ásbjörn þá síðarnefndu og er þar með orðinn „Riddari hinn- ar Gullnu Arkar.“ Á ári hveiju er tíu einstaldingum víða úr veröld veitt þessi orða fyrir störf að um- hverfisvernd og fræðslumálum á því sviði. Aðeins einn Islending- ur mun hafa fengið þessa orðu áður, Finnur Guðmundsson fuglafræðingur. Ásbjörn segist líta á þetta sem mikla viðurkenningu fyrir það starf sem unnið hefur verið við uppbyggingu Hvalamiðstöðvar- inar á Húsavík og það fræðslu- og kynningarstarf sem þar er stundað. „Þetta er fyrst og fremst viðurkenning til miðstöðvarinnar og allra sem þar hafa lagt hönd á plóginn, mitt hlutverk er bara að taka við orðunni fyrir hönd þessa fólks,“ segir hann. Dril'kraftiiririn Ásbjörn er hógvær, en þeim sem til þekkja blandast ekki hugur um að hann hefur verið drif- krafturinn í þessu starfi og lyft sannkölluðu Grettistaki í upp- byggingu fyrirtækisins sem vakið hefur mikla athygli hérlendis og erlendis. Og þarf því ekki að koma á óvart að Ásbjörn hafi fengið tilnefningu í tengslum við þessa orðuveitingu. Hann mun halda utan á fimmtudag og veita orðu hinnar Gullnu Arkar viðtöku úr hendi Berharðs prins af Hollandi í kon- ungshöllinni skammt fyrir utan Amsterdam á laugardaginn, ásamt nfu öðrum orðuþegum frá m.a. Japan, Rússlandi og Eng- landi. — JS Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI - SÍMI462 3524

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.