Dagur - 20.11.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 20.11.1999, Blaðsíða 6
LÍFIÐ í LANDINU i.. ....... 22 - LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 Ingibjörg les upp úr 56 ára gömlum ástarbréfum sem Torfi skrifaði henni. mynd: gun Því fór nú sem fór Þau voru að halda upp á 55 ára hjú- skap, hjóna- kornin á Hala í Suð- ursveit, Ingi- björg Zophoníasdóttir og Torfi Steinþórsson. Margs er að minnast frá fyrstu árunum saman. Ferðalög voru slarksöm, pósturinn lengi á leið- inni og þar með ástar- bréfin... Ingibjörg og Torfi segja það upp- átæki bamanna þeirra að stefna fjölskyldunni saman á Hótel Höfn til að minnast hjúskapar- áranna 55. Athygli vakti þegar ein dóttirin Ias upp úr gömlum bréfum sem farið höfðu á milli foreldranna í tilhugalífinu og hún hafði fundið í skúffu heima á Hala. Þegar Dagur fór þess á Ieit að fá að hnýsast í þau og fleira frá fyrstu árum þeirra hjóna saman svaraði Ingibjörg glettin: „Torfi verður að ráða því. Hann fór nú kring um landið að leita að konu. Ef hann er tilbú- inn að segja frá þá stendur ekki á mér.“ Torfi: (hægt) „Ja, hvenær er maður tilbúinn og hvenær ekki?“ (tekur sig svo á) „Eg gerð- ist farkennari í Svarfaðardal og var vistaður á Hóli þar sem Ingi- björg var heimasæta. Því fór nú sem fór.“ Ingibjörg: „Hann átti ekki undankomu auðið." - Beiðst þú spennt ejiir nýja kennaranum, Ingibjörg? lngibjörg: „Þú getur nú nærri. Við systurnar vorum nýútskrif- aðar af Kvennaskólanum á Blönduósi og biðum í ofvæni eftir biðlunum. Nú kæmi nýr kennari. Torfi var ekki sá fyrsti. Þeir voru búnir að vera nokkrir. En samt vorum við enn óút- gengnar." - Ekki þófamar að örvænta? Ingibjörg: „Nei, ekki beint.“ Torfi: „Þær voru komnar á síð- asta snúning." Svo birtist hann Ingibjörg: „Hann kom með bíl og gekk heldur brösulega því sá bilaði þegar hann var kominn á skriðuna heima. En svo birtist hann í dyragættinni, fannbarinn og rauðhærður.“ Torfi: „Rauðhærður hef ég nú aldrei verið. En svo við byrjum á byijuninni þá átti ég heima á Hala í Suðursveit og var nýút- skrifaður sem kennari vorið 1942 þegar kennslumálastjóri hringdi í mig og sagði að mér stæði til boða kennarastaða í Svarfaðardal og önnur í Önguls- staðahreppi í Eyjafirði. Það varð úr að ég sótti um í Svarfaðardal. Eg fór með Esjunni norður og með bíl frá Akureyri út í Svarf- aðardal. Þetta var um mánaða- mótin sept./okt. og allt á kafi í snjó fyrir norðan." Ingibjörg: „Já, Suðursveitungurinn hafði aldrei séð annað eins. Enda er þetta eftirminnilegt því það fennti margt fé þetta haust og það var óvanalegt á þessum slóðum. „ - En hvemig gengu ústamtálin Ingibjörg: „Þau gengu ekki nokkurn skapaðan hrærandi hlut. Ekki þann vetur. Hann var þijá vetur. Þetta var ekki tekið út með sældinni. Það var eins og sagt er frá í helgu riti að hann var Iengi að vinna fyrir konunni. En hann fékk mig í kaupbæti að lokum.“ Torfi: „Ekki veitti af. Kaupið var ekki svo burðugt og ég sá auðvitað hvílík mannkostakona Ingibjörg var.“ Ingibjörg: „...og Torfi dansaði svo vel að ég var alveg tilbúin til að dansa með honum gegn um lífið. Fylgdi honum heim að Hala vorið ‘44 til að sýna mig og sjá aðra og dvaldi í viku.“ Torfi: „Þá gerði það alversta veður í Suðursveit sem gert hef- ur í manna minnum." Sjóveikur og dofinn Ingibjörg: „Við flugum til Reykjavíkur 14. maí og fórum með fiskidalli þaðan austur á Hornafjörð. Það voru fleiri far- þegar með bátnum og vantaði eina koju þegar upp var staðið. Eg var í hákoju en fyrir ofan hana var hilla. Þar var Torfi sett- ur. Svo tók báturinn að velta og þá fór nú heldur að væsa um hann. Allt í einu stóð spýja fram af hillunni. Torfi orðinn sjóveik- « ur. Torfi: „Þetta var ekki gott.“ Ingibjörg: „Ferðin tók enda en þegar hann skreið loksins niður af hillunni þá var hann algerlega dofinn í handleggnum eftir að hafa þurft að skorða sig allan tímann." Torfi: „Það batnaði ekki fyrr en seinni part sumarsins." Ingibjörg: Þennan dag var bíl- ferð frá Höfn út í Suðursveit. Fólk sem hafði verið hér á vertíð að fara heim. BíIIinn var keyrður út á pramma og pramminn dreg- inn yfir fjörðinn og svo var ekið

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.